Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. október 2013. Útgáfa 142. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur
1989 nr. 52 29. maí
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 1. júní 1989. Breytt með l. 47/1990 (tóku gildi 31. maí 1990 nema 14. og 15. gr. sem tóku gildi 1. jan. 1991), l. 26/2000 (tóku gildi 1. júní 2000), l. 138/2001 (tóku gildi 31. des. 2001), l. 20/2003 (tóku gildi 1. maí 2003), l. 82/2004 (tóku gildi 1. júlí 2004), l. 47/2007 (tóku gildi 31. mars 2007), l. 58/2011 (tóku gildi 7. júní 2011 nema 2. mgr. d-liðar 10. gr. sem tók gildi 1. jan. 2012; EES-samningurinn: XX. viðauki tilskipun 2006/21/EB, II. viðauki tilskipun 2006/66/EB) og l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra eða atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
1. gr. [Á innfluttar drykkjarvörur í einnota umbúðum úr stáli, áli, gleri og plastefni skal leggja skilagjald sem innheimt skal við tollafgreiðslu. Skal gjaldið nema [9,35 kr.] 1) án virðisaukaskatts á hverja umbúðaeiningu og skal ráðherra hækka hámarksfjárhæðina í samræmi við breytingar á vísitölu neysluverðs frá síðustu hækkun gjaldsins. Sama gjald skal lagt á drykkjarvörur sem framleiddar eru eða átappaðar hér á landi og seldar eru í sams konar umbúðum og að framan greinir. Skal greiða gjaldið samhliða vörugjaldi af innlendum drykkjarvörum. Til viðbótar skilagjaldi skal með sama hætti leggja umsýsluþóknun á hverja umbúðaeiningu úr stáli, gleri og plastefni og skal fjárhæð hennar án virðisaukaskatts vera [3,96 kr.] 1) á umbúðir úr stáli, [2,91 kr.] 1) á umbúðir úr gleri stærri en 500 ml, [2,09 kr.] 1) á umbúðir úr gleri 500 ml og minni, [2,09 kr.] 1) á umbúðir úr lituðu plastefni og [0,86 kr.] 1) á umbúðir úr ólituðu plastefni.] 2)
Að svo miklu leyti sem ekki er kveðið á um í lögum þessum skulu ákvæði laga nr. 97/1987, um vörugjald, með síðari breytingum, eiga við um álagningu, innheimtu, viðurlög, kærur, eftirlit og aðra framkvæmd gjaldtöku samkvæmt þessari grein.
1)L. 47/2007, 1. gr. 2)L. 26/2000, 1. gr.
2. gr. [Ráðherra] 1) skal beita sér fyrir stofnun hlutafélags sem taki að sér umsýslan skilagjaldsins svo og söfnun og endurvinnslu einnota umbúða er falla undir lög þessi. Til samvinnu um stofnun og starfsemi hlutafélagsins skal [ráðherra] 1) heimilt að kveðja til aðila sem áhuga hafa á málinu. Heimilt er að semja við félagið um að það fái umsýsluþóknun skilagjaldsins til að standa undir rekstri sínum og auk þess skilagjald af þeim umbúðum sem eigi er skilað. Ríkissjóði er heimilt að eiga aðild að félaginu og leggja fram allt að 12 milljónum króna.
Félagið skal hafa einkarétt til framangreindrar starfsemi hér á landi.
1)L. 126/2011, 131. gr.
3. gr. Skilagjald skal endurgreiða neytendum við móttöku á notuðum skilagjaldsskyldum umbúðum. Sömuleiðis skal greiða samsvarandi til einstaklinga, fyrirtækja eða félagasamtaka sem taka að sér að safna slíkum umbúðum til eyðingar eða endurvinnslu.
Félagið skal sjá til þess að koma upp skilvirku fyrirkomulagi á söfnun skilagjaldsskyldra umbúða um land allt. Félagið skal einnig endurvinna umbúðir eða koma þeim til endurvinnslu eða eyðingar.
Félagið skal kappkosta að ná sem bestum skilum á skilagjaldsskyldum umbúðum og hafa samstarf við sveitarfélög, einstaklinga, fyrirtæki og félagasamtök um sérstakar hreinsunarherferðir þar sem áhersla verður lögð á söfnun skilagjaldsskyldra umbúða. Enn fremur verði leitað samstarfs við þá aðila sem aðstöðu hafa til úrvinnslu umbúðanna.
… 1)
1)L. 138/2001, 1. gr.
4. gr. [Í reglugerð 1) sem [ráðherra er fer með meðhöndlun úrgangs] 2) setur skal kveðið nánar á um framkvæmd laga þessara, m.a. um fjárhæð, innheimtu og endurgreiðslu skilagjaldsins, gerð og efnisval skilagjaldsskyldra umbúða fyrir drykkjarvörur og upphæð umsýsluþóknunar. Við ákvörðun umsýsluþóknunar skal við það miðað að félagið geti staðið undir kostnaði við starfsemina og skilað hluthöfum hóflegum arði af hlutafé.
[Ráðherra er fer með meðhöndlun úrgangs] 2) er heimilt að setja í reglugerð ákvæði um bann við notkun og sölu einnota drykkjarvöruumbúða sem ekki er unnt eða torvelt er að endurnota eða endurnýta, kröfur um meðhöndlun notaðra drykkjarvöruumbúða og móttökuskilyrði, ákvæði um skyldu framleiðenda og innflytjenda til að merkja drykkjarvöruumbúðir, m.a. með strikamerkingum, lágmarksmarkmið um endurheimt drykkjarvöruumbúða, endurnýtingu og endurnotkun þeirra, sem félaginu ber að ná árlega, svo og um hlutverk Umhverfisstofnunar við að hafa eftirlit með því að sett markmið náist.] 3)
1)Rg. 368/2000, sbr. 448/2002, 437/2003, 49/2006, 524/2006, 824/2010 og 186/2012. 2)L. 126/2011, 131. gr. 3)L. 58/2011, 24. gr.
5. gr. Brot gegn lögum þessum varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.
Með mál vegna slíkra brota skal farið að hætti opinberra mála.
6. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.