Tóku gildi 25. maí 2005.EES-samningurinn: IX. viðauki tilskipun 2002/92/EB. Breytt meðl. 55/2007 (tóku gildi 3. apríl 2007), l. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008), l. 98/2009 (tóku gildi 1. okt. 2009 nema 69. og 70. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2010) og l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
III. kafli.Hæfiskröfur vátryggingamiðlara. 15. gr.Hæfisskilyrði einstaklings. Einstaklingur sem stundar vátryggingamiðlun skal vera lögráða og vera búsettur hér á landi. Hann má ekki á síðustu fimm árum hafa verið úrskurðaður gjaldþrota eða í tengslum við atvinnurekstur hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum, þessum lögum eða lögum um hlutafélög, einkahlutafélög, bókhald, ársreikninga, gjaldþrot eða opinber gjöld eða þeim sérlögum sem gilda um aðila sem lúta opinberu eftirliti með fjármálastarfsemi. Einstaklingur sem stundar vátryggingamiðlun skal búa yfir nægilegri þekkingu og starfsreynslu til að geta sinnt starfi sínu á tilhlýðilegan hátt. Hann má ekki hafa sýnt af sér háttsemi sem gefur tilefni til að ætla að hann misnoti aðstöðu sína eða skaði starfsemina. Einstaklingur sem stundar vátryggingamiðlun skal jafnframt hafa staðist próf í miðlun vátrygginga skv. 18. gr. Ríkisborgarar annarra aðildarríkja eru undanþegnir búsetuskilyrðum séu þeir búsettir í aðildarríki. Ráðherra er heimilt að veita undanþágu frá búsetuskilyrðum. 16. gr.Hæfisskilyrði stjórnar og framkvæmdastjóra lögaðila. Stjórnarmenn og framkvæmdastjóri vátryggingamiðlara skulu vera lögráða. Þeir mega ekki á síðustu fimm árum hafa verið úrskurðaðir gjaldþrota eða í tengslum við atvinnurekstur hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum, þessum lögum eða lögum um hlutafélög, einkahlutafélög, bókhald, ársreikninga, gjaldþrot eða opinber gjöld eða þeim sérlögum sem gilda um aðila sem lúta opinberu eftirliti með fjármálastarfsemi. Stjórnarmenn og framkvæmdastjóri skulu búa yfir nægilegri þekkingu og starfsreynslu til að geta gegnt stöðu sinni á tilhlýðilegan hátt. Þeir mega ekki hafa sýnt af sér háttsemi sem gefur tilefni til að ætla að þeir misnoti aðstöðu sína eða skaði félagið. Um stjórn og framkvæmdastjóra vátryggingamiðlara gilda ákvæði laga um hlutafélög eða einkahlutafélög, enda sé ekki á annan veg mælt í lögum þessum. 17. gr.Hæfisskilyrði starfsmanna vátryggingamiðlara. Starfsmaður vátryggingamiðlara, sem hefur umsjón með daglegri starfsemi í tengslum við vátryggingamiðlun skv. 1. tölul. 3. gr., skal hafa staðist próf í miðlun vátrygginga. Í tengslum við veitingu starfsleyfis og jafnskjótt og breytingar verða á starfsmannahaldi ber vátryggingamiðlara að tilkynna Fjármálaeftirlitinu um starfsmenn samkvæmt þessari málsgrein. Vátryggingamiðlari skal tryggja að vátryggingasölumenn er starfa á hans vegum búi yfir nægilegri starfsreynslu og þekkingu til að geta sinnt vátryggingamiðlun, þar á meðal á meginatriðum þessara laga, laga um vátryggingastarfsemi, laga um vátryggingarsamninga og laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Vátryggingasölumenn skulu vera lögráða og hafa forræði á búi sínu. Þeir skulu ekki hafa á síðustu fimm árum í tengslum við atvinnurekstur hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum, þessum lögum eða lögum um hlutafélög, einkahlutafélög, bókhald, ársreikninga, gjaldþrot eða opinber gjöld eða þeim sérlögum sem gilda um aðila sem lúta opinberu eftirliti með fjármálastarfsemi. [Ráðherra]1) getur sett nánari reglur um hæfisskilyrði starfsmanna vátryggingamiðlara, m.a. um lágmarksþekkingu. 1)L. 126/2011, 398. gr. 18. gr.Próf í miðlun vátrygginga. Prófnefnd hefur umsjón með prófi í miðlun vátrygginga sem að jafnaði skal haldið einu sinni á ári. [Ráðherra]1) skipar þriggja manna prófnefnd til fjögurra ára í senn. Til að standa straum af kostnaði við framkvæmd prófa skulu próftakar greiða gjald sem ráðherra ákveður. Ákvarðanir prófnefndar eru endanlegar á stjórnsýslustigi. Prófnefnd er heimilt að fela óháðum aðilum að gefa einkunn fyrir prófúrlausn. Þá getur prófnefnd skipað prófdómara til að endurskoða úrlausn próftaka. Í reglugerð2) skal kveða nánar á um framkvæmd prófs, þar á meðal prófkröfur og prófsefnislýsingu, og heimildir til að veita undanþágur frá einstökum hlutum slíks prófs eða prófi í heild. 1)L. 126/2011, 398. gr.2)Rg. 972/2006.
