Tóku gildi 1. júlí 1978.Breytt meðl. 82/1980 (tóku gildi 1. jan. 1981), l. 5/1982 (tóku gildi 1. mars 1982), l. 61/1982 (tóku gildi 24. maí 1982), l. 131/1989 (tóku gildi 1. jan. 1990), l. 20/1991 (tóku gildi 1. júlí 1992), l. 90/1991 (tóku gildi 1. júlí 1992), l. 157/1998 (tóku gildi 1. jan. 1999), l. 29/1999 (tóku gildi 1. jan. 1999), l. 129/2004 (tóku gildi 31. des. 2005), l. 79/2006 (tóku gildi 30. júní 2006), l. 59/2008 (tóku gildi 1. júlí 2008), l. 69/2008 (tóku gildi 1. júní 2008, birt í Stjtíð. 13. júní 2008), l. 83/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema 22. gr. sem tók gildi 20. júní 2008), l. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008), l. 132/2008 (tóku gildi 21. nóv. 2008), l. 168/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009), l. 130/2009 (tóku gildi 30. des. 2009 nema 7.–9. gr. og 13.–42. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2010), l. 49/2010 (tóku gildi 11. júní 2010), l. 77/2010 (tóku gildi 1. júlí 2010), l. 165/2010 (tóku gildi og komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 69. gr.), l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011) og l. 164/2011 (tóku gildi 30. des. 2011 nema 1.–2., 4.–5., 7., 15.–21., 24.–27., 29.–30. og 34.–39. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2012; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 40. gr.).
II.Um greiðslu stimpilgjalds, stimplun og endurskoðun gjaldsins. 10. gr. Greiðsla stimpilgjalds skal staðfest með því að líma stimpilmerki á skjalið. [Ráðuneytið]1) lætur gera stimpilmerki og ákveður útlit þeirra og fjárhæð. Ráðuneytinu er heimilt að ákveða að í stað stimpilmerkja megi staðfesta greiðslu gjaldsins með ástimplun stimpilmerkjavélar, notkun stimpils eða með annarri áletrun á hið stimpilskylda skjal. 1)L. 126/2011, 79. gr. 11. gr. Stimpilskyld skjöl, sem gefin eru út hér á landi, skulu stimpluð áður en tveir mánuðir eru liðnir frá útgáfudegi, nema eindagi sé fyrr, og þá fyrir eindaga. Ef aðilar hafa eigi undirritað samtímis telst fresturinn frá því er hinn fyrsti undirritaði. Stimpilskyld skjöl, sem gefin eru út erlendis, skal stimpla með sama fresti og innlend skjöl, talið frá þeim tíma er skjal kom hingað til lands, og skal sá, er stimpla lætur, votta á skjalið hvenær það var. [Ráðuneytið]1) getur lengt frest þennan ef sérstaklega stendur á. 1)L. 126/2011, 79. gr. 12. gr. [Opinberir starfsmenn, sem [ráðuneytið]1) felur stimplun skjala, eru skyldir til að stimpla skjöl, sem þeir gefa út eða afgreiða, án endurgjalds fyrir stimplunina. Bankar og sparisjóðir eru skyldir til að stimpla skjöl er um hendur þeirra fara. Skulu þeir inna stimplunina af hendi endurgjaldslaust. [Ráðuneytinu]1) er heimilt að veita einstökum mönnum, félögum eða stofnunum rétt til stimplunar skjala, enda sé fullnægt þeim skilyrðum um reikningshald, bókfærslu gjaldsins og aðra framkvæmd sem það kann að setja. Þeir aðilar, sem fengið hafa heimild [ráðuneytisins]1) til þess að staðfesta greiðslu stimpilgjalds á annan hátt en þann að líma stimpilmerki á skjal, sbr. 3. mgr. 10. gr., skulu gera viðkomandi innheimtumanni ríkissjóðs skil á innheimtu stimpilgjaldi fyrir 15. dag næsta mánaðar eftir að stimplunin á sér stað, nema öðruvísi kunni að vera sérstaklega ákveðið af [ráðuneytinu].1) Mánaðarlegum stimpilgjaldsskilum skal fylgja skýrsla um stimpilgjaldsinnheimtuna í því formi sem ráðherra ákveður. Skili þeir aðilar, sem um ræðir í 4. mgr. þessarar greinar, ekki innheimtu stimpilgjalda á gjalddaga skal þeim skylt að greiða dráttarvexti af hinni vangoldnu fjárhæð, talið frá og með gjalddaga. Dráttarvextir skulu vera þeir sömu og hjá innlánsstofnunum, sbr. 13. gr. laga nr. 10/19612) og ákvörðun Seðlabanka Íslands á hverjum tíma. [Ráðuneytið]1) setur nánari reglur um framkvæmd þessarar greinar.]3) 1)L. 126/2011, 79. gr.2)Nú l. 38/2001. 