Lagasafn.  Íslensk lög 1. maí 2013.  Útgáfa 141b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um sinubrennur og meðferð elds á víðavangi1)

1992 nr. 61 1. júní

   1)Lögunum var breytt með l. 60/2013, 95. gr. Breytingarnar taka gildi 1. janúar 2014 skv. 94. gr. s.l.
Ferill málsins á Alþingi.   Frumvarp til laga.

Tóku gildi 22. júní 1992. Breytt með l. 73/1996 (tóku gildi 19. júní 1996), l. 44/1999 (tóku gildi 1. júlí 1999), l. 164/2002 (tóku gildi 1. jan. 2003), l. 24/2007 (tóku gildi 29. mars 2007), l. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008), l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011) og l. 60/2013 (taka gildi 1. jan. 2014).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við umhverfis- og auðlindaráðherra eða umhverfis- og auðlindaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.

1. gr. Óheimilt er að brenna sinu nema á jörðum sem eru í ábúð eða nýttar af ábúendum lögbýla og þá samkvæmt leyfi sýslumanns, [að höfðu samráði við lögreglustjóra],1) og að fylgt sé ákvæðum í reglugerð, sbr. 4. gr.
   1)
L. 24/2007, 9. gr.
2. gr. Aldrei má brenna sinu þar sem almannahætta stafar af eða tjón getur hlotist af á náttúruminjum, fuglalífi, mosa, lyng- eða trjágróðri og mannvirkjum.
3. gr. Ábúendur jarða geta einir fengið leyfi til að brenna sinu á jörðum, sbr. 1. gr., enda sé það gert fyrir 1. maí ár hvert að uppfylltum skilyrðum í reglugerð, sbr. 4. gr. Eftir þann tíma er hvarvetna óheimilt að brenna sinu. Þó getur sýslumaður, að höfðu samráði við [ráðuneytið],1) ákveðið aðra dagsetningu ef sérstakar veðurfarslegar ástæður gefa tilefni til.
   1)
L. 126/2011, 168. gr.
4. gr. Í reglugerð,1) sem [ráðherra]2) setur að fenginni umsögn [Bændasamtaka Íslands]3) og [Umhverfisstofnunar],4) skal mælt fyrir um hver skilyrði ábúanda, sbr. 3. gr., skuli sett, m.a. um skyldu til að tilkynna hlutaðeigandi slökkviliðsstjóra, eftirlit með brennu og annað sem nauðsynlegt þykir.
   1)
Rg. 157/1993, sbr. 273/1994. 2)L. 126/2011, 168. gr. 3)L. 73/1996, 27. gr. 4)L. 164/2002, 24. gr.
5. gr. Óheimilt er að kveikja eld á víðavangi þar sem almannahætta getur stafað af eða hætt er gróðri, dýralífi eða mannvirkjum.
Skylt er hverjum þeim sem ferðast um að gæta ýtrustu varkárni í meðferð elds.
Sá sem verður þess var að eldur er laus á víðavangi skal svo fljótt sem auðið er gera aðvart umráðamanni lands eða hlutaðeigandi yfirvaldi.
6. gr. Sá sem veldur tjóni með sinubrennu eða meðferð elds á víðavangi þannig að saknæmt sé ber fébótaábyrgð á því tjóni sem af hlýst.
7. gr.1)
   1)
L. 88/2008, 233. gr.
8. gr. Brot gegn ákvæðum laga þessara varða sektum.
9. gr. Lög þessi öðlast gildi þegar í stað