Lagasafn. Íslensk lög 1. janúar 2012. Útgáfa 140a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um heimild fyrir ríkisstjórnina til að staðfesta fyrir Íslands hönd alþjóðasamþykkt um takmörkun á ábyrgð útgerðarmanna, sem gerð var í Brüssel 10. október 1957
Tóku gildi 24. apríl 1968. 1. gr. Ríkisstjórninni er heimilt að staðfesta fyrir Íslands hönd alþjóðasamþykkt um takmörkun á ábyrgð útgerðarmanna, sem gerð var í Brüssel 10. október 1957. Fyrirvara má gera um einstök ákvæði, sem ríkisstjórninni þykir við eiga og heimilt er að gera samkvæmt samþykktinni. Samþykktin er prentuð á íslensku og ensku sem fylgiskjöl með lögum þessum.1) 1)Sjá Stjtíð. A 1968, bls. 26–37.