Lagasafn. Íslensk lög 1. janúar 2012. Útgáfa 140a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um ársreikninga
2006 nr. 3 17. janúar
Upphaflega l. 144/1994. Tóku gildi 1. janúar 1995.Breytt meðl. 37/1995 (tóku gildi 9. mars 1995), l. 82/1998 (tóku gildi 1. okt. 1998), l. 58/2001 (tóku gildi 13. júní 200158/2001; EES-samningurinn: XXII. viðauki tilskipun 78/660/EBE), l. 133/2001 (tóku gildi 1. jan. 2002 nema 1. gr., a-, b- og c-liður 3. gr., b- og c-liður 17. gr., c-liður 19. gr., 34. gr., a-liður 35. gr., b-liður 36. gr., 37. gr., 38. gr., 39. gr., 40. gr., a-liður 41. gr., 42. gr. og 52. gr. sem tóku gildi 31. des. 2001 og 44. gr. sem tók gildi 1. jan. 2003; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 56. gr.), l. 25/2002 (tóku gildi 8. apríl 2002; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 10. gr.), l. 56/2003 (tóku gildi 7. apríl 2003, sjá þó 45. gr.; EES-samningurinn: XXII. viðauki tilskipun 78/660/EBE og 83/349/EBE og IX. viðauki tilskipun 86/635/EBE), l. 28/2004 (tóku gildi 11. maí 2004; sjá nánar 7. gr. s.l.; EES-samningurinn: XXII. viðauki tilskipun 78/660/EBE, IX. og XXII. viðauki tilskipun 86/635/EBE), l. 45/2005 (tóku gildi 30. maí 2005; EES-samningurinn: XXII. viðauki tilskipun 78/660/EBE, 83/349/EBE og reglugerð 1606/2002) og l. 135/2005 (tóku gildi 30. des. 2005). Endurútgefin, sbr. 6. gr. l. 135/2005, sem l. 3/2006. Tóku gildi 26. janúar 2006.EES-samningurinn: XXII. viðauki tilskipun 78/660/EBE, 83/349/EBE og reglugerð 1606/2002. Breytt meðl. 108/2006 (tóku gildi 1. nóv. 2006 skv. augl. C 1/2006), l. 160/2006 (tóku gildi 30. des. 2006), l. 171/2007 (tóku gildi 29. des. 2007), l. 80/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009; EES-samningurinn: XXII. viðauki tilskipun 2006/43/EB), l. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008), l. 162/2008 (tóku gildi 31. des. 2008), l. 98/2009 (tóku gildi 1. okt. 2009 nema 69. og 70. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2010), l. 68/2010 (tóku gildi 24. júní 2010 nema ákvæði um lengingu lágmarksfrests til boðunar aðalfunda í hlutafélögum sem tóku gildi 1. jan. 2011; EES-samningurinn: XXII. viðauki tilmæli 2004/913/EB og 2005/162/EB), l. 82/2011 (tóku gildi 1. sept. 2011 nema brbákv. sem tók gildi 30. júní 2011), l. 118/2011 (tóku gildi 29. sept. 2011; EES-samningurinn: IX. viðauki reglugerð 1569/2007) og l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
III. kafli.Efnahagsreikningur, rekstrarreikningur og sjóðstreymi. 14. gr. Á efnahagsreikning eru færðar eignir og skuldir, þ.m.t. skuldbindingar og eigið fé sem er mismunur eigna og skulda. Eign skal færð á efnahagsreikning þegar líklegt er að félagið hafi af henni fjárhagslegan ávinning í framtíðinni og virði hennar má meta með áreiðanlegum hætti. Skuld skal færð á efnahagsreikning þegar líklegt þykir að til greiðslu hennar komi og virði hennar má meta með áreiðanlegum hætti. Við útreikning og mat á eignum og skuldum skal taka tillit til allra aðstæðna, þ.m.t. áhættu og taps, sem í ljós koma áður en ársreikningur er saminn. Jafnframt er heimilt að taka tillit til fyrirsjáanlegrar áhættu og taps sem í ljós kemur áður en ársreikningur er saminn. 15. gr. Eignir, sem ætlaðar eru til varanlegrar eignar eða notkunar, teljast fastafjármunir. Eignir, sem eru ekki ætlaðar til varanlegrar eignar eða notkunar, teljast veltufjármunir. Kröfur, fyrirframgreiðslur og skuldir, sem falla til greiðslu eftir lengri tíma en eitt ár, skulu færast sem fastafjármunir eða langtímaskuldir eftir því sem við á. Aðrar kröfur, fyrirframgreiðslur og skuldir færast sem veltufjármunir eða skammtímaskuldir eftir því sem við á. 16. gr. Félög, sem falla undir 2. tölul. 1. mgr. 1. gr., skulu að uppfylltum ákvæðum settra reikningsskilareglna er varðar framtíðarmöguleika til tekjuöflunar telja til eignar þróunarkostnað og óefnisleg réttindi, svo sem einkaleyfi, einkarétt, vörumerki og þess háttar réttindi, ef þeirra er aflað gegn greiðslu. Ef þessir liðir nema verulegum fjárhæðum skulu þeir sýndir sérstaklega eða þeirra getið í skýringum í ársreikningi. Félög, sem falla undir 3. og 4. tölul. 1. mgr. 1. gr., eru undanþegin skyldunni skv. 1. mgr. þessarar greinar. 17. gr. Kostnað við stofnun félags eða hækkun hlutafjár má ekki færa til eignar. 18. gr. Afföll og lántökukostnað af seldum eða keyptum verðbréfum má færa í efnahagsreikning og skulu þá færð til gjalda eða tekna með reglubundnum hætti á lánstímanum. Gera skal grein fyrir eftirstöðvum af þessari dreifingu í skýringum. 19. gr. Eigin hlutir skulu færðir til lækkunar á heildarhlutafé. Þó er heimilt að færa eigin hluti í hlutafélögum, sem keyptir hafa verið á síðustu tveimur reikningsárum, til eignar, enda hafi þeirra verið aflað í þeim tilgangi að selja þá aftur. 20. gr. Allar tekjur og öll gjöld reikningsársins skulu koma fram á rekstrarreikningi nema lög þessi eða settar reikningsskilareglur kveði á um annað. 21. gr. Hrein velta samanstendur af tekjum af sölu á vörum og þjónustu í reglulegri starfsemi, að frádregnum afslætti og sköttum sem tengjast sölunni beint. 22. gr. Tekjur og gjöld, sem tengjast ekki reglulegri starfsemi, skal sýna sérstaklega í rekstrarreikningi og greina frá eðli þeirra í skýringum nema um óverulegar fjárhæðir sé að ræða. Tekjur og gjöld, sem varða fyrri reikningsár, skulu færast til breytinga á óráðstöfuðu eigin fé í ársbyrjun þegar um er að ræða skekkju eða breytingu á reikningsskilaaðferð. Samanburðarfjárhæðum skal þá breytt til samræmis nema það sé bundið sérstökum vandkvæðum og skal það þá upplýst í skýringum. 23. gr. Varanlegir rekstrarfjármunir, sem nýtast takmarkaðan tíma vegna aldurs, úreldingar eða slits eða af hliðstæðum ástæðum, skulu afskrifaðir árlega á kerfisbundinn hátt á áætluðum endingartíma þeirra. Ef þessir fjármunir eru endurmetnir samkvæmt ákvæðum 31. gr. ber að hækka afskriftarstofn þeirra um þá endurmatshækkun. Þetta á þó ekki við um eignir sem færðar eru á gangvirði skv. 39. gr. Afskrift skal reikna með hliðsjón af væntanlegu lokavirði eftir að notkunartíma lýkur. 24. gr. Kostnaður, sem eignfærður er, sbr. 16. gr., vegna óefnislegra réttinda eða þróunar, skal afskrifaður með kerfisbundnum hætti á áætluðum nýtingartíma viðkomandi eigna, þó ekki á lengri tíma en 20 árum. Ef þessar eignir hafa ekki ákveðinn líftíma er þó heimilt að meta þær árlega í samræmi við settar reikningsskilareglur. Sé áætlaður nýtingartími lengri en fimm ár skal gera grein fyrir ástæðum þess í skýringum. 25. gr. Áætlaður hagnaður af samningi um langtímaverkefni skal innleystur hlutfallslega eftir því sem verkefninu miðar. Áætlað tap á samningi um langtímaverkefni skal gjaldfært strax. Þegar ekki er hægt að áætla hagnað eða tap á samningi um langtímaverkefni af nægilegri nákvæmni skulu tekjur af samningnum aðeins innleystar að því marki sem þær standa undir kostnaði við verkefnið. Kostnaður skal gjaldfærður þegar hann fellur til. 26. gr. Gjöld, sem stofnað er til á reikningsárinu en varða síðari reikningsár, skal færa til eignar í efnahagsreikningi sem fyrirframgreiddan kostnað. Tekjur, sem innheimtar hafa verið á reikningsárinu en varða síðari reikningsár, skal færa til skuldar í efnahagsreikningi sem fyrirframinnheimtar tekjur. Ef þessir liðir nema verulegum fjárhæðum skulu þeir sýndir sérstaklega eða þeirra getið í skýringum í ársreikningi. Gjöld, sem varða reikningsárið en koma til greiðslu síðar, skal færa til skuldar í efnahagsreikningi. Tekjur, sem varða reikningsárið en innheimtast eftir lok þess, skal færa til eignar í efnahagsreikningi. Ef þessir liðir nema verulegum fjárhæðum skulu þeir sýndir sérstaklega eða þeirra getið í skýringum í ársreikningi. 27. gr. Færa skal til gjalda og skuldar fjárhæðir sem ætlað er að mæta útgjöldum vegna skýrt skilgreindra skuldbindinga, svo sem skattskuldbindinga og eftirlaunaskuldbindinga, sem varða reikningsárið eða fyrri ár og eru sennilega eða örugglega áfallnar á reikningsskiladegi en óvissar að því er fjárhæð varðar eða hvenær þær falla til greiðslu, jafnvel þótt slíkt komi fyrst í ljós eftir lok reikningsárs en áður en ársreikningur er saminn. Þær skulu ekki nema hærri fjárhæð en nauðsynlegt er talið. Skuldbindingar skv. 1. mgr. má eigi nota til matsbreytinga á eignum eða jafna á móti eignum. Sjóðstreymi. 28. gr. Í yfirliti um sjóðstreymi skal færa inn- og útgreiðslur á árinu, án tillits til þess hvenær færslan fer fram á rekstrar- og efnahagsreikningi. Yfirlitið skal greina frá sjóðstreymi á tilteknu tímabili og skal það flokkað í rekstrar-, fjárfestingar- og fjármögnunarhreyfingar. Enn fremur skal yfirlitið sýna sérstaklega breytingar á handbæru fé og handbært fé við upphaf og lok reikningsárs. Tilgreina skal samsvarandi fjárhæðir vegna liðanna á fyrra reikningsári. Ef liðirnir eru ekki sambærilegir við liði á fyrra ári skal aðlaga þá síðarnefndu. Sleppa má að aðlaga samanburðarfjárhæðir ef þær eru ósambærilegar vegna breytinga á starfsemi. Liði á sjóðstreymisyfirliti, sem innihalda ekki neina fjárhæð, skal aðeins taka með ef slíkur liður var í reikningsskilum fyrra reikningsárs.