IV. kafli.Fjárhagslegar kröfur vátryggingamiðlara. 19. gr.Fjárhagsleg staða. Áætlun. Vátryggingamiðlari skal á hverjum tíma geta staðið við fjárhagslegar skuldbindingar sínar. Ef líkur eru á því að vátryggingamiðlari eigi ekki fyrir fjárhagslegum skuldbindingum sínum skal hann gera Fjármálaeftirlitinu grein fyrir stöðu sinni og leggja fyrir það áætlun um endurreisn fjárhags. Fjármálaeftirlitið ákveður hvort þær ráðstafanir teljast fullnægjandi. Áætlun skv. 1. mgr. skal m.a. innihalda áætlaðan rekstrarkostnað, sundurliðaða áætlun um tekjur og gjöld og áætlaðan efnahagsreikning. Gefi ársreikningur vátryggingamiðlara Fjármálaeftirlitinu vísbendingu um að vátryggingamiðlari eigi ekki fyrir fjárhagslegum skuldbindingum getur Fjármálaeftirlitið gert vátryggingamiðlara að skila áætlun skv. 1. mgr. Meðan áætlun skv. 1. mgr. er í gildi skal Fjármálaeftirlitið ekki framsenda tilkynningu vegna ráðagerða vátryggingamiðlara um starfsemi erlendis, sbr. 56. gr. 20. gr.Starfsábyrgðartrygging. Vátryggingamiðlurum er skylt að hafa í gildi ábyrgðartryggingu vegna fjárhagstjóns sem leitt getur af gáleysi í störfum þeirra eða starfsmanna þeirra. Slík trygging getur verið vátrygging tekin hjá vátryggingafélagi sem hefur starfsleyfi hér á landi eða önnur trygging jafngild að mati Fjármálaeftirlitsins. Nánari ákvæði um gildissvið vátryggingarinnar, þ.m.t. vátryggingarfjárhæðir, skal setja í reglugerð.1) Vátryggingamiðlari skal senda Fjármálaeftirlitinu staðfestingu á endurnýjun starfsábyrgðartryggingar. 1)Rg. 592/2005. 21. gr.Viðtaka fjármuna. Vátryggingamiðlari má ekki taka við iðgjöldum, vátryggingarbótum eða öðrum fjármunum fyrir hönd vátryggingafélags eða viðskiptamanns nema samkvæmt skriflegri heimild. 22. gr.Vörslufjárreikningar. Vátryggingamiðlara er skylt að halda fjármunum sem hann tekur við í þágu annarra aðgreindum frá eigin fé. Skulu slíkir fjármunir varðveittir á sérstökum vörslufjárreikningi. Vextir, sem á vörslufé kunna að falla, renna til eiganda þess. Vátryggingamiðlari er ekki eigandi innstæðu á vörslufjárreikningi samkvæmt þessari grein og innstæðan er ekki hæft andlag aðfarargerða hjá honum og stendur utan skuldaraðar við skipti á búi hans. [Ráðherra]1) setur nánari reglur2) um vörslufjárreikninga. 1)L. 126/2011, 398. gr.2)Rg. 590/2005.
