Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. janúar 2016. Útgáfa 145a. Prenta í tveimur dálkum.
Forsetaúrskurður um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti
2012 nr. 99 30. ágúst
Tók gildi 1. september 2012.
Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar, og laga um Stjórnarráð Íslands, skiptist Stjórnarráð Íslands í ráðuneyti sem hér segir:
1. forsætisráðuneyti,
2. atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti,
3. fjármála- og efnahagsráðuneyti,
4. innanríkisráðuneyti,
5. mennta- og menningarmálaráðuneyti,
6. umhverfis- og auðlindaráðuneyti,
7. utanríkisráðuneyti,
8. velferðarráðuneyti.
Úrskurður þessi öðlast gildi 1. september 2012. …