IV. kafli.Matsreglur. 29. gr. Fastafjármuni skal eigi meta til eignar við hærra verði en kostnaðarverði, sbr. þó ákvæði 31., 36., 39. og 40. gr. Kostnaðarverð varanlegra rekstrarfjármuna samanstendur af kaupverði þeirra og þeim kostnaði sem hlýst af öflun og endurbótum á þeim fram til þess tíma að þeir eru teknir í notkun. Framleiðslukostnaðarverð varanlegra rekstrarfjármuna samanstendur af kostnaðarverði hráefnis og hjálparefna, svo og vinnuafls að viðbættum kostnaðarauka sem beint eða óbeint leiðir af framleiðslu fjármunanna. Til kostnaðarverðs má enn fremur telja fjármagnskostnað af lánsfé sem nýtt er til að fjármagna kaup eða framleiðslu varanlegra rekstrarfjármuna á framleiðslutímanum. Ef fjármagnskostnaður er talinn til kostnaðarverðs skal greint frá því í skýringum. Eignarleigusamningar skulu í samræmi við samningsákvæði og settar reikningsskilareglur færðir í efnahagsreikning ef þeir nema verulegum fjárhæðum. 30. gr. Ef markaðsverð varanlegra rekstrarfjármuna og óefnislegra eigna er lægra en bókfært verð þeirra skv. 23. eða 29. gr. og ástæður þess verða ekki taldar skammvinnar ber að færa verð þeirra niður að því marki sem telja verður nauðsynlegt samkvæmt settum reikningsskilareglum. Áhættufjármunir og langtímakröfur skulu sæta niðurfærslu ef markaðsverð þessara eigna er lægra en bókfært verð, svo sem vegna hættu á að kröfur muni ekki innheimtast eða af öðrum ástæðum. Ef eignir hafa verið færðar niður skv. 1. eða 2. mgr. og ástæður verðlækkunarinnar eiga ekki lengur við ber að færa bókfært verð þeirra til fyrra horfs. Matsbreytingar skv. 1.–3. mgr. skal færa í rekstrarreikning. Ef þær eru ekki sérgreindar í rekstrarreikningnum skal gera grein fyrir þeim í skýringum, enda sé um verulegar fjárhæðir að ræða. 31. gr. Ef markaðsverð fastafjármuna, annarra en þeirra sem um ræðir í 36. og 39. gr., er talið verulega hærra en bókfært verð þeirra af ástæðum, sem taldar eru varanlegar, er heimilt að hækka bókfært verð þeirra í ársreikningi til markaðsverðs. Matsbreytingar skv. 1. mgr. skal færa á sérstakan endurmatsreikning meðal eigin fjár. Endurmatsreikning, sem myndaður er skv. 2. mgr., skal leysa upp til jafns við fjárhæð árlegrar afskriftar af mismun á endurmetnu verði og kostnaðarverði. Einnig skal leysa upp endurmatsreikning ef hin endurmetna eign er seld, tekin úr notkun eða fullafskrifuð, svo og ef forsendur fyrir endurmatinu eru ekki lengur fyrir hendi. Hreyfingar á endurmatsreikningi á reikningsárinu skal sundurliða í skýringum. Ef beitt er ákvæðum 1. mgr. skal í skýringum gera nákvæma grein fyrir þeim aðferðum sem viðhafðar eru. 32. gr. Veltufjármuni skal ekki færa til eignar við hærra verði en kostnaðarverði eða raunvirði ef það er lægra. Kostnaðarverð veltufjármuna samanstendur af kaupverði og þeim kostnaði sem tengist beint öflun þeirra. Til kostnaðarverðs má enn fremur telja eðlilegt hlutfall af útgjöldum sem tengjast öfluninni óbeint, enda hafi útgjöldin fallið til á sama tímabili og eignanna var aflað eða þær voru framleiddar. 33. gr. Birgðir skal meta á kostnaðarverði eða dagverði, hvort sem lægra reynist. Ef birgðir eru metnar við dagverði og það er verulega lægra en kostnaðarverð skal gera grein fyrir því í skýringum. Kostnaðarverð birgða tekur til alls kostnaðar við kaup á birgðum eða áfallins kostnaðar við framleiðslu þeirra, sbr. 3. mgr. 29. gr. Auk þess telst til kostnaðarverðs birgða allur kostnaður við að koma þeim á núverandi stað og í það ástand sem þær eru. Dreifingarkostnað má ekki telja til kostnaðarverðs birgða. 34. gr. Við umreikning á liðum í efnahagsreikningi, sem byggjast á erlendum gjaldmiðli, skal miðað við lokagengi reikningsskiladagsins þegar um er að ræða peningalegar eignir og skuldir. Í öðrum liðum efnahagsreiknings skal miðað við lokagengi viðskiptadagsins. 35. gr. Skammtímakröfur skulu sæta niðurfærslu ef raunvirði þeirra er lægra en bókfært verð, svo sem vegna hættu á að kröfur muni ekki innheimtast eða af öðrum ástæðum. Ákvæði 3. mgr. og 1. málsl. 4. mgr. 30. gr. gilda um þetta eftir því sem við á. 36. gr. Heimilt er að meta til gangvirðis fjármálagerninga ef þeirra hefur verið aflað í þeim tilgangi að selja aftur eða til að hagnast á skammtímaverðbreytingum. Ef heimildin er notuð skal meta til gangvirðis skuldbindingar sem tengjast afleiðusamningum eða loforði um afhendingu fjármálagerninga sem enn eru ekki í eigu viðkomandi félags. Einnig má meta eignir og skuldbindingar, sem þeim tengjast, á gangvirði þegar þessar eignir og skuldbindingar uppfylla kröfur um áhættuvörn í skilningi settra reikningsskilareglna og skulu slíkar eignir og skuldbindingar metnar til gangvirðis eins og krafist er í þeim reikningsskilum. Ákvæði þetta nær þó ekki til:
1. útlána og viðskiptakrafna viðkomandi félags sem ekki er fyrirhugað að versla með, 2. fjármálagerninga, annarra en afleiðusamninga, sem ætlunin er að eiga fram að gjalddaga, 3. eignarhluta í dótturfélögum, 4. eignarhluta í hlutdeildarfélögum, 5. eignarhluta í samrekstrarfélögum, sbr. 3. mgr. 40. gr., 6. eigin eignarhluta, skilyrts viðbótarverðs við sameiningu fyrirtækja, sem og annarra fjármálagerninga sem tengjast eigin fé viðkomandi félags, 7. allra annarra fjármálagerninga sem ekki er viðeigandi að færa á gangvirði samkvæmt settum reikningsskilareglum. Til fjármálagerninga teljast hvers konar framseljanleg kröfuréttindi til peningagreiðslu eða ígildis hennar, þ.m.t. afleiður þar sem uppgjörsákvæði byggjast á breytingum á undirliggjandi þáttum á tilteknu tímabili, svo sem vöxtum, gengi gjaldmiðla, verðbréfaverði eða verðbréfavísitölu, eða þær tengjast breytingu á verði tiltekinna vörutegunda, enn fremur framseljanleg skilríki á eignarréttindum að öðru en fasteign eða einstökum lausafjármunum, svo sem hlutabréf. 37. gr. Mat á fjármálagerningum og skuldbindingum til gangvirðis skv. 36. gr. skal vera í samræmi við settar reikningsskilareglur. Einungis er heimilt að beita slíku mati ef það byggist á áreiðanlegum upplýsingum um gangvirði. Gangvirði skal ákvarðað með tilliti til:
1. markaðsverðs þeirra fjármálagerninga sem eru á virkum markaði, 2. markaðsverðs undirliggjandi þátta í viðkomandi fjármálagerningi ef viðkomandi fjármálagerningur er ekki skráður á markaði, 3. virðis sem reiknað er út með almennum viðurkenndum matslíkönum eða matsaðferðum fyrir þær eignir sem ekki eru á markaði; slík matslíkön og matsaðferðir skulu gefa góða mynd af markaðsverði. Ef ekki er hægt að meta þessar eignir eða skuldbindingar til gangvirðis samkvæmt framangreindum aðferðum skal matið byggjast á kostnaðarverði skv. 29. gr. 38. gr. Á rekstrarreikning skal færa þær breytingar á virði fjármálagerninga og skuldbindinga sem metnar eru í samræmi við 37. gr., þrátt fyrir ákvæði a-liðar 3. tölul. 1. mgr. 11. gr., sbr. þó 2. mgr. Þar með eru taldar breytingar á virði afleiðusamninga og annarra fjármálagerninga sem aflað hefur verið í þeim tilgangi að hagnast á skammtímaverðbreytingum. Slík breyting skal þó færð beint á gangvirðisreikning sem færður er með eigin fé þegar:
1. í reikningsskilum afleiðusamnings er byggt á að um sé að ræða áhættuvörn í skilningi settra reikningsskilareglna, að því marki sem þær leyfa að verðbreyting sé ekki tekin með í rekstrarreikningi eða 2. um er að ræða verðbreytingar á virði fjármálagerninga sem aflað er í þeim tilgangi að selja aftur eða 3. verðbreytingar tengjast gengismun sem verður á peningalegum liðum sem eru hluti af nettófjárfestingu félagsins í starfsemi erlendis. Samræmi skal vera í færslu breytinga á virði fjármálagerninga og skuldbindinga skv. 1. eða 2. mgr. frá einu ári til annars. Leysa skal gangvirðisreikning upp til jafns við framkomnar breytingar á viðkomandi eign eða skuldbindingu þegar hún er seld eða innleyst eða forsendur fyrir verðbreytingunni eru ekki fyrir hendi. 39. gr. Félög, sem eru með starfsemi á sviði fjárfestinga í fjárfestingareignum, mega meta eignir og skuldbindingar, sem þeim tengjast innan þessarar starfsemi, til gangvirðis. Með fjárfestingareign er átt við eign sem ætluð er til öflunar tekna, svo sem til útleigu, en ekki til notkunar í rekstri félags. Ákvæði 1. mgr. tekur til fjárfestinga í fjárfestingareignum eða hluta þeirra, svo sem fasteigna og annarra efnislegra eigna ásamt skuldbindingum þeim tengdum. Félög, sem stunda eldi á lifandi dýrum eða rækta plöntur, í þeim tilgangi að selja þau eða afurðir þeirra, með úrvinnslu eða framleiðslu í huga, mega meta þær eignir á gangvirði. Við mat á eignum og skuldbindingum þeim tengdum, sbr. 1.–3. mgr., skulu ákvæði 37. gr. gilda. Breyting á virði eigna og skuldbindinga, sem tengjast þeim, sbr. 2. og 3. mgr., skal færð á rekstrarreikning. Tengd félög. 40. gr. Móðurfélag skal færa eignarhlut sinn í dótturfélagi til eignar samkvæmt hlutdeildaraðferð í samræmi við hlutdeild sína í eigin fé dótturfélagsins. Þó er heimilt að styðjast við kostnaðarverð þegar heimilt er að halda dótturfélögum utan samstæðureiknings, sbr. ákvæði 70. gr. Mismunur á upphaflegu kaupverði eignarhlutans annars vegar og hlutdeildar í eigin fé dótturfélagsins á kaupdegi hins vegar skal enn fremur hafa áhrif á bókfært verð fjárfestingar í dótturfélaginu. Einnig skal beita hlutdeildaraðferð við eignfærslu á eignarhlutum í hlutdeildarfélögum. Þó er heimilt að styðjast við kostnaðarverð að uppfylltum skilyrðum 70. gr. Nú rekur félag starfsemi í sameign með einu eða fleiri félögum og skal þá beita hlutdeildaraðferð vegna samrekstrarins, sbr. þó 70. gr. 41. gr. Þegar hlutdeildaraðferð er beitt skal taka tillit til rekstrarárangurs og annarra breytinga á eigin fé dóttur- eða hlutdeildarfélagsins. Hlutdeild þess í rekstrarárangri skal færa til tekna eða gjalda sem áhrif dóttur- og hlutdeildarfélaga í rekstrarreikningi. Hlutdeild í endurmatsbreytingum dóttur- eða hlutdeildarfélagsins skal færa á endurmatsreikning. Hafi félag greitt meira fyrir fjárfestingu sína í dóttur- eða hlutdeildarfélagi en sem nemur hlutdeild í hreinni eign þess við kaup ber að heimfæra mismuninn undir tilgreindar eignir ef það er unnt, ella telst hann viðskiptavild. Mismun þennan ber að afskrifa með sama hætti og þær eignir. Ef mismunurinn telst viðskiptavild skal hún afskrifuð með kerfisbundnum hætti á áætluðum nýtingartíma hennar, þó ekki lengri tíma en 20 árum, eða metin árlega í samræmi við settar reikningsskilareglur, hafi hún ekki ákveðinn líftíma, sbr. 24. gr. Gjaldfærsla á framangreindum mismun skal færð sem áhrif dóttur- eða hlutdeildarfélags í rekstrarreikningi. Hafi félag hins vegar greitt minna fyrir fjárfestingu sína í dóttur- eða hlutdeildarfélagi en sem nemur hlutdeild í hreinni eign þess við kaup ber að heimfæra mismuninn á sama hátt og að framan greinir en með öfugum formerkjum. Móttekinn arður vegna eignarhluta í félagi, sem meðhöndlað er samkvæmt hlutdeildaraðferð, skal færður til lækkunar á eignarhluta í því. Taka skal tillit til hagnaðar af viðskiptum milli félaga innan sömu samstæðu, sem ekki hefur verið innleystur með sölu til aðila utan samstæðunnar, við mat á verðmæti eignarhluta í dótturfélagi. Breyting á reikningsskilaaðferð, reikningshaldslegu mati og skekkjur. 42. gr. Breyti félag um reikningsskilaaðferð á grundvelli ákvæða laga, reglugerða eða reikningsskilastaðla um slíka breytingu skulu þeir liðir í ársreikningnum, sem það hefur áhrif á, breytast í samræmi við nýja aðferð. Mismunurinn færist á eigið fé. Breytast samanburðarfjárhæðir til samræmis við hina nýju aðferð. Gera skal grein fyrir þessum breytingum í skýringum. Ef reikningshaldslegu mati er breytt frá fyrra reikningsári skulu áhrifin koma fram á rekstrarreikningi á því tímabili, sem matsbreytingin er gerð á, og á síðari tímabilum, ef við á. Samanburðarfjárhæðir fyrri ára haldast óbreyttar. Ef óljóst er hvort um breytingu á reikningshaldslegu mati eða reikningsskilaaðferð er að ræða skal flokka breytinguna sem matsbreytingu. Ef ársreikningur fyrra reikningsárs hefur verið rangur í þeim mæli að hann hefur ekki gefið glögga mynd skulu áhrif af leiðréttingunni færast á eigið fé í ársbyrjun og samanburðarfjárhæðir leiðréttast samsvarandi. Gera skal grein fyrir þessum breytingum í skýringum.
V. kafli.Skýringar. 43. gr. Í skýringum í ársreikningi skal a.m.k. veita upplýsingar um þau atriði sem tilgreind eru í 44.–64. gr. auk þeirra upplýsinga sem krafist er samkvæmt öðrum ákvæðum laga þessara. 44. gr. Veita skal upplýsingar um mat á einstökum liðum ársreiknings, þar á meðal þær aðferðir sem beitt er við sérstakt endurmat fastafjármuna og afskriftir þeirra. Ef fjárhæðir í ársreikningi eru byggðar á erlendum gjaldmiðli á reikningsskiladegi skal tilgreina það gengi, sem við er miðað, og til samanburðar gengi sem við var miðað í reikningsskilum fyrra árs. 45. gr. Veita skal eftirfarandi upplýsingar þegar fjármálagerningar eru metnir til gangvirðis skv. 37. gr.:
1. helstu forsendur sem liggja að baki matslíkönum og matsaðferðum þegar gangvirði er ákvarðað skv. 3. tölul. 2. mgr. 37. gr., 2. breytingar á virði fyrir hvern flokk fjármálagerninga hvort sem breytingin hefur verið færð á rekstrarreikning eða á gangvirðisreikning, 3. umfang og eðli hvers flokks afleiðusamninga, þ.m.t. mikilvægi skilmála og skilyrði sem gætu haft áhrif á fjárhæð, tímasetningu og áreiðanleika framtíðarfjárstreymis og 4. hreyfingar á gangvirðisreikningi á árinu. 46. gr. Veita skal eftirfarandi upplýsingar um afleidda fjármálagerninga, sbr. 36. gr., sem félag hefur ekki metið í ársreikningi sínum til gangvirðis:
1. gangvirði fyrir hvern flokk afleiddra fjármálagerninga ef hægt er að ákvarða það með einhverri þeirra aðferða sem fram kemur í 37. gr. og 2. umfang og eðli gerninganna. Þegar um er að ræða áhættufjármuni, sem eru fjármálagerningar í skilningi 3. mgr. 36. gr., og niðurfærsla í samræmi við 30. gr. hefur ekki farið fram skal upplýsa um bókfært verð og gangvirði einstakra eigna eða flokka eigna. Rökstyðja skal forsendur þess álits að um skammvinna verðlækkun sé að ræða. Fyrir fjárfestingar í dóttur- og hlutdeildarfélögum, sbr. 40. gr., skal jafnframt upplýst um gangvirði einstakra eignarhluta eða eignaflokka. 47. gr. Ef samsetning á starfsemi félags breytist á reikningsárinu skal veita upplýsingar um það. Ef ekki er hægt að aðlaga fjárhæðir ársreiknings fyrra árs skal gera grein fyrir því á fullnægjandi hátt í skýringum. 48. gr. Tilgreina skal nöfn, heimilisföng og félagsform dótturfélaga og hlutdeildarfélaga. Geta skal hlutdeildar í hverju þeirra fyrir sig og eigin fjár þeirra samtals, svo og rekstrarárangurs síðasta reikningsárs. Ekki er nauðsynlegt að veita þessar upplýsingar ef þær hafa óverulega þýðingu. Heimilt er að víkja frá ákvæðum 1. mgr. um upplýsingar um eigið fé og rekstrarárangur dóttur- og hlutdeildarfélaga ef:
1. hlutdeildarfélag birtir ekki ársreikning sinn og hlutur félagsins í eigin fé þess er minni en 50%, 2. reikningsskil dótturfélags eru hluti af samstæðureikningi félagsins eða 3. félagið metur eignarhluta sína samkvæmt hlutdeildaraðferð, sbr. 40. gr. 49. gr. Í skýringum skal tilgreina nöfn, heimilisföng og form félaga með ótakmarkaðri ábyrgð sem félagið er aðili að. Ekki þarf að gefa þessar upplýsingar ef þær hafa óverulega þýðingu. Ákvæði 2. mgr. 48. gr. gilda einnig eftir því sem við á. 50. gr. Ef eignarhlutum í félagi er skipt í flokka skal sérgreina þá og tilgreina fjölda hluta og nafnverð þeirra eða bókfært verð ef nafnverð er ekki fyrir hendi. Í hlutafélögum skal ávallt tilgreina fjölda hluta og nafnverð þeirra. 51. gr. Hafi félagið tekið skuldabréfalán er veitir lánardrottnum rétt til að breyta kröfum sínum á hendur félaginu í hluti í því skal tilgreina eftirstöðvar hvers láns, skiptihlutfall og frest þann sem veittur hefur verið til breytingar í hluti. Hafi skuldabréfalán með rétti til vaxta verið tekið og vaxtakjörin ráðast að nokkru eða öllu leyti af rekstrarárangri félagsins skal tilgreina eftirstöðvar hvers láns og hina umsömdu ávöxtun. Sams konar upplýsingar skal veita um hlutdeildarskírteini og önnur sambærileg réttindi eftir því sem við á, m.a. um fjölda þeirra. 52. gr. Veita skal upplýsingar um þann hluta skulda, sem fellur árlega til greiðslu á næstu fimm árum frá lokum reikningsárs, annars vegar og hins vegar vegna þess hluta sem fellur til greiðslu síðar. Hafi félag sett eignir að veði skal veita upplýsingar um fjárhæð veðsetninganna og bókfært verð veðsettra eigna, sundurliðað eftir eignum. Heildartryggingar í þágu dótturfélaga og annarra félaga innan sömu samstæðu skulu tilgreindar sérstaklega. Veita skal upplýsingar um heildarfjárhæðir lífeyris-, ábyrgðar- og tryggingarskuldbindinga, seld viðskiptabréf og aðrar fjárskuldbindingar sem eru ekki tilfærðar í efnahagsreikningi, að því leyti sem það skiptir máli við mat á fjárhagsstöðu. Skuldbindingar gagnvart móðurfélagi og dótturfélögum þess skal tilgreina sérstaklega. Hafi félagið gert leigusamninga til lengri tíma en eins árs, sem nema verulegum fjárhæðum og ekki koma fram í efnahagsreikningi, skulu slíkar skuldbindingar tilgreindar sérstaklega. 53. gr. Tilgreina skal fjárhæðir lána, svo og veðsetningar, ábyrgðir og tryggingar sem veittar hafa verið félagsaðilum eða stjórnendum félags eða móðurfélags þess vegna tengsla þessara aðila við félögin, sundurliðað ásamt upplýsingum um vexti, greiðslukjör og aðra helstu skilmála. Ákvæði 1. mgr. eiga einnig við gagnvart einstaklingum, nátengdum þeim sem þar eru taldir. 54. gr. Upplýsa skal um síðasta opinbert fasteignamat. Sama á við um vátryggingarverðmæti varanlegra rekstrarfjármuna. 55. gr. Upplýsa skal um hvernig hagnaður af langtímaverkefnum er innleystur í rekstrarreikningi. 56. gr. Félög skv. 1. og 2. tölul. 1. mgr. 1. gr. skulu upplýsa um skiptingu rekstrartekna eftir starfsþáttum og markaðssvæðum ef þessir þættir og svæði hafa veruleg áhrif í rekstri félaganna. 57. gr. Upplýsa skal um heildarfjárhæð skatta vegna rekstrar á árinu og eigna í lok þess. Upplýsa skal um skattaleg áhrif af óreglulegum rekstrarliðum. Upplýsa skal um frestaða skattskuldbindingu eða skattinneign vegna mismunar á gjaldfærðum sköttum á reikningsárinu og fyrri árum annars vegar og þeim sköttum, sem álagðir eru vegna sömu ára, hins vegar nema þessar upplýsingar hafi óverulega þýðingu. Upplýsingar skv. 3. mgr. skulu bera með sér á hvaða liðum ársreiknings skattkvöðin hvílir. 58. gr. Upplýsa skal um heildarlaunakostnað og fjölda starfsmanna að meðaltali á reikningsári. Samsvarandi upplýsingar skal veita fyrir fyrra reikningsár. 59. gr. Félög skv. 1. og 2. tölul. 1. mgr. 1. gr. skulu veita upplýsingar um starfsmannakostnað, þ.m.t. launakostnað, eftirlaun, iðgjöld til lífeyrissjóða og annan launatengdan kostnað. Veita skal enn fremur upplýsingar um heildarlaun, þóknanir og ágóðahluta til núverandi og fyrrverandi stjórnenda félags vegna starfa í þágu þess. Greina skal frá samningum sem gerðir hafa verið við stjórn, framkvæmdastjóra eða starfsmenn um eftirlaun og tilgreina heildarskuldbindingar. Samsvarandi upplýsingar skal veita fyrir fyrra reikningsár. 60. gr. Eftirfarandi upplýsingar skal veita um eign félags á eigin hlutum:
1. fjölda og nafnverð eigin hluta, svo og hlutfall þeirra af heildarhlutum, 2. fjölda og nafnverð eigin hluta sem hafa verið keyptir eða seldir á reikningsárinu, svo og kaup- og söluverð þeirra og 3. ástæður þess að félagið eignaðist eigin hluti á reikningsárinu. Sömu upplýsingarnar og taldar eru í 1. mgr. skal veita ef tekið hefur verið veð í eigin hlutum. Sömu upplýsingar og getið er í 1. og 2. mgr. skal veita um hluti í félagi sem dótturfélag þess hefur eignast eða látið af hendi á reikningsárinu. 61. gr. Sundurliða skal breytingar á eigin fé félags á reikningsárinu. 62. gr. Félag, sem er hluti samstæðu, skal tilgreina nafn og aðsetur móðurfélags síns og móðurfélags heildarsamstæðunnar. Enn fremur skal upplýsa um hvar samstæðureikningar erlendra móðurfélaga skv. 1. mgr. liggja frammi. 63. gr. Félag skal gera grein fyrir viðskiptum við tengda aðila, þ.m.t. á hverju tengslin við viðkomandi aðila byggjast. Með tengdum aðila er m.a. átt við móðurfélög, dótturfélög, hlutdeildarfélög og samrekstrarfélög. Sleppa má þessum upplýsingum við samstæðureikningsskil vegna viðskipta innan samstæðunnar. 64. gr. Félög skv. 1. og 2. tölul. 1. mgr. 1. gr. skulu upplýsa um starfsemi sem er lögð niður, lokað eða hætt á reikningsárinu eða samkvæmt áætlun skal láta af hendi, loka eða hætta, að því tilskildu að hægt sé að skilja hana frá annarri starfsemi. Í því felst m.a. að tilgreina, að svo miklu leyti sem unnt er, hagnað eða tap af aflagðri starfsemi ásamt skattalegum áhrifum og áhrif hennar á flokka yfirlits um sjóðstreymi.
[VII. kafli A.Árshlutareikningsskil.]1) 1)L. 171/2007, 7. gr. [87. gr. a.Árshlutareikningur. Félag skv. 1. tölul. 1. mgr. 1. gr. sem gefið hefur út hlutabréf eða skuldabréf sem tekin hafa verið til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins skal semja árshlutareikning vegna fyrstu sex mánaða reikningsársins. Ef endurskoðendur hafa ekki áritað árshlutareikninginn skal það koma fram í árshlutaskýrslu stjórnar. Árshlutareikningurinn skal hafa að geyma styttan rekstrarreikning, styttan efnahagsreikning í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla, sjóðstreymi, skýringar og árshlutaskýrslu stjórnar, sbr. 87. gr. b, ásamt árshlutayfirlýsingu stjórnarmanna, sbr. 87. gr. c, og áritun endurskoðanda þegar það á við. Við samningu árshlutareiknings skal fylgja sömu meginreglum um færslu og mat og gildir um samningu ársreiknings. Ákvæði um samningu árshlutareikninga samkvæmt þessari grein skulu jafnframt gilda um samstæðureikninga eftir því sem við á. Ákvæði 2.–5. mgr. taka einnig til fyrstu þriggja og níu mánaða árshlutareikninga, kjósi félag að semja slík reikningsskil.]1) 1)L. 171/2007, 7. gr. [87. gr. b.Árshlutaskýrsla stjórnar. Í árshlutaskýrslu stjórnar félaga skv. 1. tölul. 1. mgr. 1. gr. vegna fyrstu sex mánaða reikningsársins skal að minnsta kosti tilgreina mikilvæga atburði sem átt hafa sér stað á fyrstu sex mánuðum reikningsársins og áhrif þeirra á árshlutareikninginn. Jafnframt skal árshlutaskýrsla stjórnar geyma lýsingu á helstu áhættu- og óvissuþáttum þeirra sex mánaða sem eftir eru af reikningsárinu og meiri háttar viðskiptum við tengda aðila.]1) 1)L. 171/2007, 7. gr. [87. gr. c.Árshlutayfirlýsing stjórnarmanna. Í félagi skv. 1. tölul. 1. mgr. 1. gr. sem gefið hefur út hlutabréf eða skuldabréf sem tekin hafa verið til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins skal hver og einn stjórnarmaður undirrita yfirlýsingu þar sem fram kemur nafn hans og verksvið innan stjórnar félagsins. Í yfirlýsingunni skal koma fram að samkvæmt bestu vitneskju stjórnarmanna sé árshlutareikningur, sbr. 87. gr. a, saminn í samræmi við VIII. kafla og gefi glögga mynd af eignum og skuldum, fjárhagsstöðu og rekstrarafkomu félagsins og samstæðunnar í heild, og að árshlutaskýrsla stjórnar, skv. 87. gr. b, gefi skýra mynd af þeim upplýsingum sem krafist er.]1) 1)L. 171/2007, 7. gr. [87. gr. d.Undanþága. Ákvæði kafla þessa gilda ekki um félög sem eingöngu gefa út skuldabréf á skipulegum verðbréfamarkaði í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins þar sem nafnverð hverrar útgefinnar einingar er hærra en 4.600.000 kr. Fjárhæð þessi er grunnfjárhæð sem er bundin gengi evru 3. janúar 2007 (92,37 íslenskar krónur).]1) 1)L. 171/2007, 7. gr. [87. gr. e.Birting árshlutareiknings. Félag skv. 1. tölul. 1. mgr. 1. gr. sem gefið hefur út hlutabréf eða skuldabréf sem tekin hafa verið til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins skal birta árshlutareikning, sbr. 3. mgr. 87. gr. a, í samræmi við ákvæði VII. kafla laga um verðbréfaviðskipti.]1) 1)L. 171/2007, 7. gr.
