Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 20. janúar 2019. Útgáfa 149a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um aðild Íslands að samningi um stofnun aðstoðarsjóðs á vegum Efnahags- og [framfarastofnunar]1)
1976 nr. 25 6. maí
1)L. 98/2009, 7. gr.
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 28. maí 1976. Breytt með l. 98/2009 (tóku gildi 1. okt. 2009 nema 69. og 70. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2010) og l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við fjármála- og efnahagsráðherra eða fjármála- og efnahagsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
1. gr.
Ríkisstjórninni skal heimilt að fullgilda fyrir Íslands hönd samning, dags. 9. apríl 1975, um stofnun aðstoðarsjóðs — Financial Support Fund — á vegum Efnahags- og [framfarastofnunar] 1) (OECD).
1)L. 98/2009, 7. gr.
2. gr.
[Ráðherra] 1) skipar fulltrúa Íslands í stjórn sjóðsins og annan til vara.
1)L. 126/2011, 68. gr.
3. gr.
Ríkisstjórninni heimilast að ábyrgjast hluta Íslands í skuldbindingum sjóðsins allt að jafnvirði 25 milljóna dollara og að taka lán úr sjóðnum allt að sömu fjárhæð.