V. kafli.Starfshættir vátryggingamiðlara. 23. gr.Yfirsýn yfir starfsemina og sérstakar ráðstafanir. Vátryggingamiðlari skal:
1. gæta þess að framkvæmdastjóri vátryggingamiðlunar hafi yfirsýn yfir rekstur miðlunarinnar, þar á meðal fjárhagslega stöðu, 2. gæta þess að sá starfsmaður, sem hefur umsjón með daglegri starfsemi í tengslum við vátryggingamiðlun skv. 1. tölul. 3. gr., hafi yfirsýn yfir rekstur miðlunarinnar, 3. gæta þess að fjöldi vátryggingasölumanna er starfa á hans vegum sé hæfilegur svo fullvíst megi telja að hann hafi yfirsýn yfir reksturinn. 24. gr.Ráðningar- eða verksamningar. Vátryggingamiðlari skal gera skriflegan ráðningar- og/eða verksamning við vátryggingasölumenn sem eru í þjónustu hans eða koma fram fyrir hans hönd. Þar skal kveðið á um réttindi og skyldur aðila, þar á meðal um að vátryggingasölumaður starfi á ábyrgð og undir stjórn og eftirliti vátryggingamiðlarans. Vátryggingamiðlari skal tryggja að vátryggingasölumaður falli undir starfsábyrgðartryggingu vátryggingamiðlarans. Vátryggingasölumaður sem er í þjónustu eða kemur fram fyrir hönd vátryggingamiðlara skal starfa í fullu samræmi við þær reglur sem gilda um miðlun vátrygginga. Viðkomandi ber að leysa starf sitt af hendi í samræmi við góðar venjur í vátryggingaviðskiptum. 25. gr.Samningur um þjónustu. Vátryggingamiðlari skal gera skriflegan samning við viðskiptamenn sína áður en hann tekur til starfa fyrir viðkomandi. Í samningi skal koma fram í hverju umboð vátryggingamiðlarans felst, hversu víðtækt það er og til hvaða þátta á starfssviði hans það nær. Einnig skal koma fram hvort honum er heimilt að taka við fjármunum fyrir hönd viðskiptamanna og um skil á þeim. 26. gr.Skilríki. Hver sá sem er í þjónustu eða kemur fram fyrir hönd vátryggingamiðlara skal við störf sín framvísa fullnægjandi skilríkjum sem gefin eru út af vátryggingamiðlara sem hann starfar fyrir. 27. gr.Trúnaðarupplýsingar. Vátryggingamiðlari, stjórnarmenn, framkvæmdastjórar, endurskoðendur, vátryggingasölumenn, aðrir starfsmenn og hverjir þeir sem taka að sér verk í þágu vátryggingamiðlara eru bundnir þagnarskyldu um allt það sem þeir fá vitneskju um við framkvæmd starfa síns og varðar viðskipta- eða einkamálefni viðskiptamanna, nema skylt sé að veita upplýsingar samkvæmt lögum. Þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi. Sá sem veitir viðtöku upplýsingum af því tagi sem um getur í 1. mgr. er bundinn þagnarskyldu með sama hætti og þar greinir. Sá aðili sem veitir upplýsingarnar skal áminna viðtakanda um þagnarskylduna. Við miðlun vátrygginga skal fullnægja skilyrðum laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, nr. 77/2000. 28. gr.Góðir viðskiptahættir og venjur. Vátryggingamiðlari skal starfa í samræmi við góða viðskiptahætti og venjur á vátryggingamarkaði og með hag vátryggingartaka og vátryggðra fyrir augum. Verði misbrestur á skal Fjármálaeftirlitið gefa fyrirmæli um að ráðin verði bót á því sem úrskeiðis hefur farið. 29. gr.Reglugerðarheimild. [Ráðherra]1) hefur heimild til að kveða nánar á um starfshætti vátryggingamiðlara í reglugerð, þar á meðal um yfirsýn vátryggingamiðlara yfir rekstur. 1)L. 126/2011, 398. gr.
