Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 20. janúar 2019. Útgáfa 149a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um viðauka við lög nr. 80 15. ágúst 1966, um kísilgúrverksmiðju við Mývatn
1969 nr. 48 17. maí
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 10. júní 1969.
1. gr.
Ríkisstjórninni er heimilt að leggja fram allt að 150 milljónir króna af fé ríkissjóðs sem hlutafé í Kísiliðjunni hf. við Mývatn til viðbótar því framlagi, sem heimilað var með ákvæðum 1. tölul. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 80 15. ágúst 1966, um kísilgúrverksmiðju við Mývatn. Er ríkisstjórninni jafnframt heimilt að taka lán í þessu skyni.
Ákvæði 5. mgr. 4. gr. nefndra laga gilda ekki um þau hlutabréf í Kísiliðjunni hf., sem ríkissjóður kann að verða skráður fyrir við aukningu hlutafjár umfram upphaflegt stofnfé félagsins.