Tóku gildi 1. janúar 1994.EES-samningurinn: V. og VIII. viðauki tilskipun 64/221/EBE, V. viðauki tilskipun 68/360/EBE, V. viðauki reglugerð 1612/68 og 1251/70, VIII. viðauki tilskipun 73/148/EBE og 75/34/EBE, V. viðauki tilskipun 77/486/EBE, VIII. viðauki tilskipun 90/364/EBE, 90/365/EBE og 90/366/EBE. Breytt meðl. 90/1995 (tóku gildi 30. júní 1995; EES-samningurinn: V. viðauki reglugerð 1612/68), l. 76/2002 (tóku gildi 17. maí 2002), l. 19/2004 (tóku gildi 1. maí 2004), l. 21/2006 (tóku gildi 1. maí 2006), l. 106/2007 (tóku gildi 27. júní 2007), l. 78/2008 (tóku gildi 1. ágúst 2008; EES-samningurinn: V. viðauki tilskipun 2004/38/EB), l. 154/2008 (tóku gildi 31. des. 2008), l. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011) og l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
1. gr. Ákvæði reglugerðar um frelsi launþega til flutninga innan Evrópska efnahagssvæðisins nr. 1612/68/EBE, [sbr. reglugerðir nr. 312/76/EBE og nr. 2434/92/EBE]1) [og tilskipun 2004/38/EB],2) eins og henni var breytt með ákvæðum samningsins um Evrópskt efnahagssvæði, skulu hafa lagagildi hér á landi. Reglugerðin, eins og hún hefur verið aðlöguð, sbr. 1. mgr., er prentuð sem fylgiskjal með lögum þessum. [Ákvæði II. og III. bálks I. hluta fylgiskjalsins skulu enn fremur gilda um ríkisborgara aðildarríkja stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu.]3) 1)L. 90/1995, 1. gr.2)L. 78/2008, 18. gr.3)L. 76/2002, 3. gr. [1. gr. a. Aðstandandi ríkisborgara EES-ríkis eða EFTA-ríkis sem dvelur löglega hér á landi á rétt til að ráða sig til starfa eða að starfa sem sjálfstætt starfandi einstaklingur á íslenskum vinnumarkaði óháð þjóðerni. Aðstandendur ríkisborgara EES-ríkis eða EFTA-ríkis skv. 1. mgr. eru:
a. maki, sambúðarmaki eða samvistarmaki, b. niðji hans og/eða maka hans, ef niðjinn er yngri en 21 árs eða á þeirra framfæri, c. ættmenni hans eða maka hans, í beinan legg, sem er á framfæri þeirra.]1) 1)L. 78/2008, 19. gr. 2. gr. [Ráðherra]1) skal skipa þriggja manna nefnd til að hafa eftirlit með framkvæmd þessara laga og getur hún beint tilmælum til viðkomandi aðila þar að lútandi. Alþýðusamband Íslands skal tilnefna einn fulltrúa, Vinnuveitendasamband Íslands annan fulltrúa og þriðji fulltrúinn skal skipaður án tilnefningar og skal hann vera formaður. Varamenn skulu skipaðir á sama hátt. Skipunartími nefndar skal vera fjögur ár. Komi upp ágreiningur um hvort ákvæði 7. gr. reglugerðar 1612/68 séu haldin er heimilt að vísa þeim ágreiningi til nefndarinnar, sbr. 1. mgr., sem leitast skal við að leysa þann ágreining. Í þessum tilgangi getur nefndin leitað eftir upplýsingum hjá stofnunum, samtökum eða einstökum fyrirtækjum sem veita nefndinni nauðsynlegar upplýsingar um almenn ráðningar- og starfskjör í atvinnugreinum og fyrirtækjum. Verði sátt eigi komið á með aðilum er heimilt að leita til dómstóla. Þegar nefndin fjallar um mál sem varðar sérstaklega opinbera starfsmenn er falla undir atvinnu- og búseturéttindi Evrópska efnahagssvæðisins skulu auk fulltrúa skv. 1. mgr. tveir fulltrúar taka sæti í nefndinni. Skal annar þeirra tilnefndur af hlutaðeigandi heildarsamtökum opinberra starfsmanna og hinn af [ráðherra er fer með starfsmannamál ríkisins]1) eða Sambandi íslenskra sveitarfélaga eftir því sem við á. Þegar nefndin fjallar um mál sem varða sérstaklega önnur heildarsamtök launþega eða atvinnurekenda en þau sem kveðið er á um í 1. og 3. mgr. skulu fulltrúar þeirra samtaka taka sæti í nefndinni. 