VI. kafli.Upplýsingaskylda vátryggingamiðlara. 30. gr.Upplýsingar við gerð og endurnýjun vátryggingarsamnings. Áður en vátryggingarsamningur er gerður skal vátryggingamiðlari láta væntanlegum vátryggingartaka í té a.m.k. eftirfarandi upplýsingar:
1. Nafn og heimilisfang vátryggingamiðlarans. 2. Hvar vátryggingamiðlari er skráður og hvernig ganga megi úr skugga um skráninguna. 3. Hvort hann veitir ráðgjöf á grundvelli a- eða b-liðar 1. tölul. 3. gr. 4. Hvort vátryggingamiðlari eigi virkan eignarhlut í vátryggingafélagi. 5. Hvort vátryggingafélag eða móðurfélag vátryggingafélags eigi virkan eignarhlut í vátryggingamiðlara. 6. Um endurgjald skv. 1. mgr. 32. gr. Við endurnýjun vátryggingarsamnings, eða breytingu á honum, skal veita vátryggingartaka upplýsingar skv. 1. mgr. hafi breytingar orðið á atriðum sem talin eru upp í 1.–6. tölul. Miðli vátryggingamiðlari vátryggingum á grundvelli b-liðar 1. tölul. 3. gr. skal væntanlegur vátryggingartaki upplýstur um heiti vátryggingafélaganna áður en hann er skuldbundinn samkvæmt vátryggingarsamningi. Upplýsingaskylda vátryggingafélags samkvæmt lögum um vátryggingarsamninga og vátryggingastarfsemi hvílir á vátryggingamiðlara við vátryggingamiðlun eftir því sem við á. 31. gr.Rökstuðningur ráðgjafar. Áður en vátryggingarsamningur er gerður skal vátryggingamiðlari skilgreina, einkum á grundvelli upplýsinga frá væntanlegum vátryggingartaka, kröfur og þarfir hans. Skal hann skýra væntanlegum vátryggingartaka frá þeim ástæðum sem liggja að baki ráðleggingum hans. Rökstuðningur skal taka mið af eðli þess vátryggingarsamnings sem mælt er með. 32. gr.Endurgjald. Væntanlegur vátryggingartaki skal upplýstur um endurgjald sem vátryggingamiðlari þiggur eða áskilur sér vegna viðskiptanna. Skýrt skal koma fram hvor skuli greiða endurgjaldið, væntanlegur vátryggingartaki eða vátryggingafélag. Vátryggingamiðlari má ekki taka við endurgjaldi af neinu tagi frá vátryggingafélagi nema vegna vátryggingarsamninga sem komið hefur verið á milli vátryggingafélagsins og vátryggingartaka. Upplýsingar skv. 1. mgr. skal einnig veita við breytingu eða endurnýjun á vátryggingarsamningi. 33. gr.Form upplýsinga. Upplýsingar sem veittar eru samkvæmt þessum kafla skal veita:
1. skriflega eða á öðrum varanlegum miðli, 2. á skýran og nákvæman hátt sem viðtakandanum er skiljanlegur, 3. á íslensku eða öðru tungumáli sem báðir aðilar samþykkja. Þrátt fyrir ákvæði 1. tölul. 1. mgr. er heimilt að veita upplýsingar munnlega óski væntanlegur vátryggingartaki þess sérstaklega eða ef vátryggingarverndar er þörf þegar í stað. Í slíkum tilvikum skal veita upplýsingar í samræmi við 1. mgr. þegar í stað eftir gerð vátryggingarsamnings. Við miðlun vátrygginga í símsölu skal veita upplýsingar skv. 9. gr. laga um fjarsölu á fjármálaþjónustu. Upplýsingar skv. 1. mgr. skulu veittar þegar í stað eftir gerð vátryggingarsamnings.
VII. kafli.Afturköllun og innlögn starfsleyfis vátryggingamiðlara. 34. gr.Ástæður afturköllunar. Fjármálaeftirlitið getur afturkallað starfsleyfi vátryggingamiðlara þegar:
1. vátryggingamiðlari hefur fengið starfsleyfi á grundvelli rangra upplýsinga eða á annan óeðlilegan hátt, 2. vátryggingamiðlari hefur ekki gilda starfsábyrgðartryggingu, 3. eftirlitsgjald er í vanskilum, 4. vátryggingamiðlari eða starfsfólk hans uppfyllir ekki hæfisskilyrði sem fram koma í 15.–17. gr., 5. starfsleyfi hefur ekki verið nýtt innan tólf mánaða frá því að það var veitt, því verið ótvírætt afsalað eða starfsemi hefur verið hætt í meira en sex mánuði samfellt, 6. vátryggingamiðlari brýtur að öðru leyti alvarlega eða ítrekað gegn lögum þessum eða reglum, samþykktum eða reglugerðum settum samkvæmt þeim. Áður en til afturköllunar kemur skv. 1. mgr. skal vátryggingamiðlara veittur hæfilegur frestur til úrbóta sé unnt að koma úrbótum við að mati Fjármálaeftirlitsins. Við afturköllun starfsleyfis skal Fjármálaeftirlitið taka vátryggingamiðlara út af vátryggingamiðlaraskrá. 35. gr.Tilkynning um afturköllun starfsleyfis. Afturköllun á starfsleyfi vátryggingamiðlara skal tilkynnt fyrirsvarsmanni eða stjórn vátryggingamiðlara og rökstudd skriflega. Fjármálaeftirlitið skal birta tilkynningu í Lögbirtingablaði og auglýsa í fjölmiðlum. Starfræki vátryggingamiðlari útibú eða þjónustustarfsemi í öðru ríki skal tilkynning send lögbærum eftirlitsaðilum í því ríki. 36. gr.Innlögn starfsleyfis. Hyggist vátryggingamiðlari hætta starfsemi, standi hann ekki lengur fyrir sjálfstæðri starfsemi eða starfi hann ekki lengur hjá vátryggingamiðlara skal hann skila inn starfsleyfi sínu. Áður en vátryggingamiðlari hættir starfsemi og leggur inn starfsleyfi sitt skal hann gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja réttarstöðu viðskiptamanna sinna. Hann skal upplýsa viðsemjendur sína, þ.e. vátryggingafélög og þá sem hafa falast eftir vátryggingu, um innlögn starfsleyfis. Hann skal jafnframt leitast við að fá annan til þess bæran aðila, einn eða fleiri, til að taka að sér að þjónusta þá vátryggingarsamninga sem komið hefur verið á. Hann skal gera Fjármálaeftirlitinu grein fyrir ráðstöfunum sínum. Vátryggingamiðlara sem hyggst skila inn starfsleyfi sínu skv. 1. mgr. er óheimilt að segja upp starfsábyrgðartryggingu fyrr en að fenginni staðfestingu Fjármálaeftirlits á innlögn leyfis. Við innlögn starfsleyfis skal vátryggingamiðlari felldur út af vátryggingamiðlaraskrá. Fjármálaeftirlitið skal birta tilkynningu þess efnis í Lögbirtingablaði. Óski aðili sem lagt hefur starfsleyfi inn að hefja starfsemi að nýju fer um þá umsókn eftir ákvæðum II. kafla.
