Tóku gildi 1. janúar 1999.Breytt meðl. 72/2003 (tóku gildi 10. apríl 2003), l. 49/2004 (tóku gildi 14. júní 2004), l. 76/2005 (tóku gildi 1. jan. 2006), l. 167/2007 (tóku gildi 1. jan. 2008), l. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008), l. 173/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 20. gr.), l. 143/2009 (tóku gildi 1. mars 2010 nema II.–IV. kafli sem tóku gildi 1. nóv. 2011 (utan 43. gr. í IV. kafla sem tók gildi 1. mars 2010) og 54. og 55. gr. og 9. efnismgr. 63. gr. sem tóku gildi 1. mars 2011; EES-samningurinn: I. og II. viðauki reglugerð 178/2002) og l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
I. kafli.Almenn ákvæði. 1. gr. Lög þessi taka til hvers þess dýralæknis sem er skipaður, settur eða ráðinn til starfa í þágu ríkisins og þeirra dýralækna sem starfa samkvæmt leyfi þar að lútandi sem veitt er eftir lögum þessum. 2. gr. Dýralæknar skulu standa vörð um heilsu dýra í landinu, stuðla að bættu heilsufari þeirra, aukinni arðsemi búfjár og góðum aðbúnaði og meðferð dýra. Þeir skulu vera á verði gagnvart því að einstaklingar eða samfélagið í heild bíði tjón af völdum dýrasjúkdóma. Með starfi sínu skulu þeir leitast við að girða fyrir hættur sem stafað geta af sjúkum dýrum og neyslu spilltra búfjárafurða, af innflutningi lifandi dýra og búfjárafurða, efna, áhalda eða hluta sem borið geta með sér smitefni.
III. kafli.Réttindi og skyldur. 6. gr. [Dýralæknar samkvæmt lögum þessum eru þeir dýralæknar er lokið hafa prófi frá dýralæknaháskóla sem er viðurkenndur af íslenskum stjórnvöldum. Jafnframt teljast þeir dýralæknar sem heimild hafa til að starfa hér á landi undir starfsheiti heimalands síns í samræmi við reglur Evrópska efnahagssvæðisins eða stofnsamning Fríverslunarsamtaka Evrópu. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra setur nánari reglur um leyfisveitingu, menntunarkröfur og viðurkenndar menntastofnanir. Ef um er að ræða próf frá dýralæknaháskóla sem er utan Evrópska efnahagssvæðisins og Sviss skal leita umsagnar dýralæknaráðs áður en leyfi er veitt samkvæmt lögunum.]1) Þeir einir mega stunda dýralækningar hér á landi sem hlotið hafa leyfi [ráðherra]2) samkvæmt ákvæðum sem ráðherra setur í reglugerð að fenginni umsögn [Matvælastofnunar].3) [Ráðherra]2) gefur út leyfisbréf handa dýralækni til að stunda dýralækningar og dýralæknir undirritar eiðstaf þar að lútandi. [Matvælastofnun]3) heldur skrá yfir dýralækna sem hafa leyfi til að stunda dýralækningar. Dýralækni er skylt að tilkynna [Matvælastofnun]:3) 1. þegar hann hyggst hefja dýralæknisstörf og aðsetur starfsemi sinnar, 2. flutning aðseturs, 3. starfslok sem dýralæknir. Dýralæknum, sem hefja störf á Íslandi, ber að kynna sér íslensk lög og reglur um dýralækningar og þeir sem starfa í opinberri þjónustu skulu hafa vald á íslenskri tungu. Heimilt er að fela dýralæknanemum á síðari hluta námsferils að gegna tímabundið ákveðnum dýralæknisstörfum undir stjórn dýralæknis ef [Matvælastofnun]3) mælir með því. 1)L. 143/2009, 36. gr.2)L. 126/2011, 272. gr.3)L. 167/2007, 63. gr. 7. gr. Eingöngu þeir dýralæknar sem hafa leyfi til að stunda dýralækningar mega framkvæma læknisaðgerðir á dýrum. Undanþegnar eru þó minni háttar aðgerðir og lyfjameðferð í samráði við dýralækni. 8. gr. Dýralækni er einungis heimilt að afhenda eða ávísa lyfseðilsskyldum lyfjum handa dýri þegar hann hefur greint sjúkdóminn. 