Mánudagur 12. janúar 2009
Að biðjast afsökunar eða ekki......

Vefmiðillinn visir.is fjallar í kvöld um viðtal Kastljóss við heilbrigðisráðherra og er fyrirsögn pistilsins svohljóðandi: Guðlaugur biðst afsökunar á bankahruninu. Fréttin hefst svo á tilvitnun í ráðherrann: ,,Ég er ekkert að þræta fyrir það og get alveg sagt eins og er að ég sá ekki þessa hluti fyrir. Mér þykir það bara mjög miður og biðst afsökunar á því," sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, aðspurður í Kastljósi fyrr í kvöld um hlut Sjálfstæðisflokksins í falli bankanna og þeim efnahagsþrengingum sem landsmenn ganga nú í gegnum.

Eins og ég les þessa tilvitnun þá er ráðherrann að biðjast afsökunar á því að hafa ekki séð bankahrunið fyrir. Mér þykir nú nokkur munur á því og að biðja afsökunar á bankahruninu. Forsætisráðherra þvældi líka eitthvað í fjölmiðlum fyrir skemmstu um það að ef það kæmi í ljós að hann bæri einhverja ábyrgð á þessu hruni þá gæti hann alveg beðist afsökunar á því.... en hann baðst ekki afsökunar á neinu!

En úr því hér er minnst á heilbrigðisráðherra þá fékk hann að finna til tevatnsins á fjölmennum borgarafundi í Háskólabíói í kvöld, þar sem Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir doktor í opinerri stjórnsýslu ljóstraði upp um einræðistilburði þessa sama ráðherra og hvernig hann fór að því að ráða forstjóra nýrrar Sjúkratryggingastofnunar, sem við vinstri-græn höfum raunar kallað Innkaupastofnun heilbrigðisþjónustu.

Guðlaugur Þ. Þórðarson á vonandi eftir að þurfa að svara fyrir gjörðir sínar síðusut daga á opinberum vettvangi og líklegt að hann verði spurður hvort það hafi verið hann sem hringdi í Sigurbjörgu Sigurgeirsdóttur í dag til að tilkynna henni að hún skyldi tala varlega á borgarafundinum í kvöld