VIII. kafli.Tilkynningar og skil á gögnum vátryggingamiðlara. 37. gr.Skil ársreiknings. Vátryggingamiðlari skal senda Fjármálaeftirlitinu ársreikning endurskoðaðan af löggiltum endurskoðanda eigi síðar en fjórum mánuðum eftir lok reikningsárs. Ársreikningur skal undirritaður af vátryggingamiðlara og stjórn og framkvæmdastjóra þegar um lögaðila er að ræða. Í skýringum ársreiknings skal greina frá heildarfjárhæð fjármuna sem vátryggingamiðlari varðveitir á vörslufjárreikningum í árslok fyrir hönd viðskiptaaðila, sbr. 22. gr. Þá skal fylgja yfirlýsing löggilts endurskoðanda um að meðferð vátryggingamiðlara á fjármunum undangengið reikningsár sé í samræmi við lög þessi og reglur um vörslufjárreikninga. Ársreikningi skal fylgja skrá yfir þau vátryggingafélög sem miðlað er til vegna vátryggingaráhættu hér á landi ásamt iðgjaldamagni og þóknun frá hverju félagi vegna vátryggingarsamninga sem komið hefur verið á, með skiptingu á greinaflokka vátrygginga. Einnig skal fylgja greinargerð um önnur tengsl við vátryggingafélög. 38. gr.Tilkynning um framkomna skaðabótakröfu. Vátryggingamiðlari skal þegar í stað tilkynna Fjármálaeftirlitinu ef gerð er skaðabótakrafa vegna starfa hans. Í tilkynningunni skulu koma fram upplýsingar um efni og fjárhæð kröfunnar.
IX. kafli.Skráning vátryggingaumboðsmanns. 39. gr.Skráning vátryggingaumboðsmanns. Þegar vátryggingafélag hefur gert samning við vátryggingaumboðsmann um miðlun vátrygginga félagsins skal félagið skrá vátryggingaumboðsmann, sbr. 40. gr. Almenningi skal heimill aðgangur að upplýsingum um skráða vátryggingaumboðsmenn hjá viðkomandi vátryggingafélagi. Vátryggingaumboðsmanni er heimilt að hefja starfsemi þegar hann hefur verið skráður hjá vátryggingafélagi. Þegar vátryggingaumboðsmaður hættir að miðla vátryggingum á vegum vátryggingafélags skal hann tekinn út af skrá félagsins. Fjármálaeftirlitið getur sett nánari reglur1) um skráningu vátryggingaumboðsmanns. 1)Rgl. 236/2011. 40. gr.Skilyrði skráningar. Áður er vátryggingafélag skráir vátryggingaumboðsmann skal félagið ganga úr skugga um að:
1. einstaklingur sem starfar sem vátryggingaumboðsmaður uppfylli ákvæði 1. og 2. mgr. 15. gr., 2. vátryggingaumboðsmaður sem starfar sem lögaðili uppfylli ákvæði 16. gr., 3. vátryggingasölumenn sem starfa á ábyrgð vátryggingaumboðsmanns uppfylli skilyrði 2. og 3. mgr. 17. gr. 41. gr.Heiti. Sá einn má nota heitið vátryggingaumboðsmaður sem hefur verið skráður hjá vátryggingafélagi. Sé hætta á að villst verði á nafni erlends vátryggingaumboðsmanns sem starfar hér á landi á grundvelli 55. gr. og innlends vátryggingaumboðsmanns getur Fjármálaeftirlitið krafist þess að annar vátryggingaumboðsmaðurinn verði auðkenndur sérstaklega. 42. gr.Takmarkanir á starfsemi. Vátryggingaumboðsmaður skal einungis miðla frumtryggingum á vegum vátryggingafélaga sem hafa starfsleyfi hér á landi. Starfsleyfi vátryggingafélags í aðildarríki telst jafngilda starfsleyfi hér á landi, enda séu uppfyllt skilyrði laga um vátryggingastarfsemi varðandi heimildir til stofnunar útibús eða til að veita hér þjónustu án stofnunar útibús. Fjármálaeftirlitið getur, þegar sérstakar aðstæður eru fyrir hendi, heimilað undanþágur frá banni skv. 1. mgr. 43. gr.Viðtaka fjármuna. Vátryggingaumboðsmaður má ekki taka við iðgjöldum, vátryggingarbótum eða öðrum fjármunum fyrir hönd vátryggingafélags eða viðskiptamanns nema samkvæmt skriflegri heimild. 