Á að leyfa sölu á bjór og léttu víni í matvöruverslunum?
Ég er sátt við það að á Íslandi skuli vera bannað að selja bjór og vín í matvöruverslunum. Ekki vegna þess að ég sé á móti bjór og víni. Alls ekki. Ég er ein af þeim sem held því fram að hóflega drukkið vín gleðji mannsins hjarta (bæði andlega og líkamlega) því gott og vel framleitt vín er holt. Sérstaklega fyrir hjartað og blóðrásina. Ég er líka sátt við það að áfengi sé selt í sérstökum verslunum sem selja eingöngu áfengi og ég sé enga ástæðu til að takmarka fjölda þeirra verslana svo að þar sé alltaf biðröð. Ég er líka þeirrar skoðunar að þær verslanir sem selja áfengi ættu að leggja sig eftir því að vera neytendavænni en þær sem við þekkjum hér, þær ættu t.d. hafa á að skipa færum ráðgjöfum sen eru vel að sér um vöruna sem verið er að selja og bjóða upp á smakkanir á tyllidögum og fræðslu. Já, og þá er ég nú kannski komin að því sem er í mínum huga lykilatriði fyrir þessari umræðu og það tengist menningu okkar íslendinga. Við vitum vel að vín- og bjórframleiðsla og þá um leið neysla þessara veiga, er hluti af menningu ýmissa landa.
Frakkar, Ítalir, Ástralar, Bandaríkjamenn, meira eða minna öll lönd í S-Ameríku.
Og hverju breytir það? Jú, við getum ekki slitið gjörðir okkar úr tengslum við menningu okkar. Þannig verður hegðun og hegðunarmunstur þjóða skilgreint út frá menningu þjóðarinnar. Skoðum þá áfengismenningu Íslendinga. Hver er hún? Hvað sjáið þið fyrir ykkur? Má ég heyra?
Já, víkingana sem kneyfuðu mjöð úr ámum og rifu í sig heilsteiktar rollur, meðan Frakkar hafa frá aldaöðli getað staðið í deilum um hvort vínið sem ræktað var í þessum dalnum eða hinum væri betra? Það er um miklu mildari drykkjusiði að ræða, svo ekki sé meira sagt. Þar hefur líka alla tíð skipt máli að vín eru drukkin í tengslum við máltíðir og maður drekkur ekki þurrt hvítvín með blóðugri nautasteik. það vita allir. Maður drekkur heldur ekki svartan líkjör á undan máltíð, nei hann er drukkinn að henni lokinni (enda heita slíkir líkjörar á ítölsku Digestivo = til meltingar). Á sama hátt er það móðgun við ítalska þjóna að biðja um Café Cappuchino að lokinni máltíð, það er merki um að þú sért enn svangur, hafir ekki fengið nóg að borða. Því café cappuchino er morgunkaffi, það er matarmikið og til þess fallið að byrja með daginn. Þess vegna drekkur maður ekki cappuchino nema utan máltíða, sem aukabita.
Já, áfengisneysla er að mínu mati hluti af kúltur/menningu þjóða.
Þannig treysti ég Frökkum og Ítölum fullkomlega til að fara í sínar vínbúðir og velja sín vín af ástríðu. Ég hef sjálf afskaplega gaman af að koma í slíkar búðir. þetta eru sérverslanir með áfengi, þar sem maður fræðist af ástríðufullum vínkaupmönnum, sem vita allt um mismun árgerðanna og söguna að baki víntegundanna. Ég sé ekki að við höfum forsendur til þess að stofna slíkar búðir á Íslandi, enda er það ekki það sem verið er að fara framá, athugið það. Það er verið að fara fram á að áfengi verði selt í matvöruverslunum, til hvers? Hvert er ykkar svar…?
Frelsi einstaklingsins?
Hvaða ófresli er fólgið í því að þurfa að koma við í Ríkinu, sem er bara hinu megin við ganginn eða götuna og grípa vínið með þar? Er þetta spurning um tímasparnað? Leti? Eða kannski bara eitthvað allt annað? Er þetta kannski spurningin um að auðvelda aðgengi unglinga að áfenginu? Selja það einhvers staðar þar sem minni líkur væru á að afgreiðslufólk óskaði eftir skilríkjum?
Ef það er markmiðið, þá er þessi krafa komin fram undir fölsku flaggi? Þá er óheiðarlega barist.
Og við skulum aðeins líta á reynslu nágrannaþjóða okkar. Svíar gerðu fyrir nokkrum árum tilraun til að selja svokallað "mellanöl" í matvöruverslunum sínum, og hvað kom í ljós? Unglingadrykkja jókst til mikilla muna, svo þeir hættu. Þetta voru einu sýnilegu áhrifin, jú og gróði stórmarkaðanna jókst. En er það markmið þjóðarinnar að stórmarkaðir geti grætt meira en þeir gera nú þegar? Er það ekki hagsmunamál fyrir þjóðina að stemma stigu við unglingadrykkju? Eða hvað? Hvað leiðir unglingadrykkja af sér? Óhamingjusömu ungu fólki fjölgar, ódæðisverkum unglinga fjölgar, heimilisofbeldi eykst, fleiri eru teknir ölvaðir undir stýri, fleiri umferðarslys má rekja til ölvunar ökumanns, fleiri unglingar leiðast inn á brautir eiturlyfjaneyslu og ungu fólki fjölgar á meðferðarstofnunum. Ég get ekki fallist á að þessi áhrif áfengissölu í matvöruverslunum séu svo eftirsóknarverð. Ég er þeirrar skoðunar að okkur beri skylda til að stuðla að velferð þjóðarinnar í einu og öllu og sé get ekki séð að sala á áfengi í matvöruverslunum hafi annað en slæm áhrif á velferð þjóðarinnar.
Og ef þetta er spurning um frelsi einstaklingsins, þá langar mig nú bara til að benda á það að frelsi þitt endar þar sem nef náunga þíns byrjar!
Þið talið um forræðishyggju.
Hvað ef við lítum á þetta frá öðru sjónarhorni? Því forræðishyggja á einu plani getur verið umhyggja á öðru. Ég verð að segja að það er af umhyggju fyrir ungu fólki, sem ég vil forða því frá freistingum. Ég tel mig ekki vera að gera ungu fólki gott ef ég legg freistingar meðvitað við hvert þeirra fótmál. Það er gott að ganga í gegnum eldraunir ef maður stenst þær, en það er skelfilegt að þurfa stöðugt að vera að reyna að standast einhverjar eldraunir og standast þær ekki. Falla stöðugt á prófinu.