VIII. kafli.Alþjóðlegir reikningsskilastaðlar. 88. gr. Ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 frá 19. júlí 2002, um beitingu alþjóðlegra reikningsskilastaðla, skulu hafa lagagildi hér á landi í samræmi við bókun I um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið, með síðari breytingum, þar sem bókunin er lögfest. Reglugerð (EB) nr. 1606/2002, um beitingu alþjóðlegra reikningsskilastaðla, er prentuð sem fylgiskjal með lögum þessum. Gildissvið kaflans. 89. gr. Ákvæði þessa kafla gilda um félög sem falla undir lög þessi eins og nánar greinir í 90. og 92. gr. Skylda til að beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum við gerð samstæðureiknings og ársreiknings. 90. gr. Félag skv. 1. tölul. 1. mgr. 1. gr. skal skv. 4. gr. reglugerðar (EB) nr. 1606/2002 beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum við samningu samstæðureiknings síns. Félagi skv. 1. mgr., sem ber að beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum við samningu samstæðureiknings skv. 4. gr. reglugerðar (EB) nr. 1606/2002, er [heimilt]1) að beita þeim einnig við samningu ársreiknings síns. Sama gildir um ársreikninga dótturfélaga sem eru innifalin í samstæðureikningsskilunum, svo og um félög skv. 1. málsl. 4. tölul. 1. mgr. 1. gr. sem eru í meirihlutaeigu félaga í samstæðunni. [Félag skv. 2. og 3. tölul. og 2. málsl. 4. tölul. 1. mgr. 1. gr. sem hefur eingöngu skuldabréf sín skráð á skipulegum verðbréfamarkaði í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins, í aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum skal beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum við samningu samstæðureiknings ef því ber að semja samstæðureikning samkvæmt lögum þessum.]1) Félag skv. 1. tölul. 1. mgr. 1. gr. [og 3. mgr. þessarar greinar],1) sem ekki er skylt að semja samstæðureikning, skal beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum við samningu ársreiknings síns. 1)L. 171/2007, 8. gr. 91. gr. Félag, sem skylt er að beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum skv. 90. gr. og uppfyllir ekki lengur skráningu á skipulögðum verðbréfamarkaði í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins, [í aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum],1) skal beita stöðlunum við samningu [samstæðureiknings eða]2) ársreiknings fyrir það sama ár og það næsta á eftir. Þetta ákvæði á þó ekki við um dótturfélög sem eru ekki lengur hluti af samstæðunni. 1)L. 108/2006, 12. gr.2)L. 171/2007, 9. gr. Heimild til að beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum. 92. gr. Félagi skv. 2. tölul. 1. mgr. og 2. málsl. 4. tölul. 1. mgr. 1. gr. er heimilt að beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum við samningu ársreiknings síns og samstæðureiknings. [Félagi skv. 1. mgr. sem kýs að beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum við samningu samstæðureiknings sem því er skylt að semja er einnig heimilt að beita þeim við samningu ársreiknings síns.]1) …1) Sama gildir um ársreikninga dótturfélaga sem eru innifalin í samstæðureikningsskilum, svo og um ársreikninga félaga skv. 1. málsl. 4. tölul. 1. mgr. 1. gr. sem eru í meirihlutaeigu félaga skv. 2. tölul. 1. mgr. 1. gr. Félag samkvæmt þessari grein skal tilkynna ársreikningaskrá fyrir upphaf viðkomandi reikningsárs ákvörðun sína um að beita alþjóðlegum reikningsskilastöðum samkvæmt þessum kafla. Félag skal beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum í fimm ár samfleytt hið minnsta. Ársreikningaskrá skal birta reglulega með rafrænum og aðgengilegum hætti lista yfir félög sem skyld eru til að beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum eða nýta sér heimild samkvæmt þessari grein. 1)L. 171/2007, 10. gr. Um beitingu alþjóðlegra reikningsskilastaðla. 93. gr. Félag, sem skylt er að beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum eða nýtir sér heimild 92. gr., skal fylgja þeim að öllu leyti. Þar sem alþjóðlegir reikningsskilastaðlar, sem framkvæmdastjórn ESB hefur samþykkt skv. 3. gr. reglugerðar (EB) nr. 1606/2002, og ákvæði annarra kafla laga þessara mæla fyrir um sama atriði ganga alþjóðlegir reikningsskilastaðlar framar. Að því leyti sem ekki er kveðið á um tiltekið atriði í alþjóðlegum reikningsskilastöðlum, sem framkvæmdastjórn ESB hefur samþykkt skv. 3. gr. reglugerðar (EB) nr. 1606/2002, gilda önnur ákvæði laga þessara. Eftirlit með beitingu alþjóðlegra reikningsskilastaðla. 94. gr. Ársreikningaskrá skal hafa eftirlit með öllum félögum sem skylt er að beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum eða nýta sér heimild til beitingar þeirra, sbr. 92. gr. [Eftirlitið nær jafnframt til árshlutareikninga, sbr. VII. kafla A.]1) Ársreikningaskrá getur krafist allra þeirra upplýsinga og gagna sem nauðsynleg eru til að framkvæma eftirlitið, þ.m.t. vinnuskjöl sem varða reikningsskil frá stjórn, framkvæmdastjóra og endurskoðanda félagsins. Ársreikningaskrá er heimilt að kalla aðila með sérfræðiþekkingu til aðstoðar við eftirlit. Jafnframt er ársreikningaskrá í einstökum tilvikum heimilt að fela sérfróðum aðilum það eftirlit sem ársreikningaskrá er falið samkvæmt lögum þessum. [Þegar um er að ræða félag sem er með skráða skrifstofu utan Evrópska efnahagssvæðisins en gefur út verðbréf sín sem skráð eru á skipulegum verðbréfamarkaði hér á landi skal ársreikningaskrá hafa eftirlit með því hvort ársreikningur sem saminn er samkvæmt bindandi opinberum fyrirmælum heimaríkis er hliðstæður ákvæðum þessara laga. Ráðherra getur sett reglugerð um nánari ákvæði varðandi framkvæmd þessa eftirlits.]2) Ársreikningaskrá skal birta með rafrænum og aðgengilegum hætti niðurstöður hvers eftirlits sem framkvæmt hefur verið samkvæmt þessari grein. 1)L. 171/2007, 11. gr.2)L. 118/2011, 2. gr. [94. gr. a.Dagsektir. Ársreikningaskrá getur lagt dagsektir á eftirlitsskyld félög samkvæmt kafla þessum veiti þau ekki umbeðnar upplýsingar innan hæfilegs frests. Greiðast dagsektirnar þangað til umbeðnar upplýsingar hafa borist ársreikningaskrá. Dagsektirnar geta numið frá 10.000 kr. til 100.000 kr. á dag. Við ákvörðun um fjárhæð dagsekta er heimilt að taka tillit til fjárhagslegs styrkleika viðkomandi félags og hvort um ítrekað brot er að ræða. Ákvörðun um dagsektir má skjóta til yfirskattanefndar innan 14 daga frá því að viðkomandi aðila var tilkynnt um hana. Áfallnar dagsektir falla ekki niður þó að eftirlitsskylt félag verði síðar við kröfu ársreikningaskrár. Dagsektir samkvæmt þessari grein eru aðfararhæfar og renna til ríkissjóðs. Heimilt er að kveða nánar á um ákvörðun og innheimtu dagsekta í reglugerð.]1) 1)L. 171/2007, 12. gr. [94. gr. b.Úrskurðir. Komist ársreikningaskrá að þeirri niðurstöðu að reikningsskil eftirlitsskylds félags séu ekki í samræmi við ákvæði laganna getur ársreikningaskrá krafist þess að reikningsskilin séu leiðrétt og að félagið birti breytingar og/eða viðbótarupplýsingar sem nauðsynlegar eru. Ársreikningaskrá getur birt opinberlega upplýsingar um nauðsynlegar breytingar á reikningsskilum verði félagið ekki við kröfum hennar. Þessu til viðbótar getur ársreikningaskrá óskað eftir því við viðkomandi kauphöll að viðskiptum með verðbréf eftirlitsskylds félags verði hætt tímabundið á skipulegum verðbréfamarkaði, þar til félagið hefur birt fullnægjandi reikningsskil og/eða viðbótarupplýsingar að mati ársreikningaskrár. Úrskurður ársreikningaskrár er kæranlegur til [ráðherra]1) innan 14 daga frá því að hann er kynntur þeim er hann beinist að. Tekur úrskurðurinn ekki gildi ef kært er nema ráðherra staðfesti hann. Að öðru leyti skal farið með brot á lögum þessum í samræmi við ákvæði XII. kafla.]2) 1)L. 98/2009, 50. gr.2)L. 171/2007, 12. gr. Umsýslu- og eftirlitsgjald. 95. gr. Gjaldskyldir aðilar samkvæmt lögum þessum skulu greiða árlegt umsýslu- og eftirlitsgjald. Skal gjaldið vera 100.000 kr. á hvert móðurfélag og 50.000 kr. á hvert dótturfélag innan samstæðu. Ársreikningaskrá sér um innheimtu gjaldsins og renna tekjur af gjaldinu í ríkissjóð. Gjalddagi umsýslu- og eftirlitsgjalds er 1. febrúar og eindagi 15. febrúar. Sé gjald greitt eftir eindaga hverrar greiðslu reiknast dráttarvextir á greiðsluna frá gjalddaga í samræmi við lög um vexti og verðtryggingu. [Við upphaf hvers reikningsárs skulu félög sem beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum samkvæmt þessum kafla gera ársreikningaskrá grein fyrir öllum dótturfélögum sínum sem eru innifalin í samstæðureikningsskilunum og hvert af þeim beita stöðlunum.]1) 1)L. 171/2007, 13. gr.