44. gr.Vörslufjárreikningur. Vátryggingaumboðsmanni er skylt að halda fjármunum sem hann tekur við í þágu annarra aðgreindum frá eigin fé. Skulu slíkir fjármunir varðveittir á sérstökum vörslufjárreikningi. Vextir, sem á vörslufé kunna að falla, renna til eiganda þess. Vátryggingaumboðsmaður er ekki eigandi innstæðu á vörslufjárreikningi samkvæmt þessari grein og innstæðan er ekki hæft andlag aðfarargerða hjá honum og stendur utan skuldaraðar við skipti á búi hans. [Ráðherra]1) setur nánari reglur2) um vörslufjárreikninga. 1)L. 126/2011, 398. gr.2)Rg. 590/2005.
X. kafli.Starfshættir vátryggingaumboðmanns. 45. gr.Yfirsýn yfir starfsemina og sérstakar ráðstafanir. Vátryggingaumboðsmaður skal:
1. gæta þess að framkvæmdastjóri vátryggingaumboðsmanns hafi yfirsýn yfir rekstur starfseminnar, 2. gæta þess að sá starfsmaður, sem hefur umsjón með daglegri starfsemi í tengslum við miðlun vátrygginga, sbr. 1. mgr. 1. gr., hafi yfirsýn yfir rekstur starfseminnar, 3. gæta þess að fjöldi vátryggingasölumanna er starfa á hans vegum sé hæfilegur svo fullvíst megi telja að hann hafi yfirsýn yfir reksturinn. 46. gr.Ráðningar- eða verksamningar. Vátryggingaumboðsmaður skal gera skriflegan ráðningar- og/eða verksamning við vátryggingasölumenn sem eru í þjónustu hans eða koma fram fyrir hans hönd. Þar skal kveðið á um réttindi og skyldur aðila, þar á meðal um að vátryggingasölumaður starfi á ábyrgð og undir stjórn og eftirliti vátryggingaumboðsmanns. Vátryggingasölumaður sem er í þjónustu eða kemur fram fyrir hönd vátryggingaumboðsmanns skal starfa í fullu samræmi við þær reglur sem gilda um miðlun vátrygginga. Viðkomandi ber að leysa starf sitt af hendi í samræmi við góðar venjur í vátryggingaviðskiptum. 47. gr.Skilríki. Hver sá sem er í þjónustu eða kemur fram fyrir hönd vátryggingaumboðsmanns skal við störf sín framvísa fullnægjandi skilríkjum sem útgefin eru af vátryggingaumboðsmanni sem hann starfar fyrir. 48. gr.Trúnaðarupplýsingar. Vátryggingaumboðsmaður, stjórnarmenn, framkvæmdastjórar, endurskoðendur, vátryggingasölumenn, aðrir starfsmenn og hverjir þeir sem taka að sér verk í þágu vátryggingaumboðsmanns eru bundnir þagnarskyldu um allt það sem þeir fá vitneskju um við framkvæmd starfa síns og varðar viðskipta- eða einkamálefni viðskiptamanna, nema skylt sé að veita upplýsingar samkvæmt lögum. Þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi. Sá sem veitir viðtöku upplýsingum af því tagi sem um getur í 1. mgr. er bundinn þagnarskyldu með sama hætti og þar greinir. Sá aðili sem veitir upplýsingarnar skal áminna viðtakanda um þagnarskylduna. Við miðlun vátrygginga skal fullnægja skilyrðum laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, nr. 77/2000. 49. gr.Góðir viðskiptahættir og venjur. Vátryggingaumboðsmaður skal starfa í samræmi við góða viðskiptahætti og venjur á vátryggingamarkaði og með hag vátryggingartaka og vátryggðra fyrir augum. Verði misbrestur á skal Fjármálaeftirlitið gefa fyrirmæli um að ráðin verði bót á því sem úrskeiðis hefur farið. 50. gr.Reglugerðarheimild. [Ráðherra]1) hefur heimild til að kveða nánar á um starfshætti vátryggingaumboðsmanna í reglugerð, þar á meðal um yfirsýn vátryggingaumboðsmanna yfir rekstur. 1)L. 126/2011, 398. gr.