3)L. 82/1980, 2. gr. 13. gr. Þeir sem hafa á hendi stimplun skjala skulu gæta þess að hin stimpilskylda fjárhæð hvers skjals sé rétt tilgreind og geta krafist allra nauðsynlegra skýringa af hálfu þeirra er stimplunar beiðast. Sé sá sem stimplunar beiðist óánægður með ákvörðun gjaldsins getur hann skotið því undir úrskurð [ráðuneytisins]1) innan tveggja mánaða, en jafnan skal fylgja umsögn þess er ákvað gjaldið. Ef hlutaðeigandi vill eigi heldur una úrskurði ráðuneytisins getur hann lagt málið fyrir dómstóla. 1)L. 126/2011, 79. gr. 14. gr. Stimpilmerki eða aðra staðfestingu um greiðslu stimpilgjalds, sem færð hefur verið á fullgild skjöl, er óheimilt að má af þeim aftur. [Ráðuneytið]1) hefur þó heimild til að endurgreiða stimpilgjaldið eða hluta af því þegar skjal er ógilt með öllu að lögum eða eigi verður af því að það réttarástand skapist sem skjalið ráðgerði. Ef skjal er af vangá stimplað of hátt skal endurgreiða það sem ofborgað er. Endurgreiðslur samkvæmt þessari grein mega því aðeins fara fram að beiðni um þær hafi borist [ráðuneytinu]1) áður en tvö ár eru liðin frá útgáfu þess skjals sem beiðnin varðar. Heimilt er þó að víkja frá þessum fresti ef sérstaklega stendur á. Beiðni um endurgreiðslu skal að jafnaði fylgja frumrit þess skjals, sem beiðnin varðar, eða staðfest eftirrit af því. 1)L. 126/2011, 79. gr. 15. gr. Krafa ríkissjóðs um stimpilgjald fyrnist ekki nema svo sé ástatt að opinber starfsmaður eigi sök á því að eigi var stimplað. Fyrnist krafan þá á fjórum árum. Krafa til stimpilgjalds fellur enn fremur niður þegar liðin eru fimm ár frá þeim tíma er skjalið var með öllu úr gildi.
III.Um stimpilgjald einstakra skjala. 16. gr. [Fyrir stimplun afsalsbréfa fyrir fasteignum og skipum yfir 5 [brúttótonnum]1) skal greiða 4 kr. fyrir hvert byrjað þúsund af verði viðkomandi eignar. Sama gildir um afsöl við [aðfarargerðir, búskipti og nauðungarsölur]2) svo og önnur skjöl um afhendingu fasteigna og skipa, svo sem kaupsamninga, makaskiptabréf, gjafabréf og þau erfðafestubréf sem veita rétt til að selja eða veðsetja.]3) Þegar fasteign eða skip er afsalað hlutafélagi eða sameignarfélagi og eigandinn gerist eignaraðili að félaginu eða eykur eignarhlut sinn í því lækkar stimpilgjaldið í hlutfalli við eignarhluta hans í félaginu. Þegar fasteign eða skipi er úthlutað félagsmanni í hlutafélagi eða sameignarfélagi við félagsslit greiðist stimpilgjald að því marki sem eignarhluti hans í eigninni verður meiri en eignarhluti hans var í félaginu. [Ef fasteign eða skip er selt veðhafa við nauðungarsölu greiðist hálft gjald.]2) Útdrættir úr …4) embættisbókum eða vottorð embættismanna, félaga eða einstakra manna, er sýna eigendaskipti að fasteign eða skipi eða eru notuð sem afsöl, stimplast sem afsöl. [Undanskilin stimpilgjaldi eru þó]4) skjöl er sýna eignayfirfærslu fasteigna, er lagðar hafa verið út erfingjum sem arfur eða maka upp í búshelming hans, enda