Miðvikudagur 21. janúar 2009
Vanhæf ríkisstjórn!

Það var sannarlega undarleg tilfinning að vera inni í Alþingishúsinu í dag og heyra taktfastan hávaða mótmælenda, sem hrópuðu í sífellu „Vanhæf ríkisstjórn, vanhæf ríkisstjórn“! Og það var óneitanlega sérstakt að geta látið orðin enduróma úr ræðustóli Alþingis og inn í þingtíðindi þar sem þau varðveitast til framtíðar. Það er umhugsunarefni hvenær ríkisstjórnin og þingmenn stjórnarflokkanna nema skilaboðin frá fólkinu á Austurvelli.

Þessi hugsun leitaði á, þegar greint var frá því í kvöldfréttatíma Sjónvarpsins að Helgi Hjörvar hefði í dag boðað frumvarp 10 samfylkingarþingmanna, sem leggja á fram á Alþingi einhvern tíma á næstunni. Innihald frumvarpsins mun vera á þá leið að meiri hluti kjósenda eigi að geta krafist kosninga ef óánægja með valdhafana er komin yfir þolmörk. Og á sama tíma telur hann eðlilegt að stjórnarflokkarnir komi sér saman um að efnt verði til kosninga á þessu ári!!
Eftir hverju er Helgi Hjörvar að bíða, óánægja þjóðarinnar dylst nú trúlega fáum. Óánægjan hefur kallað þúsundir til fundar á Austurvelli í dag og fram á kvöld. Þá dettur Helga í hug að tefla fram frumvarpi, sem fengi hátt málanúmer og kæmi ekki á dagskrá fyrr en eftir dúk og disk, og fengist eflaust ekki rætt til enda. Á sama tíma sendur mannfjöldi berjandi potta og pönnur við brennandi bálköst fyrir utan Alþingishúsið, hrópandi „Vanhæf ríkisstjórn, vanhæf ríkisstjórn“! Dettur einhverjum í hug „sýndarmennska“? Hvers vegna ganga Helgi Hjörvar og félagar hans ekki bara hreint til verks og slíta stjórnarsamstarfinu? Þetta er áleitin spurning.