XI. kafli.Upplýsingaskylda vátryggingaumboðmanns. 51. gr.Upplýsingar við gerð og endurnýjun vátryggingarsamnings. Áður en vátryggingarsamningur er gerður skal vátryggingaumboðsmaður láta væntanlegum vátryggingartaka í té a.m.k. eftirfarandi upplýsingar:
1. Nafn og heimilisfang vátryggingaumboðsmanns. 2. Hvar vátryggingaumboðsmaður er skráður og hvernig ganga megi úr skugga um skráninguna. 3. Heiti þeirra vátryggingafélaga sem hann er umboðsmaður fyrir. 4. Hvort vátryggingaumboðsmaður eigi virkan eignarhlut í vátryggingafélagi. 5. Hvort tiltekið vátryggingafélag eða móðurfélag tiltekins vátryggingafélags eigi virkan eignarhlut í vátryggingaumboði. 6. Um endurgjald skv. 1. mgr. 53. gr. þegar við á. Við endurnýjun vátryggingarsamnings, eða breytingu hans, skal veita vátryggingartaka upplýsingar skv. 1. mgr. hafi breytingar orðið á atriðum sem talin eru upp í 1.–6. tölul. Upplýsingaskylda vátryggingafélags samkvæmt lögum um vátryggingarsamninga og lögum um vátryggingastarfsemi hvílir á vátryggingaumboðsmanni við miðlun vátrygginga eftir því sem við á. 52. gr.Rökstuðningur ráðgjafar. Áður en vátryggingarsamningur er gerður skal vátryggingaumboðsmaður skilgreina, einkum á grundvelli upplýsinga frá væntanlegum vátryggingartaka, kröfur og þarfir hans. Skal hann skýra væntanlegum vátryggingartaka frá þeim ástæðum sem liggja að baki ráðleggingum hans. Umfang skýringa miðast við hversu flóknum vátryggingarsamningi mælt er með. 53. gr.Endurgjald. Miðli vátryggingaumboðsmaður vátryggingum í sama greinaflokki á vegum fleiri en eins vátryggingafélags skal væntanlegur vátryggingartaki upplýstur um endurgjald sem vátryggingaumboðsmaður þiggur eða áskilur sér vegna viðskiptanna. Skýrt skal koma fram hvor skuli greiða endurgjaldið, væntanlegur vátryggingartaki eða vátryggingafélag. Eigi væntanlegur vátryggingartaki að greiða endurgjald sem vátryggingaumboðsmaður þiggur eða áskilur sér vegna viðskiptanna, að hluta eða öllu leyti, skal hann ávallt upplýstur um endurgjaldið áður en hann er skuldbundinn af samningi. Upplýsingar samkvæmt ákvæðinu skal einnig veita við breytingu eða endurnýjun á vátryggingarsamningi. 54. gr.Form upplýsinga. Upplýsingar sem veittar eru samkvæmt þessum kafla skal veita:
1. skriflega eða á öðrum varanlegum miðli, 2. á skýran og nákvæman hátt sem viðtakandanum er skiljanlegur, 3. á íslensku eða öðru tungumáli sem báðir aðilar samþykkja. Þrátt fyrir ákvæði 1. tölul. 1. mgr. er heimilt að veita upplýsingar munnlega óski væntanlegur vátryggingartaki þess sérstaklega eða ef vátryggingarverndar er þörf þegar í stað. Í slíkum tilvikum skal veita upplýsingar í samræmi við 1. mgr. þegar í stað eftir gerð vátryggingarsamnings. Við miðlun vátrygginga í símsölu skal veita upplýsingar skv. 9. gr. laga um fjarsölu á fjármálaþjónustu. Upplýsingar skv. 1. mgr. skulu veittar þegar í stað eftir gerð vátryggingarsamnings.
