Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 10. janúar 2020. Útgáfa 150a. Prenta í tveimur dálkum.
Forsetaúrskurður um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti
2018 nr. 118 7. desember
Tók gildi 1. janúar 2019.
Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar og laga um Stjórnarráð Íslands skiptist Stjórnarráð Íslands í ráðuneyti sem hér segir:
1. forsætisráðuneyti,
2. atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti,
3. dómsmálaráðuneyti,
4. félagsmálaráðuneyti,
5. fjármála- og efnahagsráðuneyti,
6. heilbrigðisráðuneyti,
7. mennta- og menningarmálaráðuneyti,
8. samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti,
9. umhverfis- og auðlindaráðuneyti,
10. utanríkisráðuneyti.
Úrskurður þessi öðlast gildi 1. janúar 2019. …