IX. kafli.Endurskoðun. 96. gr. Aðalfundur eða almennur félagsfundur kýs einn eða fleiri endurskoðendur, endurskoðunarfélag eða skoðunarmenn, í samræmi við lög þessi og samþykktir félagsins. Í samþykktum má enn fremur fela opinberum eða öðrum aðilum að tilnefna einn eða fleiri endurskoðendur, endurskoðunarfélag eða skoðunarmenn. Þegar félagsmenn, sem fara með minnst [einn tíunda]1) hluta atkvæða á aðalfundi þar sem kjósa skal endurskoðendur, endurskoðunarfélag eða skoðunarmenn, krefjast þess skal stjórn félagsins beina þeim tilmælum til ársreikningaskrár að hún tilnefni endurskoðanda til að taka þátt í endurskoðunarstörfum með þeim sem kjörnir eru fram til næsta aðalfundar. Telji ársreikningaskráin ástæðu til að verða við þessari ósk skal hún tilnefna endurskoðanda til starfans. Þóknun til hans skal félagið greiða. 1)L. 68/2010, 29. gr. 97. gr. Af þeim aðilum, sem kosnir eru til endurskoðunarstarfa, skal a.m.k. einn vera heimilisfastur hér á landi. [Búsetuskilyrðið gildir þó ekki um ríkisborgara þeirra ríkja sem eru aðilar að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, stofnsamningi Fríverslunarsamtaka Evrópu eða Færeyinga enda séu hlutaðeigandi búsettir í EES-ríki, aðildarríki stofnsamningsins eða Færeyjum.]1) Skoðunarmenn skulu vera lögráða og fjár síns ráðandi. Þeir skulu hafa þá reynslu í bókhaldi og viðskiptaháttum sem með hliðsjón af starfsemi og stærð félagsins er nauðsynleg til rækslu starfans. Hæfisskilyrði 9. gr. laga nr. 18/1997, um löggilta endurskoðendur, eiga einnig við um skoðunarmenn. 1)L. 108/2006, 13. gr. 98. gr. Í félögum, sem fara fram úr tvennum af eftirfarandi stærðarmörkum tvö ár í röð, skal kjósa a.m.k. einn endurskoðanda eða endurskoðunarfélag:
1. eignir nema 120.000.000 kr., 2. rekstrartekjur nema 240.000.000 kr., 3. fjöldi ársverka á reikningsári er 50.
Þegar ljóst er við stofnun félags eða upphaf rekstrar að einhverjum framangreindum mörkum verði þegar náð skal regla þessarar málsgreinar gilda frá þeim tíma. Félög, sem hafa hlutabréf eða skuldabréf skráð á skipulegum verðbréfamarkaði í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins, [í aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum],1) skulu kjósa a.m.k. einn endurskoðanda. Í félögum þar sem ekki eru lagðar hömlur á viðskipti með eignarhluta skal kjósa a.m.k. einn endurskoðanda. Samvinnufélög, er hafa B-deild stofnsjóðs, skulu kjósa a.m.k. einn endurskoðanda. Félagsmenn, sem fara með minnst einn fimmta hluta atkvæða á fundi þar sem kjósa skal endurskoðendur eða skoðunarmenn, geta á fundinum krafist þess að kosinn verði a.m.k. einn endurskoðandi. 1)L. 108/2006, 12. gr. 99. gr. Kjósa skal a.m.k. einn af endurskoðendum eða skoðunarmönnum móðurfélags til að gegna sams konar starfa fyrir dótturfélag ef þess er nokkur kostur. Ekki má kjósa neinn þann til endurskoðunarstarfa fyrir dótturfélag sem væri ekki hæfur til að gegna sama starfi fyrir móðurfélag. Endurskoðandi eða skoðunarmaður má hvorki vera skuldugur félaginu eða félögum innan sömu samstæðu né njóta ábyrgða af hálfu þeirra. 100. gr. Í samþykktum félaga skal kveða á um starfstíma endurskoðenda eða skoðunarmanna. Starfi þeirra lýkur við lok þess aðalfundar þegar kjósa skal þá að nýju. Hafi endurskoðandi eða skoðunarmaður verið kosinn til ótiltekins tíma lýkur starfi hans þegar annar hefur verið kosinn í hans stað. …1) Í félögum, sem eru skráð á skipulegum verðbréfamarkaði í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins, [í aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum],2) skal þegar í stað senda tilkynningu um starfslok endurskoðanda til viðkomandi verðbréfamarkaðar. Endurskoðendur og skoðunarmenn geta hvenær sem er sagt af sér störfum. Þeir sem kusu þá geta einnig leyst þá frá störfum þótt starfstíma þeirra sé ekki lokið. Ljúki starfi endurskoðanda eða skoðunarmanns áður en kjörtímabili hans lýkur eða uppfylli hann ekki lengur skilyrði til starfans skal stjórn félagsins hlutast til um að nýr endurskoðandi eða skoðunarmaður verði þegar í stað valinn. Í félögum, sem hafa hlutabréf sín eða skuldabréf skráð á skipulegum verðbréfamarkaði í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins, [í aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum],2) skal boða til fundar innan viku frá því að endurskoðandi sagði starfi sínu lausu eða var leystur frá störfum þar sem kjósa skal annan endurskoðanda. Hafi endurskoðandi eða skoðunarmaður sagt starfi sínu lausu eða verið leystur frá störfum skal hann veita þeim er kosinn er í hans stað upplýsingar um hverjar hann telur vera ástæður starfslokanna. 1)L. 171/2007, 14. gr.2)L. 108/2006, 12. gr. 101. gr. Ef endurskoðandi eða skoðunarmaður er ekki valinn, kjör hans brýtur í bága við lög þessi eða samþykktir félagsins eða hann uppfyllir ekki lengur hæfisskilyrði laganna skal ársreikningaskrá tilnefna endurskoðanda eða skoðunarmann að ósk stjórnarmanns, framkvæmdastjóra eða félagsaðila. Hafi félagsfundur ekki orðið við kröfu um að kjósa endurskoðanda skv. 5. mgr. 98. gr. tilnefnir ársreikningaskrá endurskoðanda að ósk félagsmanns. Tilmælin skulu borin fram innan mánaðar frá því að félagsfundur var haldinn. Tilnefning endurskoðanda eða skoðunarmanns samkvæmt þessari grein gildir uns endurskoðandi eða skoðunarmaður hefur verið kosinn. 102. gr. Endurskoðendur eða skoðunarmenn skulu endurskoða ársreikninginn í samræmi við góða endurskoðunarvenju og í því sambandi kanna bókhaldsgögn félagsins og aðra þætti er varða rekstur þess og stöðu. Í móðurfélögum skulu endurskoðendur eða skoðunarmenn jafnframt endurskoða samstæðureikninginn. Ef endurskoðendur eða skoðunarmenn verða þess varir að stjórnendur félags hafi í störfum sínum fyrir það ekki farið að lögum, þannig að það geti haft í för með sér ábyrgð fyrir þá eða félagið, eða brotið gegn félagssamþykktum skulu þeir gera aðalfundi grein fyrir því. Ef kosinn er skoðunarmaður úr hópi félagsaðila, í samræmi við samþykktir félagsins, skal sú verkaskipting ríkja milli þeirra að endurskoðandi eða skoðunarmaður, sbr. 96. gr., annast endurskoðun reikninga félagsins í samræmi við 1. mgr. en skoðunarmenn kjörnir úr hópi félagsaðila skulu fylgjast með því að farið hafi verið eftir ákvörðunum félagsfunda og stjórnar um öflun, ráðstöfun og ávöxtun fjármuna og önnur atriði í rekstrinum á reikningsárinu. Endurskoðandi eða skoðunarmaður skal verða við tilmælum félagsfundar um endurskoðunina ef þau eru ekki andstæð lögum, félagssamþykktum eða góðri endurskoðunarvenju. 103. gr. Stjórn félags og framkvæmdastjóri skulu koma á framfæri við endurskoðendur eða skoðunarmenn þeim upplýsingum og gögnum sem þeir telja að hafi þýðingu vegna endurskoðunarinnar. Stjórnendur dótturfélags hafa sömu skyldum að gegna gagnvart endurskoðendum og skoðunarmönnum móðurfélags. Stjórn félags og framkvæmdastjóri skulu veita endurskoðendum og skoðunarmönnum þær upplýsingar, gögn, aðstöðu og aðstoð sem endurskoðendur eða skoðunarmenn telja nauðsynlega vegna starfa síns. Stjórnendur dótturfélags hafa sömu skyldum að gegna gagnvart endurskoðendum og skoðunarmönnum móðurfélags. 104. gr. Endurskoðendur eða skoðunarmenn skulu að lokinni endurskoðun árita ársreikninginn og enn fremur samstæðureikning ef hann er saminn og skal áritunin fylgja ársreikningnum. Í árituninni skal koma fram að ársreikningurinn eða samstæðureikningurinn hafi verið endurskoðaður. Þá skal koma fram álit endurskoðenda eða skoðunarmanna á því hvort ársreikningurinn eða samstæðureikningurinn sé saminn í samræmi við ákvæði laga og settar reikningsskilareglur, svo og greinargerð um niðurstöðu endurskoðunarinnar að öðru leyti. Ef endurskoðendur eða skoðunarmenn telja að ekki beri að samþykkja ársreikninginn skulu þeir taka það fram sérstaklega. Endurskoðendur eða skoðunarmenn skulu sannreyna að skýrsla stjórnar hafi að geyma þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við ársreikninginn og vekja athygli á því í áritun sinni ef svo er ekki. 105. gr. Ábendingar og athugasemdir, sem endurskoðendur eða skoðunarmenn vilja koma á framfæri við stjórn eða framkvæmdastjóra, skal skrá í sérstaka endurskoðunarbók eða færa fram skriflega á annan hátt. Stjórnin skal varðveita gögn þessi á öruggan hátt. 106. gr. [Áritun endurskoðenda og skoðunarmanna skal a.m.k. innihalda:]1) 1. inngang þar sem fram kemur hvaða ársreikning er verið að endurskoða og hvaða reikningsskilareglum hefur verið beitt við samningu ársreiknings, 2. lýsingu á umfangi endurskoðunar þar sem fram koma a.m.k. þær endurskoðunarreglur sem notaðar voru, 3. …1) álit endurskoðenda eða skoðunarmanna um hvort ársreikningurinn gefur glögga mynd samkvæmt viðeigandi reikningsskilareglum og, eftir því sem við á, hvort ársreikningurinn uppfyllir lögboðnar kröfur; áritunin skal vera án fyrirvara, með fyrirvara, neikvæð eða ef þeir geta ekki gefið álit skal gerð grein fyrir því, 4. tilvísun til mála sem endurskoðendur eða skoðunarmenn vekja sérstaka athygli á án þess að gefa áritun með fyrirvara, 5. álit um það hvort skýrsla stjórnar hefur að geyma þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við ársreikninginn og skulu endurskoðendur og skoðunarmenn vekja athygli á því í áritun sinni ef svo er ekki. Endurskoðendur eða skoðunarmenn skulu skrifa undir og dagsetja [áritunina].1) 1)L. 171/2007, 15. gr. 107. gr. Endurskoðendur og skoðunarmenn eiga rétt á að sitja félagsfundi. Þá skulu þeir sitja fundi ef félagsstjórn eða framkvæmdastjóri, einstakir stjórnarmenn eða félagsaðilar fara þess á leit. Í félögum, sem hafa hlutabréf sín eða skuldabréf skráð á skipulegum verðbréfamarkaði í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins, [í aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum],1) skulu endurskoðendur sitja aðalfundi. Á aðalfundi skulu endurskoðendur eða skoðunarmenn svara fyrirspurnum um ársreikning þann sem til umfjöllunar er og þeir hafa áritað. Enn fremur eiga endurskoðendur og skoðunarmenn rétt á að sitja stjórnarfundi þegar fjallað er um reikningsskil sem þeir hafa áritað. Þá skulu þeir sitja stjórnarfundi ef a.m.k. einn stjórnarmaður fer þess á leit. 1)L. 108/2006, 12. gr. 108. gr. Endurskoðendum, skoðunarmönnum og samstarfsmönnum þeirra er óheimilt að veita einstökum félagsaðilum eða óviðkomandi aðilum upplýsingar um hag félagsins.
