Tóku gildi 14. janúar 1991.Breytt meðl. 83/1997 (tóku gildi 6. júní 1997), l. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011) og l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við mennta- og menningarmálaráðherra eða mennta- og menningarmálaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér. I. kafli.Markmið og gildissvið. 1. gr. Markmið laga þessara er að stuðla að jafnrétti heyrnarlausra til þjónustu sem víðast í þjóðfélaginu á grundvelli táknmáls heyrnarlausra. 2. gr. Hlutverk Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra er að annast:
a. rannsóknir á íslensku táknmáli, b. kennslu táknmáls, c. táknmálstúlkun, d. aðra þjónustu. Um skipan þjónustunnar skal kveðið á í reglugerð.1) Stofnunin skal hafa samstarf við svæðisstjórnir um málefni fatlaðra, Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, Heyrnleysingjaskólann, Heyrnar- og talmeinastöð Íslands, Námsgagnastofnun og aðra opinbera aðila varðandi málefni er snerta starfsemi þeirra. Sama gildir um samstarf við félög áhugamanna. 1)Rg. 1058/2003, sbr. 884/2004.