Fyrst og fremst....
Rás 2 á 25 ára afmæli í dag; til hamingju með afmælið! Það var ekki mikið um dýrðir á afmælisdaginn, enda ekki auðvelt að fagna innan veggja Ríkisútvarpsins um þessar mundir. Skuggi uppsagna, misjafnlega ósanngjarnra hvílir yfir starfsfólkinu. Það er auðvitað fáheyrt að forstjórar séu svo fákunnandi um heimildir sínar að þeir leyfi sér að segja upp trúnaðarmönnum í miðjum samningaviðræðum. En þrátt fyrir ástandið var boðið upp á kakó og dýrindis súkkulaðiköku í mötuneytinu, en stemningin var samt ekki eins og í venjulegum afmælisveislum.
Í tilefni afmælisins hafði Kastjós viðtal við keisarann í popp-landi Óla Palla, sem gleymist ekki strax. Í stað þess að barma sér undan kreppu, samdrætti á auglýsingamarkaði og uppsögnum, blés Óli Palli til sóknar. Hann var ósköp ánægður með Rásina okkar, sem hefur staðið sig svo vel þessi 25 ár. En hann benti jafnframt á veikleika hennar sem er fólginn í þeirri staðreynd að hlustendur hafa elst með Rásinni, þannig eru þeir sem mestri tryggð halda við hana líka orðnir 25 árum eldri en þegar hún fór í loftið. Þess vegna taldi Óli Palli fullt tilefni til að fara nú að huga að Rás 3!!!
Þetta er besta hugmynd sem ég hef heyrt lengi. Rás 2 hefur skilað góðu búi gegnum tíðina, raunar er það svo að hún fær ekki að ráðstafa þeirri innkomu sjálf, heldur tekur "mamma RÚV" það allt til sín. En hafi Rás 2 malað gull fyrir "mömmu RÚV", þá myndi ný Rás 3 ekki síður leggja háar fjárhæðir í búið. Hitt er þó mikilvægast að með Rás 3 yrði tryggt að menning unga fólksins í dag varðveittist, því hún er menningararfur morgundagsins.
Vonandi rætir draumur Óla Palla, Rás 3 yrði flott afmælisgjöf!