1)L. 126/2011, 177. gr. 3. gr. Ráðherra getur með reglugerð gefið nánari fyrirmæli um framkvæmd eftirlits skv. 2. gr. 4. gr. Lög þessi öðlast gildi um leið og samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið öðlast gildi að því er Ísland varðar. [Ákvæði til bráðabirgða. I. [Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. reglugerðar ráðsins (EBE) nr. 1612/68, um frelsi launþega til flutninga innan bandalagsins, ásamt síðari breytingum, að því er varðar atvinnu- og búseturétt ríkisborgara Eistlands, Lettlands, Litháens, Póllands, Slóvakíu, Slóveníu, Tékklands og Ungverjalands, skal atvinnurekandi sem hefur ráðið þá til starfa tilkynna um það til Vinnumálastofnunar fram til 1. maí 2009 samkvæmt bráðabirgðaákvæði laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum. Hið sama gildir um aðstandendur þessara ríkisborgara skv. [1. gr. a laganna]1) á tímabilinu.]2)]3) 1)L. 78/2008, 20. gr.2)L. 21/2006, 1. gr.3)L. 19/2004, 1. gr. [II. Ákvæði 1.–6. gr. reglugerðar ráðsins (EBE) nr. 1612/68, um frelsi launþega til flutninga innan bandalagsins, ásamt síðari breytingum, taka þó ekki gildi um atvinnu- og búseturétt ríkisborgara Búlgaríu og Rúmeníu fyrr en [1. janúar 2012].1) Hið sama gildir um aðstandendur þessara ríkisborgara skv. [1. gr. a laganna].2)]3) 1)L. 154/2008, 1. gr.2)L. 78/2008, 21. gr.3)L. 106/2007, 3. gr.
Fylgiskjal.1) 1)L. 78/2008, 22. gr. Ákvæði reglugerðar um frelsi launþega til flutninga innan Evrópska efnahagssvæðisins nr. 1612/68/EBE, eins og henni er breytt með reglugerðum nr. 312/76/EBE og nr. 2434/92/EBE og tilskipun 2004/38/EB, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af V. viðauka, bókun 1 við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið og öðrum ákvæðum hans.* *Aðlögun reglugerðarinnar er með fyrirvara um framkvæmd EFTA-ríkjanna á einstökum þáttum hennar, sbr. t.d. d-lið 4. tölul. bókunar 1.
II. bálkur.Atvinna og jafnræði við málsmeðferð. 7. gr. 1. Ekki er heimilt að láta launþega, sem er ríkisborgari annars EES-ríkis en þess sem hann starfar í, gjalda þjóðernis síns hvað viðvíkur ráðningar- og vinnuskilyrðum, einkum og sér í lagi hvað varðar launakjör, uppsögn úr starfi og, komi til atvinnumissis, endurskipun eða endurráðningu. 2. Hann skal njóta sömu félagslegra réttinda og skattaívilnana og innlendir launþegar. 3. Hann skal einnig í krafti sama réttar og með sömu skilyrðum hafa sama aðgang og innlendir launþegar að þjálfun í skólum er tengjast atvinnulífinu og endurmenntunarstöðvum. 4. Öll ákvæði í kjarasamningum eða ráðningarsamningum eða öðrum almennum reglugerðum sem varða aðgang að atvinnu og öll önnur starfsskilyrði eða uppsagnarákvæði eru ógild og að engu hafandi að svo miklu leyti sem þau mæla fyrir um eða heimila mismunun launþega sem eru ríkisborgarar annarra EES-ríkja. 8. gr. Launþegi, sem er ríkisborgari EES-ríkis og starfar á yfirráðasvæði annars EES-ríkis, skal njóta jafnræðis við málsmeðferð hvað varðar aðild að stéttarfélögum og njóta þess réttar er hún veitir, að meðtöldum réttinum til að greiða atkvæði og til að gegna stjórnar- og stjórnunarstörfum fyrir stéttarfélagið;1) það má meina honum að eiga sæti í stjórn nefnda sem lúta ríkisrétti eða að gegna stöðu sem er bundin af ríkisrétti. Enn fremur á hann rétt á að taka sæti í fulltrúaráði launþega við fyrirtæki. Ákvæði þessarar greinar skulu ekki hafa áhrif á lög eða reglugerðir í tilteknum EES-ríkjum sem veita launþegum sem koma frá öðrum EES-ríkjum meiri rétt. 1)Rg. 312/76/EBE. 9. gr. 1. Launþegi sem er ríkisborgari EES-ríkis og starfar á yfirráðasvæði annars EES-ríkis skal njóta allra sömu réttinda og ívilnana og innlendir launþegar hvað viðvíkur húsnæði; það á einnig við um eignarrétt á húsnæði sem hann þarf á að halda. 