9. gr. Dýralækni ber að sinna störfum sínum af árvekni og trúmennsku og halda við þekkingu sinni. Dýralæknir ber ábyrgð á greiningu sjúkdóms og meðferð sjúklinga sinna. Dýralækni ber sem kostur er að upplýsa eiganda eða umráðamann dýrs sem hann fær til meðferðar um ástand, meðferð, horfur og væntanlegan kostnað af meðhöndlun og lyfjameðferð sé þess óskað. Einnig skal hann upplýsa eiganda eða umráðamann um þær hættur sem geta fylgt viðkomandi aðgerð, algengar aukaverkanir lyfja sem notuð eru og lyfjamengun afurða. Dýralækni ber, sé til hans leitað eða hann nærstaddur og náist ekki í vakthafandi dýralækni, að veita fyrstu nauðsynlega læknishjálp í skyndilegum sjúkdóms- eða slysatilfellum, nema þeim mun alvarlegri forföll hamli. Dýralæknar, sem stunda almennar dýralækningar, eiga rétt á og þeim ber skylda til að taka þátt í vaktafyrirkomulagi sem skipulagt er á viðkomandi vaktsvæði, sbr. 12. gr., nema þeir séu sjálfir sjúkir eða hindraðir af öðrum meira aðkallandi embættisstörfum. Dýralækni er heimilt að semja við annan dýralækni um að taka við vaktskyldunni. Verði dýralæknir var við eða hafi hann grun um að upp sé kominn alvarlegur smitsjúkdómur í dýrum á starfssvæði hans skal hann gera nauðsynlegar bráðabirgðaráðstafanir til að staðfesta gruninn, hefta útbreiðslu sjúkdómsins og koma í veg fyrir tjón sem af honum getur leitt. [Hann skal tafarlaust tilkynna [Matvælastofnun]1) um sjúkdóminn og gera í samráði við stofnunina ráðstafanir sem þurfa þykir.]2) Dýralækni ber að gera árlega skýrslu um læknisstörf sín og senda [Matvælastofnun].1) [Matvælastofnun]1) setur reglur um hvaða upplýsingar skýrslurnar skuli geyma. Dýralækni ber að sýna nákvæmni í útgáfu vottorða og læknisyfirlýsinga. Hann er bundinn þagnarskyldu um þá vitneskju sem hann öðlast í starfi sínu og honum er trúað fyrir og varðar ekki almannaheill. Dýralækni er einungis heimilt að auglýsa læknisstarfsemi sína með efnislegum og látlausum auglýsingum. 1)L. 167/2007, 63. gr.2)L. 76/2005, 3. gr. 10. gr. [Dýralæknir hefur leyfi til að kalla sig sérfræðing og starfa sem slíkur hér á landi hafi hann fengið til þess leyfi [ráðherra],1) fengið viðurkenningu til að starfa sem sérfræðingur í ríki sem er aðili að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið eða í aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu. Umsóknir um sérfræðingsleyfi skulu lagðar fyrir dýralæknaráð til umsagnar þegar menntunar er aflað utan Evrópska efnahagssvæðisins eða utan aðildarríkja stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu. Við afgreiðslu einstakra umsókna er heimilt að kveðja til sérfróðan dýralækni úr þeirri sérgrein sem sótt er um viðurkenningu á.]2) 1)L. 126/2011, 272. gr.2)L. 72/2003, 33. gr.
V. kafli.Sérgreinadýralæknar. 14. gr. [Matvælastofnun skal eftir þörfum ráða sérgreinadýralækna til að sinna verkefnum m.a. á sviði sóttvarna, dýravelferðar, dýralyfja, dýraheilbrigðis og heilbrigðis dýraafurða. Sérgreinadýralæknar skulu vinna að bættu heilbrigði búfjár og sjúkdómavörnum með sértækum aðgerðum, almennri fræðslu, forvarnastarfi og eftirliti með framkvæmd sóttvarnaaðgerða. Sérgreinadýralæknar skulu hafa frumkvæði að sýnatökum, rannsóknum og öðrum aðgerðum til að stuðla að heilbrigði og velferð dýra og öryggi búfjárafurða. Ráðherra er heimilt að setja reglugerð þar sem nánar er kveðið á um störf sérgreinadýralækna.]1) 1)L. 143/2009, 40. gr. 15. gr. [Matvælastofnun]1) skal hafa aðgang að viðunandi aðstöðu, búnaði og sérþekkingu til greiningar dýrasjúkdóma vegna sjúkdómsvarna og forvarnastarfa. 1)L. 167/2007, 63. gr. 16. gr. …1) Sérgreinadýralæknar skulu ráðnir samkvæmt ákvæðum laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. 1)L. 76/2005, 6. gr.