sé eigi samhliða um sölu eða um söluafsal að ræða. 1)L. 69/2008, 12. gr.2)L. 90/1991, 91. gr.3)L. 82/1980, 3. gr.4)L. 20/1991, 136. gr. 17. gr. Stimpilgjald af heimildarbréfum fyrir fasteignum telst eftir fasteignamati þeirra að leigulóð meðtalinni. Nú hefur fasteignamat ekki farið fram eða liggur ekki fyrir þegar bréf er stimplað og skal gjaldið þá teljast af áætluðu fasteignamatsverði. [Ráðuneytið]1) getur, að höfðu samráði við [Þjóðskrá Íslands],2) sett nánari reglur3) um áætlun slíks matsverðs. Ef áætlun matsverðs er sérstökum örðugleikum háð má miða við kaupverð eignar, teljist það sennilegt. Stimpilgjald af heimildarbréfum fyrir skipum telst eftir því kaupverði sem sett er á eignina í bréfunum, enda teljist það sennilegt, þó aldrei lægri fjárhæð en nemur áhvílandi veðskuldum. 1)L. 126/2011, 79. gr.2)L. 77/2010, 5. gr.3)Rgl. 622/2004. 18. gr. Þegar kaupsamningur er stimplaður er afsalsbréf til sama kaupanda stimpilfrjálst. 19. gr. Ef heimildarbréf er framselt ber að stimpla framsalið sem afsal. 20. gr. [Fyrir stimplun leigusamninga um jarðir og lóðir, heimildarskjala um veiðiréttindi og skjala sem leggja ítök, skyldur og kvaðir á annarra eign skal greiða 20 kr. fyrir hvert byrjað þúsund af áskilinni leigu eða endurgjaldi. Framsöl þessara réttinda eru stimpilskyld eftir sömu reglum. Erfðafestubréf, sem eigi veita heimild til að selja eða veðsetja, stimplast samkvæmt þessari grein.]1) 1)L. 82/1980, 4. gr. 21. gr. [[Fyrir stimplun hlutabréfa, sem gefin eru út af félögum með takmarkaða ábyrgð, skal greiða 1/2% af fjárhæð bréfanna.]1) Framsal hlutabréfa og jöfnunarhlutabréfa er stimpilfrjálst. Hlutabréf, sem gefin eru út í stað eldri hlutabréfa, er sannanlega hafa verið stimpluð, og jöfnunarhlutabréf, sem gefin eru út í samræmi við ákvæði laga um tekjuskatt …,2) skulu þó undanþegin gjaldi fyrir stimplun, enda beri hvert einstakt hlutabréf með sér að um endurútgefið bréf eða jöfnunarhlutabréf sé að ræða. Þeir, sem gjaldfrjálsrar stimplunar beiðast, skulu sýna fram á að þau hlutabréf, sem hin nýju hlutabréf leysa af hólmi, hafi verið úr gildi felld eða að viðkomandi útgáfa jöfnunarhlutabréfa hafi ekki í för með sér raunverulega verðmætisaukningu hlutafjár í viðkomandi félagi. Gjaldfrjáls stimplun skal fara fram áður en tveir mánuðir eru liðnir frá útgáfu hlutabréfa þeirra sem um ræðir í þessari málsgrein. Að öðrum kosti ber að innheimta stimpilgjald af þeim í samræmi við ákvæði 1. mgr. [Ráðuneytið]3) setur nánari reglur um framkvæmd þessarar greinar.]4) 1)L. 131/1989, 1. gr.2)L. 129/2004, 42. gr.3)L. 126/2011, 79. gr.4)L. 61/1982, 1. gr. 22. gr. Skilríki fyrir eignarhluta í félögum með takmarkaða ábyrgð, öðrum en hlutafélögum, skulu stimpluð á sama hátt og hlutabréf. Hið sama gildir um skilríki fyrir eignarhluta þeirra manna sem bera takmarkaða ábyrgð á skuldbindingum félags þar sem sumir félagsaðilar bera ótakmarkaða ábyrgð en aðrir takmarkaða (kommandit félög). 23. gr. Félagssamningar félaga með ótakmarkaðri ábyrgð skulu stimplaðir með 2% af því fé sem í félagið er lagt. Leggi félagi fram persónulega vinnu til félagsins, auk fjárframlags eða í stað þess, skal vinnan metin til samræmis við framlagt fé annarra félaga. Aldrei skal vinnuframlag þó metið lægra en fjárframlag þess félaga sem minnst fé leggur fram til félagsins. [Hljóði félagssamningur ekki um nein fjárframlög skal hann stimplaður með 100 kr.]1) Framsöl á réttindum í félögum, sem falla undir 22. og 23. gr., eru stimpilfrjáls. 