2. Slíkur launþegi getur, með sama rétti og innlendir ríkisborgarar, látið skrá sig hjá húsnæðismiðlun á því svæði þar sem hann starfar, fari slík skráning fram, og skal hann njóta viðeigandi ívilnana og forréttinda. Hafi fjölskylda hans orðið eftir í landinu sem hann kom frá skal einnig tekið tillit til hennar í þessu sambandi eins og hún væri búsett á viðkomandi svæði, að því tilskildu að innlendir launþegar njóti svipaðra fríðinda.
III. bálkur.Fjölskyldur launþega. 10. gr.1) … 11. gr.1) … 1)Tilsk. 2004/38/EB. 12. gr. Börn ríkisborgara EES-ríkis, sem er eða hefur verið ráðinn til vinnu á yfirráðasvæði annars EES-ríkis, skulu eiga rétt á almennri skólagöngu í því ríki, námsvist og starfsþjálfunarnámskeiðum með sömu skilyrðum og ríkisborgarar þess ríkis, að því tilskildu að börnin búi þar. EES-ríkin skulu leggja sig fram um að gera þessum börnum kleift að stunda námið við ákjósanlegustu skilyrði.
II. hluti.Atvinnuframboð og atvinnuumsóknir. I. bálkur.Samvinna á milli EFTA-ríkja og við fastanefnd EFTA. 13. gr. 1. EFTA-ríkin eða fastanefnd EFTA skulu stofna til eða í sameiningu gera hverjar þær kannanir á atvinnutækifærum eða atvinnuleysi sem þau telja nauðsynlegar til að tryggja frelsi launþega til flutninga innan EES. Aðalvinnumiðlanirnar í EFTA-ríkjunum skulu eiga náið samstarf sín á milli og við fastanefnd EFTA með það að markmiði að hafa samráð um ráðningu í lausar stöður og meðferð atvinnuumsókna innan EES og yfirlit um hverjir hljóta stöður. 2. Í þessu skyni skulu EFTA-ríkin tilnefna sérstakar þjónustuskrifstofur og ber þeim að skipuleggja þá starfsemi sem að ofan er getið og hafa samráð sín á milli og við fastanefnd EFTA. EFTA-ríkjunum ber að tilkynna fastanefnd EFTA um allar breytingar sem verða á tilnefningu aðila til slíkrar þjónustu og skal fastanefnd EFTA birta nákvæmar upplýsingar um þær í EES-deild Stjórnartíðinda Evrópubandalagsins. 14. gr. 1. EFTA-ríkin skulu senda fastanefnd EFTA og eftirlitsstofnun EFTA upplýsingar um vandamál sem upp kunna að koma í sambandi við frelsi til flutninga og atvinnumál launþega og nákvæmt yfirlit yfir stöðu og þróun atvinnulífs.1) 2. Fastanefnd EFTA skal, að teknu fyllsta tilliti til álits umsjónarnefndarinnar, ákvarða með hvaða hætti upplýsingarnar, sem um getur í 1. mgr., skuli settar fram. 3. Í samræmi við þær starfsaðferðir, sem fastanefnd EFTA ákveður að teknu fyllsta tilliti til álits umsjónarnefndarinnar,1) skal þjónustuskrifstofa hvers EFTA-ríkis senda til þjónustuskrifstofa hinna EFTA-ríkjanna og til fastanefndar EFTA upplýsingar um lífskjör og vinnuskilyrði og ástand vinnumarkaðar sem líklegar eru til að koma launþegum frá öðrum EFTA-ríkjum að gagni. Upplýsingarnar skal endurskoða reglulega. Þjónustuskrifstofurnar í hinum EFTA-ríkjunum skulu tryggja að slíkar upplýsingar séu vel kynntar, m.a. með því að dreifa þeim á meðal viðeigandi vinnumiðlana og koma þeim á framfæri með öllum tiltækum ráðum við þá launþega sem hlut eiga að máli. 1)Rg. 2434/92/EBE.