VI. kafli.Viðurlög, gildistaka o.fl. 17. gr. [Ráðherra]1) setur með reglugerð2) nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara. 1)L. 126/2011, 272. gr.2)Augl. 10/1964 (notkun matarleifa til skepnufóðurs). Rg. 290/1980 (um varnir gegn hundaæði). Rg. 21/1983 (um veitingu leyfis til dýralækninga). Rg. 403/1986, sbr. 597/1989 og 148/1992 (um varnir gegn fisksjúkdómum o.fl.). Rg. 156/1987 (sæðingar loðdýra). Rg. 251/1995 (um aðbúnað og sjúkdómavarnir á alifuglabúum), sbr. 904/2001 og 701/2002. Rg. 557/1998 (kanínurækt). Rg. 782/1999 (um embætti yfirdýralæknis). Rg. 60/2000 (um eftirlit með aðbúnaði og heilbrigði sauðfjár og geitfjár o.fl.). Rg. 651/2001 (um útrýmingu á riðuveiki o.fl.), sbr. 726/2004 og 807/2006. Rg. 653/2001 (um hámark dýralyfjaleifa í sláturafurðum, eggjum og mjólk), sbr. 866/2002, 580/2003, 639/2003, 480/2004, 578/2005, 798/2007, 965/2007, 1218/2007, 124/2008, 196/2008, 443/2008, 569/2008, 35/2009, 329/2009, 381/2009 og 677/2009. Rg. 279/2002 (um dýratilraunir). Rg. 438/2002 (um aðbúnað nautgripa og eftirlit með framleiðslu mjólkur o.fl.). Rg. 859/2002 (um innflutning loðdýra). Rg. 432/2003 (um einangrunarstöðvar og sóttkvíar fyrir gæludýr). Rg. 509/2004 (um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins). Rg. 935/2004 (um innflutning gæludýra og hundasæðis), sbr. 817/2005. Rg. 289/2005 (um merkingar búfjár), sbr. 972/2005, 323/2009 og 941/2009. Rg. 160/2006 (um aðbúnað, umhirðu og heilbrigðiseftirlit hrossa). Rg. 773/2006 (um leyfi til að stunda dýralækningar á Íslandi fyrir dýralækna sem hlotið hafa menntun í ríkjum innan Evrópska efnahagssvæðisins). Rg. 550/2008 (um flutning líflamba milli landsvæða). Rg. 353/2011 (um aðbúnað og heilbrigði svína). 18. gr. [Verði [Matvælastofnun]1) þess vör að dýralæknir, sem hefur starfsleyfi, vanræki skyldur sínar og störf, fari út fyrir verksvið sitt eða brjóti alvarlega í bága við fyrirmæli sem dýralæknum er skylt að starfa eftir ber [Matvælastofnun]1) að áminna hann um að bæta ráð sitt.]2) Nú kemur ítrekuð áminning ekki að haldi eða sé um óhæfu í læknisstörfum að ræða og ber þá [Matvælastofnun]1) að kæra málið til ráðherra. Getur þá ráðherra úrskurðað að viðkomandi skuli sviptur lækningaleyfi að fullu eða um tiltekinn tíma. Uppfylli dýralæknir, sem hefur læknisleyfi, ekki lengur þær kröfur sem gerðar voru er læknisleyfi var veitt, svo sem vegna bilunar á andlegri eða líkamlegri heilsu eða misnotkunar vímuefna, ber [Matvælastofnun]1) að greina ráðherra frá málavöxtum. Ráðherra skal leita álits dýralæknaráðs um slík mál. Svipta má viðkomandi dýralækni lækningaleyfi ef dýralæknaráð leggur það til. 1)L. 167/2007, 63. gr.2)L. 76/2005, 7. gr. 19. gr. Brot gegn lögum þessum, reglugerðum og fyrirmælum gefnum samkvæmt þeim varða sektum eða fangelsi ef sakir eru miklar. …1) 1)L. 88/2008, 233. gr. 20. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1999. …1) 1)Sbr. þó ákvæði l. 158/1998, 2. gr.
Ákvæði til bráðabirgða. I. Meðan ekki hafa tekist samningar milli Dýralæknafélags Íslands og [þess ráðuneytis er fer með málefni starfsmanna ríkisins]1) um endurmenntun gildir eftirfarandi ákvæði: Fyrir hver tíu ár, sem héraðsdýralæknir hefur gegnt þjónustu, á hann rétt á að hljóta sex mánaða frí frá störfum með fullum launum til framhaldsnáms í samráði við [Matvælastofnun].2) Greiðir ríkissjóður fargjaldskostnað til þess lands þar sem hann hyggst dveljast og heim til Íslands að dvöl lokinni. 1)L. 126/2011, 272. gr.2)L. 167/2007, 63. gr. II. Sé starf lagt niður á dýralæknir sem skipaður hefur verið eða ráðinn í þjónustu ríkisins fyrir gildistöku laga þessara rétt til biðlauna í samræmi við ákvæði í 34. gr. laga nr. 70/1996. [III. Störf héraðsdýralækna hjá Matvælastofnun eru lögð niður við gildistöku þessara laga. Viðkomandi starfsmönnum skulu boðin störf hjá Matvælastofnun. Ákvæði 7. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, gildir ekki um störf sem ráðið er í samkvæmt þessu ákvæði. Ráðherra er heimilt að fela héraðsdýralækni að sinna tímabundið almennri þjónustu við dýraeigendur á tilteknu svæði ef heilbrigði eða velferð dýra er stefnt í hættu enda fáist ekki dýralæknar til að sinna slíkri þjónustu við dýraeigendur á umræddu svæði. Heimild ráðherra samkvæmt þessari málsgrein fellur úr gildi 1. janúar 2015. Ráðherra skal setja reglugerð skv. 13. gr. eigi síðar en 1. júlí 2010.]1) 1)L. 143/2009, 41. gr.