1)L. 82/1980, 6. gr. 24. gr. [Fyrir stimplun skuldabréfa og tryggingarbréfa, þegar skuldin ber vexti og er tryggð með veði eða ábyrgð, skal greiða 15 kr. fyrir hvert byrjað þúsund af fjárhæð bréfs. [Sama gjald skal greiða fyrir stimplun aðfarargerða, kyrrsetningargerða og löggeymslu þegar endurritum úr gerðabók um þessar gerðir er þinglýst.]1) Fyrir stimplun annarra skuldabréfa og tryggingarbréfa skal greiða 5 kr. fyrir hvert byrjað þúsund af fjárhæð bréfs.]2) [Fyrir stimplun skuldabréfa og tryggingarbréfa vegna afurðalána með veði í framleiðsluvörum sjávarútvegs, landbúnaðar eða iðnaðar skal greiða 3 kr. fyrir hvert byrjað þúsund af fjárhæð bréfs.]3) 1)L. 168/2008, 1. gr.2)L. 82/1980, 7. gr.3)L. 5/1982, 15. gr. 25. gr. Ef veðréttur er stofnaður eða trygging er sett fyrir væntanlegri eða óákveðinni skuld skal reikna stimpilgjaldið eftir þeirri upphæð sem frekast er ætlast til að tryggja. 26. gr. Nú er skuld endurnýjuð með nýju bréfi og skal þá sá sem stimplun annast innheimta helming gjalds þess er í 24. gr. getur. Sé skuld færð yfir á nafn annars aðila greiðist ekkert stimpilgjald. 27. gr. [Fyrir stimplun víxla og samþykktra ávísana, nema tékka, skal greiða 0,25% af hverju byrjuðu þúsundi af fjárhæð skjalsins.]1) Endurnýjaður víxill telst nýr víxill. Ef skjal fullnægir eigi kröfum löggjafarinnar um víxla stimplast það sem skuldabréf. 1)L. 82/1980, 8. gr. 28. gr. Nú hljóðar víxill eða samþykkt ávísun um borgun í erlendri mynt og reiknast þá stimpilgjaldið eftir sölugengi þeirrar myntar hér á landi á þeim tíma er stimplun fer fram. [Sama á við um önnur stimpilskyld skjöl er kveða á um greiðslur í erlendri mynt.]1) 1)L. 82/1980, 9. gr. 29. gr. Framsal á skuld er stimpilfrjálst. 30. gr. Greiða skal stimpilgjald af vátryggingarsamningum. Ef vátryggingarskírteini er gefið út skal það stimplað, ella samningur, fyrsta greiðslukvittun eða annað skjal er vátrygginguna varðar. [Ráðherra]1) ákveður með reglugerð2) fjárhæð stimpilgjalds af einstökum tegundum vátrygginga. Skal stimpilgjald annaðhvort miðað við vátryggingarfjárhæð eða iðgjald. [Ráðuneytið]1) hefur heimild til þess að gera samninga við vátryggingarfélög um greiðslu stimpilgjalds á ákveðnum tímum gegn eftirliti sem ráðuneytið telur fullnægjandi. Enn fremur getur það veitt vátryggingarfélögum undanþágu frá því að framkvæma stimplun gegn annars konar tryggingu fyrir greiðslu stimpilgjalds. Loks getur það undanþegið einstakar tegundir vátrygginga stimpilgjaldi, ef sérstök ástæða þykir til. 1)L. 126/2011, 79. gr.2)Rg. 219/1978, sbr. 412/1984. 31. gr. [Fyrir stimplun kaupmála, sem gerðir eru á undan stofnun hjúskapar, skal greiða 50 kr. Fyrir stimplun kaupmála, sem gerðir eru síðar, skal greiða 4 kr. fyrir hvert byrjað þúsund þeirrar fjárhæðar sem verður séreign samkvæmt þeim. Verðmæti fasteigna skal í þessu sambandi metið samkvæmt ákvæðum 17. gr. en frá verði þeirra þannig ákvörðuðu má draga eftirstöðvar áhvílandi þinglýstra veðskulda. Frá veði annarra eigna má draga eftirstöðvar þinglýstra skulda er á þeim hvíla. Lágmarksgjald samkvæmt þessari málsgrein skal vera 50 kr.]1) 1)L. 82/1980, 10. gr.
