Þriðjudagur 13. janúar 2009
...svo það var þá ISG

Ég var ekki sú eina sem grunaði heilbrigðisráðherra um að hafa hringt í Sigurbjörgu Sigurgerisdóttur stjórsýslufræðing og beðið hana um að tala "varlega" á borgarafundinum í gær. En nú er komið í ljós að það var utanríkisráðherra, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, sem sá ástæðu til að taka upp símann og benda Sigurbjörgu á að hún gæti verið að ganga á "faglegan heiður sinn" ef hún gætti ekki að sér.

Í yfirlýsingu frá Ingibjörgu Sólrúnu segir:

Góð vinátta hefur verið á milli okkar Sigurbjargar um árabil, þar sem við höfum metið mál og skipst á heilræðum eins og vinir gera. Í krafti þeirrar vináttu vildi ég ráða henni heilt og kom þeim skilaboðum til hennar héðan frá Stokkhólmi, að nálgast ræðu sína á Háskólabíósfundinum af varfærni og gæta þess að ganga ekki á faglegan heiður sinn. Ég er sannfærð um að Sigurbjörg veit að þetta voru ráð af góðum huga gefin og mér þykir leitt að lagt hafi verið út af þeim eins og um ógnandi tilmæli frá ráðherra væri að ræða.

Það er erfitt að sjá fyrir sér afleiðingar þessa símtals og hvernig það leggst í hinn almenna félaga í Samfylkingunni, en það var alveg ljóst hvað þeim "almenningi" fannst, sem staddur var á borgarafundinum í Háskólabíói í gærkvöldi. Svo hátt var BAULAÐ!