X. kafli.Birting ársreiknings. 109. gr. Eigi síðar en mánuði eftir samþykkt ársreiknings, þó eigi síðar en átta mánuðum eftir lok reikningsárs, skal félag skv. 1. gr. senda ársreikningaskrá ársreikning sinn, sbr. 3. gr., ásamt áritun endurskoðenda eða skoðunarmanna og upplýsingar um hvenær ársreikningurinn var samþykktur. Ársreikninga félaga, sem hafa hlutabréf sín eða skuldabréf skráð á skipulegum verðbréfamarkaði í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins, [í aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum],1) skal þó senda þegar í stað eftir samþykkt þeirra og eigi síðar en [fjórum]2) mánuðum eftir lok reikningsárs. Sama gildir um ársreikninga félaga sem beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum samkvæmt heimild í 92. gr. Skil á ársreikningi í [rafrænu]2) formi eru heimil í samræmi við reglur sem ársreikningaskrá setur. Á sama hátt skulu félög, sem skyld eru til að semja samstæðureikninga skv. VII. kafla, senda ársreikningaskrá samstæðureikning innan sama tímafrests ásamt áritun endurskoðenda eða skoðunarmanna. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er félögum, sem fara ekki fram úr stærðarmörkunum í 2. tölul. 1. mgr. 1. gr., heimilt að senda ársreikningaskrá samandregna útgáfu ársreiknings, sbr. 3. gr., ásamt áritun endurskoðenda eða skoðunarmanna og upplýsingar um hvenær ársreikningurinn var samþykktur. Heimild þessi nær þó ekki til félaga sem hafa hlutabréf sín eða skuldabréf skráð á skipulegum verðbréfamarkaði í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins, [í aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum]1) og ekki heldur til félaga sem leggja ekki hömlur á viðskipti með eignarhluta sína eða félaga sem ber að beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum skv. 2. mgr. 92. gr. Ársreikningaskrá skal veita aðgang að þeim gögnum sem skilaskyld eru samkvæmt þessari grein. Ríkisskattstjóri starfrækir ársreikningaskrá. 1)L. 108/2006, 12. gr.2)L. 171/2007, 16. gr. 110. gr. Sameignarfélög og samlagsfélög, sem tilgreind eru í 4. tölul. 1. mgr. 1. gr., skulu senda ársreikningaskrá tilkynningu um nafn, heimilisfang, félagsform og atvinnugrein sína samtímis því að þau senda henni í fyrsta sinn birtingarskyld gögn skv. 109. gr. Sameignarfélög og samlagsfélög, sem nýta sér undanþáguheimildir 114. eða 115. gr., skulu veita upplýsingar um nöfn og heimilisföng þeirra félaga sem semja ársreikninga þeirra eða innifela þá í samstæðureikningum sínum ef eftir því er leitað. 111. gr. Ef félag birtir ársreikning sinn eða samstæðureikning í heild skal hann vera í sama formi og hann var samþykktur á aðalfundi með áritun endurskoðenda eða skoðunarmanna. Nú er ársreikningur eða samstæðureikningur ekki birtur í heild og skal þá koma fram með ótvíræðum hætti að hann sé samandreginn. 112. gr. Útibússtjórar í útibúum erlendra félaga, sem skráð eru hér á landi, skulu í síðasta lagi átta mánuðum eftir lok reikningsárs senda staðfest endurrit ársreiknings …1) félagsins til ársreikningaskrár ásamt reikningsskilum útibúsins. Reikningar, sem sendir eru ársreikningaskrá skv. 1. mgr., skulu vera í sama formi og ber að birta þá samkvæmt gildandi reglum í heimaríki félagsins. Ársreikninga fyrir erlent félag, sem lýtur löggjöf EES-ríkis, má senda ársreikningaskrá óendurskoðaða ef slíkt samræmist löggjöf í heimaríki félagsins. Ársreikningaskrá skal veita aðgang að þeim gögnum sem skilaskyld eru samkvæmt þessari grein. 1)L. 171/2007, 17. gr. 113. gr. Í stað þess að senda ársreikningaskrá ársreikning sinn getur erlent dótturfélag, sem rekur útibú hér á landi og lýtur löggjöf annars EES-ríkis, sent ársreikningaskrá samstæðureikning móðurfélags síns ef:
1. móðurfélagið lýtur löggjöf EES-ríkis, 2. allir félagsaðilar hafa samþykkt þessa aðferð, 3. móðurfélagið ábyrgist skuldbindingar félagsins, 4. reikningar félagsins og dótturfélaga þess eru teknir með í samstæðureikningi móðurfélagsins í samræmi við ákvæði laga þessara um samstæðureikninga, 5. getið er um reikningsskilaaðferðir við gerð samstæðureikningsins og 6. samstæðureikningurinn ásamt skýrslu stjórnar og áritun endurskoðenda er sendur ársreikningaskrá ásamt staðfestingu á því sem tilgreint er í 2. og 3. tölul. Í stað þess að senda ársreikningaskrá ársreikninga sína geta önnur erlend félög sent henni samstæðureikning móðurfélaga sinna ef það samræmist þeirri löggjöf sem um þau gildir og
1. skilyrði 2., 3., 5. og 6. tölul. 1. mgr. eru uppfyllt og 2. ársreikningaskrá telur að samstæðureikningarnir séu gerðir í samræmi við ákvæði laga þessara. Tilkynning skv. 2. tölul. 1. mgr. skal send fyrir hvert reikningsár. Yfirlýsing um efni 3. tölul. 1. mgr. gildir uns hún hefur verið afturkölluð. 114. gr. Sameignarfélag eða samlagsfélag, sem tilgreint er í 4. tölul. 1. mgr. 1. gr., þarf ekki að senda ársreikningaskrá ársreikning sinn ef a.m.k. einn af félagsaðilum þess er heimilisfastur hér á landi, semur ársreikning fyrir félagið og lætur endurskoða hann og senda skránni ásamt sínum eigin ársreikningi. Félag, sem um ræðir í 1. mgr. þar sem enginn félagsaðili er heimilisfastur hér á landi, þarf ekki að senda ársreikningaskrá ársreikning sinn ef einhver félagsaðili þess:
1. lýtur löggjöf EES-ríkis, 2. semur ársreikning fyrir félagið og lætur endurskoða hann samkvæmt ákvæðum þeirrar löggjafar og 3. sendir ársreikningaskrá ársreikninginn innan þeirra tímamarka, sem greinir í 1. mgr. 109. gr., ásamt sínum eigin ársreikningi eða opinbera staðfestingu á að ársreikningar félagsins hafi verið birtir í samræmi við löggjöfina sem nefnd er í 1. tölul. Félagsaðili getur haft ársreikning skv. 1. mgr. sem hluta af eigin ársskýrslu. 115. gr. Sameignarfélag eða samlagsfélag, sem tilgreint er í 4. tölul. 1. mgr. 1. gr., þarf ekki að senda ársreikningaskrá ársreikning sinn ef hann er hluti af samstæðureikningi félagsaðila sem saminn er og endurskoðaður í samræmi við ákvæði laga þessara og sendur ársreikningaskrá. Ákvæði 1. mgr. eiga enn fremur við ef ársreikningur félags er hluti af samstæðureikningi móðurfélags þess félagsaðila sem ekki er skylt að senda ársreikningaskrá samstæðureikning sinn, sbr. 4. tölul. 1. mgr. 1. gr. Í samstæðureikningum þeim sem greinir í 1. og 2. mgr. skal geta þess í skýringum ef félag skv. 4. tölul. 1. mgr. 1. gr. sendir ársreikningaskrá ekki ársreikning sinn. Innan tímamarka 1. mgr. 109. gr. skal senda ársreikningaskrá samstæðureikninga skv. 1. og 2. mgr. eða staðfestingu opinbers aðila á að ársreikningur hafi verið saminn og birtur í samræmi við ákvæði 1. mgr. 116. gr. Þegar sérstakar samkeppnisaðstæður mæla með því geta félög, sem á reikningsskiladegi fara ekki fram úr tvennum af eftirfarandi stærðarmörkum, sent ársreikningaskrá samandreginn rekstrarreikning samkvæmt nánari reglum sem [ráðherra]1) setur:
1. eignir nema samtals 575.000.000 kr., 2. rekstrartekjur nema samtals 1.150.000.000 kr., 3. fjöldi ársverka á reikningsári er a.m.k. 250. Heimildinni til þess að beita ákvæði 1. mgr. má aðeins breyta ef félag hefur á reikningsskiladegi farið fram úr eða fer ekki lengur fram úr tvennum af þeim mörkum, sem nefnd eru í 1. mgr., tvö reikningsár í röð. 1)L. 98/2009, 50. gr. 117. gr. Ársreikningaskrá skal gera úrtakskannanir og athuganir á ársreikningum, samstæðureikningum og skýrslum stjórna í því skyni að sannreyna að þessi gögn séu í samræmi við ákvæði þessara laga. Hún getur krafist þeirra upplýsinga hjá hverju félagi sem nauðsynlegar eru í þessu sambandi. Í því skyni að sannreyna hvort félög uppfylli ákvæði laganna um stærðarmörk til að mega skila samandregnum ársreikningum og samstæðureikningum hefur ársreikningaskrá heimild til að afla upplýsinga hjá ríkisskattstjóra um nöfn og kennitölur þeirra félaga sem lög þessi taka til og fara yfir þau stærðarmörk sem greinir í 4. tölul. 1. mgr. 1. gr.