[Ákvæði til bráðabirgða. I. Þar sem í 3. gr. er kveðið á um alþjóðleg viðskiptafélög skal það ákvæði ekki eiga við að því marki sem mismunur á skattgreiðslum alþjóðlegs viðskiptafélags, annars vegar eftir þeim sérákvæðum sem um slík félög gilda samkvæmt lögum nr. 29/1999, um breyting á lögum um álagningu skatta og gjalda vegna alþjóðlegra viðskiptafélaga, og hins vegar samkvæmt almennum skattalögum, fer yfir fjárhæð sem samsvarar 100.000 evrum á hverju þriggja ára tímabili að teknu tilliti til hvers konar annarrar ríkisaðstoðar. Fari mismunur á heildarskattgreiðslum yfir þau mörk gilda ákvæði almennra skattalaga um skattskyldu viðkomandi félags, frá því að farið er yfir mörkin. Ákvæði 1. mgr. á ekki við þegar starfsemi alþjóðlegs viðskiptafélags er alfarið utan gildissviðs EES-samningsins eins og það er skilgreint í bókun 3 við EES-samninginn. Skattstjóri skal hafa umsjón með því að ákvæði þessu sé framfylgt. [Ráðherra]1) er heimilt að setja reglugerð sem kveður nánar á um framkvæmd þessa ákvæðis.]2) 1)L. 126/2011, 79. gr.2)L. 79/2006, 3. gr. [II. Þrátt fyrir ákvæði 8. og 24. gr. laganna skulu skjöl, sem gefin eru út á tímabilinu frá og með 7. október 2008 til og með [31. desember 2012]1) og fela í sér breytingar á skilmálum á fasteignaveðskuldabréfum einstaklinga, eða ný veðskuldabréf, sem gefin eru út til uppgreiðslu vanskila á fasteignaveðskuldabréfum einstaklinga, vera undanþegin greiðslu stimpilgjalds að því tilskildu að sömu aðilar séu að fasteignaveðskuldabréfinu og hinu nýja skjali. [Undanþágan á ekki við þegar skilmálabreyting verður til þess að skjalið uppfyllir skilyrði 1. málsl. 1. mgr. 24. gr. laganna.]2)]3) 1)L. 164/2011, 32. gr.2)L. 130/2009, 10. gr.3)L. 132/2008, 1. gr. [III. Þrátt fyrir ákvæði 24. og 26. gr. laganna skal, þegar fasteignaveðskuldabréf einstaklings er, á tímabilinu frá og með 7. október 2008 til og með [31. desember 2012],1) endurnýjað með nýju fasteignaveðskuldabréfi sem kemur í stað þess eldra, ekki greiða stimpilgjald af þeim hluta nýja fasteignaveðskuldabréfsins sem svarar til uppreiknaðs virðis eldra fasteignaveðskuldabréfsins ásamt vanskilum. Er ákvæði þetta óháð því hvort um nýjan kröfuhafa er að ræða samkvæmt hinu nýja fasteignaveðskuldabréfi.]2) 1)L. 164/2011, 32. gr.2)L. 132/2008, 1. gr. [IV. Þrátt fyrir ákvæði 24. og 26. gr. laganna skal ekki greiða stimpilgjald af þeim kröfuhafaskiptum á fasteignaveðskuldabréfum sem til koma ef Íbúðalánasjóður nýtir þá heimild sem honum er veitt í V. kafla laga nr. 125/2008, um heimild til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði o.fl., til að kaupa skuldabréf fjármálafyrirtækja sem tryggð eru með veði í íbúðarhúsnæði.]1) 1)L. 132/2008, 1. gr. [V. Þrátt fyrir ákvæði 8. og 24. gr. laganna skulu skjöl sem gefin eru út á tímabilinu frá og með 1. desember 2009 til og með [31. desember 2012]1) og fela í sér breytingar á skilmálum á bílalánum einstaklinga vera undanþegin greiðslu stimpilgjalds, að því tilskildu að sömu aðilar séu að bílaláninu og hinu nýja skjali.]2) 1)L. 164/2011, 32. gr.2)L. 130/2009, 12. gr. [VI. Þrátt fyrir ákvæði 24. og 26. gr. laganna skal, þegar bílalán einstaklings er, á tímabilinu frá og með 1. desember 2009 til og með [31. desember 2012],1) endurnýjað með nýju bílaláni sem kemur í stað þess eldra, ekki greiða stimpilgjald af þeim hluta nýja bílalánsins sem svarar til uppreiknaðs virðis eldra bílalánsins ásamt vanskilum. Er ákvæði þetta óháð því hvort um nýjan kröfuhafa er að ræða samkvæmt hinu nýja bílaláni.]2) 1)L. 164/2011, 32. gr.2)L. 49/2010, 1. gr.