III. bálkur.Leiðir til að hafa eftirlit með jafnvægi á vinnumarkaðinum. 19. gr. 1. Á grundvelli skýrslu frá fastanefnd EFTA, sem unnin er úr upplýsingum frá EFTA- ríkjunum, skulu EFTA-ríkin og fastanefnd EFTA kanna sameiginlega minnst einu sinni á ári árangur aðgerða EES vegna lausra starfa og atvinnuumsókna.1) 2. EES-ríkin skulu ásamt fastanefnd EFTA kanna öll tiltæk ráð til að veita ríkisborgurum aðildarríkjanna forgang þegar ráðið er í lausar stöður til að leitast við að koma á jafnvægi milli framboðs og umsókna um störf innan EES. Þau skulu beita öllum tiltækum ráðum í þessu skyni. 3. Annað hvert ár skal fastanefnd EFTA leggja fram skýrslu um framkvæmd II. hluta þessarar reglugerðar þar sem gerð er grein fyrir þeim upplýsingum sem hafa borist og niðurstöðum athugana og rannsókna sem hafa farið fram með sérstakri áherslu á gagnlegar upplýsingar er varða þróun vinnumarkaðarins á Evrópska efnahagssvæðinu.1) 1)Rg. 2434/92/EBE. 20. gr.1) … 1)Rg. 2434/92/EBE.
IV. bálkur.Evrópska samráðsskrifstofan.1) 1)Af hálfu EFTA-ríkjanna skal fastanefnd EFTA sinna þessu hlutverki innan EES. 21. gr. Evrópska skrifstofan, sem samræmir ráðstafanir vegna atvinnutækifæra og atvinnuumsókna og stofnuð var á vegum framkvæmdastjórnarinnar (í þessari reglugerð nefnd „evrópska samráðsskrifstofan“), skal almennt gegna því hlutverki að miðla upplýsingum um atvinnutækifæri innan bandalagsins. Hún skal einkum bera ábyrgð á öllum formsatriðum er varða þennan málaflokk sem samkvæmt ákvæðum þessarar reglugerðar falla undir framkvæmdastjórnina og ekki síst aðstoða innlendar vinnumiðlanir. Henni ber að taka saman þær upplýsingar sem um getur í 14. og 15. gr. ásamt niðurstöðum kannana og rannsókna sem gerðar eru skv. 13. gr. í því skyni að varpa ljósi á gagnlegar staðreyndir um fyrirsjáanlega þróun á vinnumarkaði bandalagsins. Slíkum staðreyndum skal komið á framfæri við þjónustuskrifstofur aðildarríkjanna og við ráðgjafar- og umsjónarnefndirnar. 22. gr. 1. Evrópska samráðsskrifstofan skal einkum sjá um að:
a. samræma þær aðferðir sem þörf er á til að manna laus störf innan bandalagsins og hafa yfirlit yfir þá flutninga launþega sem af hljótast; b. vinna að þessum markmiðum með því að stuðla að því í samvinnu við umsjónarnefndina að sambærilegar aðferðir séu notaðar bæði á stjórnunar- og framkvæmdastigi; c. safna saman þegar sérstaka nauðsyn ber til í samvinnu við þjónustuskrifstofurnar upplýsingum um laus störf og atvinnuumsóknum svo að unnt sé að ráðstafa þeim hjá þjónustuskrifstofunum. 2. Henni ber að tilkynna þjónustuskrifstofunum um laus störf og atvinnuumsóknir sem sendar hafa verið beint til framkvæmdastjórnarinnar og fá upplýsingar um viðbrögð við þeim. 23. gr. Framkvæmdastjórnin getur, í samvinnu við lögbært yfirvald í hverju aðildarríki fyrir sig og í samræmi við þá skilmála og þær aðferðir sem hún skal ákveða á grundvelli álitsgerðar umsjónarnefndarinnar, skipulagt heimsóknir og verkefni fyrir embættismenn annarra aðildarríkja og einnig framhaldsnámskeið fyrir sérmenntað starfsfólk.
