I. kafli.Stjórnsýsla. 1. gr.Höfuðsafn. Þjóðminjasafn Íslands er eign íslenska ríkisins og fer mennta- og menningarmálaráðherra með yfirstjórn þess. Safnið er höfuðsafn á sviði menningarminja. Kostnaður af rekstri Þjóðminjasafnsins greiðist úr ríkissjóði eftir því sem ákveðið er í fjárlögum. 2. gr.Skipulag og yfirstjórn. Ráðherra skipar forstöðumann Þjóðminjasafns Íslands, þjóðminjavörð, til fimm ára í senn. Skipaður skal maður með háskólamenntun og staðgóða þekkingu á starfssviði safnsins. Forstöðumaður Þjóðminjasafns Íslands, þjóðminjavörður, stjórnar starfsemi og rekstri safnsins. Hann ræður starfsmenn þess og er í fyrirsvari fyrir safnið.
III. kafli.Kirkjugripir. 6. gr.Friðun kirkjugripa. Þjóðminjasafn Íslands ákveður, að höfðu samráði við biskup Íslands eða forstöðumenn trúfélaga, friðun kirkjugripa sem varðveittir eru í kirkjum landsins og taldir eru friðunarverðir vegna sögulegs eða listræns gildis. Safnið skal halda skrá yfir friðaða kirkjugripi og láta biskupsstofu, forstöðumanni viðeigandi trúfélags og hlutaðeigandi kirkju í té upplýsingar úr skránni. 7. gr.Friðaðir kirkjugripir. Friðaðir kirkjugripir skv. 6. gr. eru friðhelgir. Óheimilt er að raska þeim eða spilla. Ekki má heldur flytja þá frá kirkju nema með leyfi Þjóðminjasafns Íslands. Forráðamönnum kirkna ber að vernda skráða kirkjugripi og skal Þjóðminjasafn Íslands vera þeim innan handar með nauðsynlegar öryggisráðstafanir. 8. gr.Aflagðir, friðaðir kirkjugripir. Þjóðminjasafn Íslands varðveitir aflagða, friðaða kirkjugripi og þá gripi sem safnið og forráðamenn kirkna eru sammála um að eigi sé ástæða til að hafa í kirkju lengur. Þjóðminjasafni Íslands er heimilt að fela viðurkenndu safni varðveislu aflagðra, friðaðra kirkjugripa. 9. gr.Kirkjugripir í einkaeign. Þjóðminjasafn Íslands skal eiga forkaupsrétt að kirkjugripum í einkaeign ef seldir verða.
IV. kafli.Önnur ákvæði. 10. gr.Setning reglugerða. Ráðherra er heimilt að setja með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd laganna í heild eða einstakra kafla þeirra. 11. gr.Gildistaka. Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2013. Ákvæði til bráðabirgða. Fram til 1. janúar 2013 er ráðherra heimilt að undirbúa gildistöku laganna.