XI. kafli.Reikningsskilaráð og reikningsskilareglur. 118. gr. Ráðherra skal skipa fimm sérfróða menn til fjögurra ára í senn í nefnd sem nefnist reikningsskilaráð. Skal einn nefndarmanna tilnefndur af Félagi löggiltra endurskoðenda, annar af viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, þriðji af Verslunarráði Íslands, sá fjórði skal vera ríkisendurskoðandi en einn nefndarmaður er skipaður án tilnefningar. Ráðherra skipar formann reikningsskilaráðs úr hópi nefndarmanna. 119. gr. Reikningsskilaráð skal stuðla að mótun settra reikningsskilareglna með útgáfu og kynningu samræmdra reglna sem farið skal eftir við gerð reikningsskila. Ráðið skal gefa álit á því hvað teljast settar reikningsskilareglur á hverjum tíma. Birta skal reglur reikningsskilaráðs í B-deild Stjórnartíðinda. Ráðið skal starfa í nánu samráði við Félag löggiltra endurskoðenda og hagsmunaaðila. Það getur einnig verið stjórnvöldum til ráðuneytis um ákvæði sem sett eru í lögum eða reglugerðum um reikningsskil.
XII. kafli.Viðurlög og málsmeðferð. 120. gr. Hver sem af ásetningi eða stórfelldu gáleysi brýtur gegn ákvæðum laga þessara á þann hátt sem lýst er í 122.–125. gr. skal sæta fésektum, en brot gegn 121. gr. og önnur meiri háttar brot gegn 122. og 123. gr. varða fangelsi allt að sex árum skv. 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga eða fésektum ef málsbætur eru miklar. 121. gr. [Ef stjórnarmenn eða framkvæmdastjórar félaga, sem falla undir 1. tölul., 2. tölul. eða 2. málsl. 4. tölul. 1. gr., vanrækja að semja ársreikning eða samstæðureikning er lög þessi kveða á um eða vanrækja að standa skil á ársreikningi eða samstæðureikningi til opinberrar birtingar, telst sú háttsemi vera meiri háttar brot gegn lögunum. Ef stjórnarmenn eða framkvæmdastjórar félaga skv. 1. gr. rangfæra ársreikning, samstæðureikning eða einstaka hluta þeirra, byggja ekki samningu þeirra á niðurstöðu bókhalds eða láta rangar eða villandi skýringar fylgja, enda varði brotið ekki við 158. gr. almennra hegningarlaga, telst sú háttsemi vera meiri háttar brot gegn lögunum. Sama á við ef maður aðstoðar stjórnarmenn eða framkvæmdastjóra félaga við þau brot sem lýst er í þessari grein eða stuðlar að þeim á annan hátt.]1) 1)L. 160/2006, 1. gr. 122. gr. Stjórnarmenn eða framkvæmdastjóri félags skv. 1. gr. gerast sekir um refsivert brot gegn lögum þessum með athöfnum þeim eða athafnaleysi því sem hér greinir:
1. Ef þeir haga gerð ársreiknings eða samstæðureiknings andstætt lögum þessum þannig að reikningsskilin gefi ekki glögga mynd í samræmi við settar reikningsskilareglur af rekstrarafkomu á reikningsárinu, eignabreytingu á árinu og efnahag í lok þess eða þeir brjóta í bága við fyrirmæli í IX. og X. kafla laga þessara, enda liggi ekki við broti þessu þyngri refsing samkvæmt þeim lögum eða öðrum. 2. Ef þeir í skýrslu stjórnar greina ranglega frá eða leyna mikilsverðum upplýsingum sem þýðingu hafa um mat á fjárhagslegri stöðu félagsins eða samstæðunnar og á afkomu þeirra á reikningsárinu. [Ef stjórnarmenn eða framkvæmdastjórar félaga, sem falla undir 3. tölul. eða 1. málsl. 4. tölul. 1. gr., vanrækja að semja ársreikning eða samstæðureikning er lög þessi kveða á um, telst sú háttsemi vera brot gegn lögum þessum.]1) Sama á við ef maður aðstoðar stjórnarmenn eða framkvæmdastjóra félaga við þau brot sem lýst er í þessari grein eða stuðlar að þeim á annan hátt. 1)L. 160/2006, 2. gr. 123. gr. Endurskoðendur eða skoðunarmenn gerast sekir um refsiverð brot gegn lögum þessum með athöfnum eða athafnaleysi því sem hér greinir:
1. Ef þeir taka að sér að framkvæma endurskoðun án þess að uppfylla hæfisskilyrði laganna. 2. Ef þeir haga störfum sínum andstætt ákvæðum laga þessara eða í ósamræmi við góða endurskoðunarvenju. 3. Ef þeir með áritun sinni gefa rangar eða villandi upplýsingar eða láta hjá líða að geta um mikilsverð atriði er snerta rekstrarafkomu eða efnahag félagsins. 124. gr. Tilraun til brota og hlutdeild í brotum á lögum þessum, önnur en sú sem lýst er í 121. og 122. gr. laga þessara, er refsiverð eftir því sem segir í III. kafla almennra hegningarlaga. 125. gr. Gera má lögaðila fésekt fyrir brot gegn lögum þessum óháð því hvort brotið megi rekja til saknæms verknaðar fyrirsvarsmanns eða starfsmanns lögaðilans. Hafi fyrirsvarsmaður hans eða starfsmaður gerst sekur um brot á lögum þessum má auk þeirrar refsingar, sem hann sætir, gera lögaðilanum sekt og sviptingu starfsréttinda, enda sé brotið drýgt til hagsbóta fyrir lögaðilann eða hann hafi notið hagnaðar af brotinu. 126. gr. [Embætti sérstaks saksóknara]1) fer með frumrannsókn [sakamála]2) vegna brota á lögum þessum. Skattrannsóknarstjóri ríkisins getur á hvaða stigi rannsóknar sem er vísað máli til [rannsóknar lögreglu]2) af sjálfsdáðum, svo og eftir ósk sökunautar ef hann vill ekki hlíta því að málið verði fengið yfirskattanefnd til úrlausnar. Yfirskattanefnd úrskurðar sektir vegna brota á lögum þessum nema máli sé vísað til …2) rannsóknar og dómsmeðferðar skv. 1. mgr., [sbr. þó 3. mgr.]3) Skattrannsóknarstjóri ríkisins leggur mál fyrir yfirskattanefnd og kemur fram af hálfu hins opinbera fyrir nefndinni þegar hún úrskurðar sektir. Úrskurðir yfirskattanefndar eru fullnaðarúrskurðir. Vararefsing fylgir ekki sektarúrskurðum hennar. [Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. er ársreikningaskrá heimilt að leggja sektir á þau félög sem falla undir 3. tölul. eða 1. málsl. 4. tölul. 1. gr. og vanrækja að standa skil á ársreikningi eða samstæðureikningi til opinberrar birtingar. Við mat á því hvort félög falla undir 3. tölul. eða 1. málsl. 4. tölul. 1. gr. er ársreikningaskrá heimilt að nýta sér upplýsingar frá ríkisskattstjóra skv. 2. mgr. 117. gr. Þá er ársreikningaskrá heimilt að leggja sektir á félög sem falla undir 1. gr. laganna og vanrækja að leggja fram fullnægjandi upplýsingar eða skýringar með ársreikningi eða samstæðureikningi sem lagður hefur verið fram til opinberrar birtingar. Heimild ársreikningaskrár til að leggja á sektir samkvæmt þessari málsgrein er óháð því hvort brotið megi rekja til saknæms verknaðar fyrirsvarsmanns eða starfsmanns lögaðilans. Sektarfjárhæðin nemur allt að 500.000 kr. og rennur í ríkissjóð. Sektin er aðfararhæf. Sektarákvörðun ársreikningaskrár er kæranleg til yfirskattanefndar, sbr. lög nr. 30/1992. [Ráðherra]4) skal setja reglugerð5) um nánari framkvæmd á sektarheimild ársreikningaskrár.]3) Sektir fyrir brot á lögum þessum renna í ríkissjóð. Sakir samkvæmt lögum þessum fyrnast á sex árum miðað við upphaf rannsóknar á vegum skattrannsóknarstjóra ríkisins eða [embættis sérstaks saksóknara]1) eða hjá löglærðum fulltrúum þeirra, gegn manni sem sökunaut, enda verði ekki óeðlilegar tafir á rannsókn máls eða ákvörðun refsingar. 1)L. 82/2011, 5. gr.2)L. 88/2008, 234. gr.3)L. 160/2006, 3. gr.4)L. 98/2009, 50. gr.5)Rg. 664/2008.
XIII. kafli.Ýmis ákvæði. 127. gr. Ráðherra getur sett reglugerð1) um framkvæmd laga þessara, þar á meðal um alþjóðlega reikningsskilastaðla sem samþykktir hafa verið skv. 3. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 frá 19. júlí 2002 og um uppsetningu ársreikninga og samstæðureikninga, óstyttra og samandreginna, svo og um skil á þeim og birtingu þeirra hjá ársreikningaskrá. Viðmiðunarmörkin í a- og b-lið 2. tölul. 1. mgr. 1. gr. og 1. og 2. tölul. 1. mgr. 68. gr., svo og 1. og 2. tölul. 1. mgr. 98. gr. og 1. og 2. tölul. 1. mgr. 116. gr., eru grunnfjárhæðir sem miðast við gengi evru 31. desember 2004. Ráðherra er heimilt að breyta þessum fjárhæðum til samræmis við breytingar á fjárhæðum í tilskipun nr. 78/660/EBE eða ef verulegar breytingar verða á gengi evru. 1)Rg. 180/2006. