Forsíða
Pistlar
Greinar
Um Jóhönnu
Á Alþingi
Senda póst
Jóhanna Sigurðardóttir
 

Skráning á póstlista
Pistlar
Greinar
Netfang:






 
29. maí 2007

Ný ríkisstjórn

Mikilvægt er að markvisst og skipulega verði fylgt ákvæðum stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar um öfluga velferðarþjónustu og bættan hag heimilanna í landinu. Samhliða því verður að standa vörð um öflugt atvinnulíf og stöðugleika í efnahagsmálum. Nýjar áherslur ríkisstjórnarinnar koma m.a. fram í breyttum verkefnum ráðuneyta m.a. með veigamiklum verkefnatilflutningi frá Tryggingastofnun ríkisins til félagsmálaráðuneytisins. Það eru sannarlega ögrandi tækifæri sem felast í því að fá sem ráðherra að móta nýtt ráðuneyti velferðar- og fjölskyldumála. Af mörgu er að taka í spennandi viðfangsefnum sem bíða nýrrar ríkisstjórnar á sviði velferða og jafnréttismála eins og aðgerðaráætlun í málefnum barna og ungmenna, bætt kjör lífeyrisþega og áherslur á sviði jafnréttismála.

Málefni lífeyrisþega
Ákvæði stjórnarsáttmálans gefa fyrirheit um bættan hag lífeyrisþega og uppbyggingu í málefnum barna og ungmenna. Í stjórnarsáttmálanum felast ný tækifæri til að styrkja velferðarkerfið m.a. bættum aðbúnaði aldraðra með því að hraða uppbyggingu 400 hjúkrunarrýma og að sólarhringsþjónustu með öflugri heimaþjónustu og heimahjúkrun verði efld. Hækkun frítekjumarks vegna atvinnutekna þar sem einnig verður skoðað hvort undanskilja megi hluta af lífeyrissjóðstekjum eldri borgara skerðingum í almannatryggingum er mikilvægt að verði sem fyrst að veruleika. Það skiptir ekki bara máli fyrir aldraðra heldur þjóðfélagið í heild að ekki séu settir hömlur á það að aldraðir geti aflað sér einhverra tekna án þess að þær skerði lífeyri almannatrygginga. Eitt af brýnum verkefnum sem þarf að vera í forgangi er að bæta lífeyri þeirra sem lítlar eða engar tekjur hafa úr lífeyrissjóðum.'

Málefni barna og ungmenna
Forgangasmál ríkisstjórnarinnar er að mótuð verði heildstæð aðgerðaráætlun í málefnum barna og ungmenna sem byggist meðal annars á rétti þeirra eins og hann er skilgreindur í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Tannvernd barna á að bæta með gjaldfrjálsu eftirliti, forvarnaraðgerðum og auknum niðurgreiðslum á tannviðgerðum barna. Barnabætur verði hækkaðar til þeirra sem hafa lágar tekjur og nemendur í framhaldsskólum fái stuðning til kaupa á námsgögnum. Sérstaklega á að huga að stuðningi við börn innflytjenda í skólakerfinu. Jafnframt verði aukinn stuðningur við langveik börn, börn með hegðunarvandamál, geðraskanir og þroskafrávik. Þegar í stað á að grípa til aðgerða til að vinna á biðlistum á því sviði. Mikilvægt er einnig að efla alla foreldraráðgjöf og –fræðslu, sem og forvarnastarf gegn kynferðislegu ofbeldi og stuðningur við fjölskyldur ungmenna, sem eiga í vanda vegna vímuefnaneyslu. Fæðingarorlofið á að lengja í áföngum, sem er eitt af brýnustu viðfangsefnum fyrir ungbarnafjölskyldur. Allt eru þetta metnaðarfull áform og mikilvægt að stjórnarflokkarnir beri gæfu til að fylgja þessum málum í höfn á kjörtímabilinu.



 
 
  Forsíða | Pistlar | Greinar | Um Jóhönnu | Á Alþingi | Senda póst