Lagasafn. Íslensk lög 1. janúar 2012. Útgáfa 140a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að fullgilda fyrir Íslands hönd samning milli Lýðveldisins Íslands og Sambandslýðveldisins Þýskalands um gagnkvæma aðstoð í tollamálum
Tóku gildi 6. júní 1978. 1. gr. Ríkisstjórninni er heimilt að fullgilda fyrir Íslands hönd samning milli Lýðveldisins Íslands og Sambandslýðveldisins Þýskalands um gagnkvæma aðstoð í tollamálum sem undirritaður var í Bonn 11. október 1977. Samningurinn er prentaður sem fylgiskjal með lögum þessum.1) 1)Sjá Stjtíð. A 1978, bls. 221–228. 2. gr. Þegar samningurinn hefur verið fullgiltur skulu ákvæði hans hafa lagagildi hér á landi.1) 1)Augl. C 9/1978. 3. gr. Ráðherra setur nánari reglur um framkvæmd laga þessara.