IV. hluti.Bráðabirgða- og lokaákvæði. I. bálkur.Bráðabirgðaákvæði. 38. gr. Þar til fastanefnd EFTA hefur komið á samræmda heildarkerfinu sem greint er frá í 2. mgr. 15. gr. skal samráðsskrifstofan koma með tillögur um leiðir sem líklegar eru til að koma að haldi við að semja og dreifa skýrslunum sem getið er í 1. mgr. 15. gr. 39. gr. Reglur ráðgjafar- og umsjónarnefndarinnar um málsmeðferð, sem eru í gildi við gildistöku þessarar reglugerðar, eiga áfram við. 40. gr. … 41. gr. …
II. bálkur.Lokaákvæði. 42. gr. 1. [1. mgr. gildir ekki.] Engu að síður skal þessi reglugerð ná til þeirra hópa launþega sem um getur í fyrstu undirgrein og til aðstandenda þeirra, að svo miklu leyti sem réttarstaða þeirra ræðst ekki af ofangreindum sáttmálum eða ráðstöfunum. 2. Reglugerð þessi skal ekki hafa áhrif á ráðstafanir sem gripið er til skv. 29. gr. EES-samningsins. 3. Reglugerð þessi skal ekki hafa áhrif á skuldbindingar EES-ríkjanna vegna:
– sérstakra sambanda eða komandi samninga við tiltekin lönd eða yfirráðasvæði utan Evrópu er byggjast á tengslum milli stofnana sem eru til staðar við gildistöku þessarar reglugerðar eða – samninga sem eru í gildi við gildistöku þessarar reglugerðar við tiltekin lönd eða yfirráðasvæði utan Evrópu er byggjast á tengslum milli stofnana þeirra. Launþegar frá slíkum löndum eða yfirráðasvæðum, sem í samræmi við þetta ákvæði stunda vinnu á yfirráðasvæði einhvers þessara EES-ríkja, geta ekki borið fyrir sig eða notið ákvæða þessarar reglugerðar á yfirráðasvæðum hinna EES-ríkjanna. 43. gr. EFTA-ríkin skulu í upplýsingaskyni senda fastanefnd EFTA texta samkomulags, samninga eða samþykkta sem þau hafa gert sín á milli varðandi launþega á tímabilinu frá undirritun þeirra til gildistöku. 44. gr. Framkvæmdastjórnin skal gera tilheyrandi ráðstafanir samkvæmt þessari reglugerð svo að hún komist til framkvæmdar. Hún skal í þessu skyni eiga náið samstarf við opinber stjórnvöld í aðildarríkjunum. 45. gr. Framkvæmdastjórnin skal koma til ráðsins tillögum sem miða að því að afnema í samræmi við skilmála sáttmálans takmarkanir á aðgangi launþega sem eru ríkisborgarar aðildarríkjanna að vinnumarkaðinum í þeim tilvikum þar sem skortur á gagnkvæmri viðurkenningu á prófskírteinum, vottorðum eða öðrum vitnisburði um formlega menntun og hæfi getur hindrað frelsi launþega til flutninga. 46. gr. Stjórnsýsluútgjöld nefndanna, sem um getur í III. hluta, skulu talin með í þeim hluta fjárhagsáætlunar Evrópubandalagsins sem tilheyrir framkvæmdastjórninni. 47. gr. Reglugerð þessi gildir fyrir yfirráðasvæði aðildarríkjanna og ríkisborgara þeirra, sbr. þó 2., 3., 10. og 11. gr. 48. gr. …