11. júní 2007
Mikilvæg áætlun í höfn
Það er mikið ánægjuefni að fyrsta þingmál mitt sem félagsmálaráðherra í nýrri ríkisstjórn sé að ná fram að ganga, aðgerðaráætlun í málefnum barna og ungmenna, aðeins þremur vikum eftir að ný ríkisstjórn var mynduð. Að fengnu samþykki Alþingis verður skipaður samráðshópur fulltrúa félagsmála-, heilbrigðis- og tryggingamála-, dóms- og kirkjumála-, fjármála- og menntamálaráðherra til að stuðla að samræmingu og eftirfylgni aðgerðaráætlunarinnar undir forystu félagsmálaráðuneytisins.
Meðferð Alþingis á málinu
Félagsmálanefnd hefur fjallað um tillögu ríkisstjórnarinnar um aðgerðaráætlun til fjögurra ára til að styrkja stöðu barna og ungmenna sem væntanlega verður samþykkt með miklum meirihluta. Eðlilega gera einhverjir þingmenn í stjórnarandstöðunni fyrirvara, m.a. um framkvæmd málsins og að fjármagn fylgi aðgerðum áætlunarinnar sem koma eiga til framkvæmda á kjörtímabilinu. Mér er ofarlega í huga þakklæti til Alþingis fyrir þá breiðu samstöðu sem virðist vera að myndast um að afgreiða þessa ályktun fljótt og vel á stuttu sumarþingi og fyrir þann góða vilja sem ég finn hjá ríkisstjórninni að hrinda þessari aðgerð í framkvæmd á kjörtímabilinu.
Megináherslur í aðgerðaráætluninni
Meginatriði aðgerðaráætlunarinnar verða að bæta afkomu barnafjölskyldna, m.a. með hækkun barnabóta tekjulágra fjölskyldna, lengingu fæðingarorlofs, stuðningi við foreldra í uppeldisstarfi, eflingu forvarna og aðgerðum gegn vímunefnaneyslu. Einnig verður framfylgt aðgerðum í þágu barna og ungmenna með þroskafrávik, hegðunarerfiðleika og geðraskanir, langveikra barna, og barna sem eiga við vímuefnavanda að etja. Sömuleiðis aðgerðir sem vernda börn og ungmenni gegn kynferðisbrotum og aðgerðir til að styrkja stöðu barna innflytjenda. Ég fagna líka mjög því sem fram kemur í nefndaráliti félagsmálanefndar þar sem hvatt er til þess að húsnæðisvandi fátækra barnafjölskyldna verði skoðaður sérstaklega í aðgerðum til að sporna gegn fátækt. Sérstaklega á að huga að stöðu einstæðra foreldra og meðlagsgreiðenda með aðgerðum til að vinna gegn fátækt meðal barnafjölskyldna.
Metnaðarfull áætlun – samvinnuverkefni margra
Þetta er metnaðarfull áætlun sem ég hlakka til að fylgja eftir. Ég geri mér fulla grein fyrir að áætlunin er kostnaðarsöm og að margir þurfa að koma að þessu verki með stjórnvöldum, ekki síst sveitarfélögin. Margir hafa kallað eftir þessari áætlun, enda hafa hinar Norðurlandaþjóðirnar um áratuga skeið unnið eftir skipulagðri framkvæmdaáætlun í málefnum barna og ungmenna, en íslensk börn og ungmenni að 18 ára aldri eru um 84 þúsund. Stjórnvöld, bæði ríki og sveitarfélög, hafa skyldur við barnafjölskyldur í landinu, ekki síst þar sem báðir foreldrar eru knúnir til að vera á vinnumarkaðnum og hafa sjaldan val vegna mikils framfærslukostnaðar heimilanna.Það er einlæg von mín að ríkisstjórnin beri gæfu til þess að framfylgja þessari áætlun á kjörtímabilinu.