Tóku gildi 11. júní 1975.Breytt meðl. 83/1997 (tóku gildi 6. júní 1997) og l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
1. gr. Stofna skal á vegum ríkisins leiklistarskóla, og er heiti hans Leiklistarskóli Íslands. Hlutverk skólans er að þroska leiklistarhæfileika nemenda og þjálfa þá til leiklistarstarfa. Skólinn starfar í Reykjavík, en heimilt er að reka undirbúningsdeildir í tengslum við skólann annars staðar á landinu. Heimilt er að starfrækja nemendaleikhús á vegum skólans. Allur kostnaður við skólann greiðist úr ríkissjóði. 2. gr. Leiklistarskóli Íslands heyrir undir [ráðuneytið].1) Skólinn er þriggja vetra skóli og skal starfa sem næst 8 mánuði á ári. Ákveða skal með reglugerð,2) hvert skuli vera námsefni skólans, inntökuskilyrði, hæfnismat (próf) og annað, er varðar starfsemi skólans og undirbúningsdeilda skv. 1. gr. 1)L. 126/2011, 66. gr.2)Rg. 190/1978, sbr. 333/1986, 158/1991 og 54/1992. 3. gr. [Við skólann starfar skólastjóri sem skipaður skal af ráðherra til fimm ára í senn.]1) Skólastjóri getur sá einn orðið, sem öðlast hefur menntun og reynslu í leiklistarstörfum. Um starfskjör hans fer eftir hinu almenna launakerfi ríkisins, eftir því sem við á. [Skólastjóri ræður kennara og annað starfslið skólans.]1) 1)L. 83/1997, 103. gr. 4. gr. Skólanefnd er til ráðuneytis skólastjóra um málefni skólans. [Ráðherra]1) skipar skólanefndina, sem í eiga sæti 9 fulltrúar. Ráðherra skipar einn nefndarmanna án tilnefningar, og er hann formaður. Aðrir nefndarmenn eru skipaðir samkvæmt tilnefningu eftirtalinna aðila: Þjóðleikhúsráðs, leikhúsráðs Leikfélags Reykjavíkur, Leikfélags Akureyrar, Bandalags ísl. leikfélaga, Ríkisútvarpsins, Félags íslenskra leikara, kennara Leiklistarskóla Íslands, nemenda Leiklistarskóla Íslands. Nefndarmenn skulu skipaðir til fjögurra ára í senn nema fulltrúar nemenda og kennara, sem skipaðir eru til eins árs hverju sinni. 1)L. 126/2011, 66. gr. 5. gr. Þjóðleikhús og önnur leikhús í landinu, sem ríkisstyrks njóta, svo og Ríkisútvarp (hljóðvarp og sjónvarp) skulu veita Leiklistarskóla Íslands aðstoð í starfi hans eftir því sem um semst milli aðila hverju sinni og við verður komið. Ákvæði til bráðabirgða.