Tóku gildi 1. júlí 2003.Breytt meðl. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við fjármála- og efnahagsráðherra eða fjármála- og efnahagsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér. I. kafli.Markmið og stjórnsýsla. 1. gr. Halda skal skrá, fyrirtækjaskrá, eftir því sem nánar er kveðið á um í lögum þessum. Ríkisskattstjóri starfrækir fyrirtækjaskrá og annast útgáfu á kennitölum til annarra en einstaklinga. [Ráðherra]1) fer með mál sem varða fyrirtækjaskrá. 1)L. 126/2011, 360. gr.
III. kafli.Aðgangur að upplýsingum úr fyrirtækjaskrá. 8. gr. Ríkisskattstjóri skal veita opinberum aðilum, fyrirtækjum og almenningi upplýsingar úr fyrirtækjaskrá. [Ráðherra]1) setur með reglugerð2) nánari ákvæði um aðgang að fyrirtækjaskrá, veitingu upplýsinga úr henni svo og um gjaldtöku fyrir upplýsingar úr skránni, svo sem fyrir útgáfu vottorða og staðfestinga og önnur afnot af upplýsingum skrárinnar. 1)L. 126/2011, 360. gr.2)Rg. 162/2006, sbr. 455/2007. 9. gr. Hagstofu Íslands er heimilt að hagnýta gögn úr fyrirtækjaskrá til hagskýrslugerðar og í því skyni tengja hana öðrum skrám ríkisskattstjóra. Ríkisskattstjóri skal láta Hagstofunni í té afrit af skránni eða upplýsingar úr henni eftir því sem hún óskar og án þess að gjald komi fyrir. Hagstofunni er skylt að fara með skrána og önnur gögn tengd henni sem hagskýrslugögn sem um gildir trúnaður.
IV. kafli.Ýmis ákvæði. 10. gr. Nú vanrækir aðili sem fellur undir 2. gr. tilkynningarskyldu sína samkvæmt lögum þessum og getur ríkisskattstjóri þá skyldað hann til að fullnægja skyldunni að viðlögðum dagsektum allt að 10.000 kr. fyrir hvern dag. Dagsektir skulu ákveðnar með úrskurði og falla á fyrir hvern dag sem líður frá uppkvaðningu hans þar til tilkynningarskyldu er sinnt. Áfallnar dagsektir falla niður þegar ríkisskattstjóri telur að tilkynningarskylda hafi verið uppfyllt. 11. gr. [Ráðherra]1) er heimilt að setja með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara. 1)L. 126/2011, 360. gr. 12. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2003 og skal fyrirtækjaskrá Hagstofu Íslands þá flytjast til ríkisskattstjóra og vera stofn fyrirtækjaskrár samkvæmt lögum þessum.