XII. kafli.Starfsemi á milli landa. 55. gr.Starfsemi erlendra vátryggingamiðlara og vátryggingaumboðsmanna hér á landi. Vátryggingamiðlari eða vátryggingaumboðsmaður, sem er skráður eða hefur starfsleyfi í öðru aðildarríki, getur stofnsett útibú hér á landi eða veitt þjónustu án starfsstöðvar einum mánuði eftir að Fjármálaeftirlitinu hefur borist tilkynning frá lögbæru yfirvaldi í heimaríki viðkomandi um fyrirhugaða starfsemi. 56. gr.Starfsemi innlendra vátryggingamiðlara og vátryggingaumboðsmanna erlendis. Vátryggingamiðlarar og vátryggingaumboðsmenn, sem vilja stunda starfsemi í öðru aðildarríki með stofnun útibús eða veita þar þjónustu án starfsstöðvar, skulu tilkynna Fjármálaeftirlitinu slíka fyrirætlan. Í tilkynningu til Fjármálaeftirlitsins skal koma fram:
1. aðildarríki þar sem viðkomandi hyggst stofnsetja útibú og heimilisfang þess eða 2. aðildarríki þar sem viðkomandi hyggst veita þjónustu án stofnunar útibús. Fjármálaeftirlitið skal innan mánaðar tilkynna lögbærum yfirvöldum hlutaðeigandi ríkis fyrirætlan viðkomandi, enda sé af hálfu aðildarríkis óskað eftir slíkum upplýsingum. Vátryggingamiðlara eða vátryggingaumboðsmanni er heimilt að hefja starfsemi einum mánuði eftir að Fjármálaeftirlitið hefur tilkynnt viðkomandi að tilkynning um fyrirhugaða starfsemi hafi verið send gistiríki en þegar í stað óski aðildarríki ekki eftir slíkum upplýsingum. 57. gr.Stofnun útibús vátryggingamiðlara eða vátryggingaumboðsmanna utan Evrópska efnahagssvæðisins hér á landi. Fjármálaeftirlitið getur heimilað vátryggingamiðlara eða vátryggingaumboðsmanni með staðfestu í ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins að opna útibú hér á landi. Um leyfisveitingu og starfsemi slíkra aðila gilda ákvæði 71.–76. gr. laga um vátryggingastarfsemi. 58. gr.Reglugerðarheimild. [Ráðherra]1) getur sett reglugerð um heimildir erlendra vátryggingamiðlara eða vátryggingaumboðsmanna til starfsemi hér á landi og innlendra vátryggingamiðlara eða vátryggingaumboðsmanna erlendis. Í reglugerðinni skal m.a. kveðið á um eftirlit með og nánari kröfur til útibúa og umboðsskrifstofa erlendra aðila og um heimildir innlendra aðila til að stunda starfsemi erlendis. 1)L. 126/2011, 398. gr.
XIV. kafli.Innleiðing, gildistaka og breyting á öðrum lögum. 63. gr.Innleiðing. Lög þessi eru sett með hliðsjón af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 115/2003 frá 26. september 2003, um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn, og til þess að taka upp í innlendan rétt ákvæði tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2002/92/EB frá 9. desember 2002, um miðlun vátrygginga. 64. gr.Gildistaka. Lög þessi öðlast þegar gildi. 65. gr. 66. gr. Ákvæði til bráðabirgða. Vátryggingamiðlarar sem fengið hafa starfsleyfi skv. 81. gr. laga um vátryggingastarfsemi við gildistöku þessara laga skulu þegar í stað grípa til viðeigandi ráðstafana til að uppfylla skilyrði laga þessara og skulu uppfylla þau eigi síðar en 1. júlí 2005. Vátryggingamiðlarar sem uppfyllt hafa kröfu um þekkingu og starfsreynslu á grundvelli 1.–4. tölul. 1. mgr. 9. gr. reglugerðar nr. 853/1999, um miðlun vátrygginga, eru undanþegnir töku prófs skv. 3. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 17. gr. laga þessara. Hafi vátryggingamiðlari lagt inn starfsleyfi sitt fyrir gildistöku laga þessara gilda ákvæði þeirra um hvernig hann getur öðlast starfsleyfi á ný. Vátryggingaumboðsmenn sem eru starfandi við gildistöku laga þessara skulu þegar í stað grípa til viðeigandi ráðstafana til að uppfylla skilyrði laganna og skulu uppfylla þau eigi síðar en 1. júlí 2005. Vátryggingasölumenn skulu uppfylla hæfiskröfur laga þessara innan sex mánaða frá gildistöku þeirra.