Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. janúar 2016. Útgáfa 145a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um Grænlandssjóð
1980 nr. 102 31. desember
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 2. janúar 1981. Breytt með l. 98/2009 (tóku gildi 1. okt. 2009 nema 69. og 70. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2010), l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011) og l. 85/2012 (tóku gildi 11. sept. 2012 nema 2. málsl. b-liðar 12. gr. sem tók gildi 1. sept. 2013).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við mennta- og menningarmálaráðherra eða mennta- og menningarmálaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
1. gr. Stofna skal sjóð, er nefnist Grænlandssjóður, til að stuðla að nánari samskiptum Íslendinga og Grænlendinga.
2. gr. Grænlandssjóður skal veita styrk til kynnisferða, námsdvalar, listsýninga, íþróttasýninga og annarra málefna á sviði lista, vísinda og tæknimála, er geta stuðlað að eflingu samskipta Grænlendinga og Íslendinga.
3. gr. Ríkissjóður skal leggja í Grænlandssjóð árin 1981 og 1982 125 milljónir kr. hvort ár. Verði breyting á gengi danskrar krónu frá því að lög þessi taka gildi skal framlag ríkissjóðs til sjóðsins breytast í samræmi við það. Auk þess skal sjóðsstjórnin leita eftir framlögum í sjóðinn frá fyrirtækjum, stofnunum, félagssamtökum og einstaklingum.
4. gr. Seðlabanki Íslands skal annast fjárreiður Grænlandssjóðs og ávaxta fé hans. Framlögum og öðrum tekjum sjóðsins má jafnóðum breyta í grænlenskan gjaldeyri.
5. gr. Til styrkveitinga skal verja allt að 9/ 10 hlutum vaxtatekna sjóðsins. Eigi skal skerða stofnfé sjóðsins. Gjafir til sjóðsins skulu að jafnaði leggjast við stofn hans, nema stjórn sjóðsins sé sammála um að verja ákveðnum gjöfum eða framlagi til einstaks verkefnis, sem hún telur að sé sérstaklega þörf fyrir.
6. gr. Stjórn sjóðsins skal skipuð 5 mönnum. Alþingi kýs þá hlutfallskosningu … 1) [Ráðherra] 2) skipar formann stjórnarinnar. Kjörtímabil stjórnarinnar skal vera til þriggja ára. Stjórn sjóðsins skal vera ólaunuð.
1)L. 85/2012, 29. gr. 2)L. 126/2011, 87. gr.
7. gr. Formaður sjóðsstjórnar ákveður hvenær stjórnin kemur saman til fundar, en auk þess geta tveir stjórnarmenn krafist fundar.
[Ráðherra] 1) setur reglugerð um starfsemi sjóðsins, ef sjóðsstjórnin óskar þess.
1)L. 126/2011, 87. gr.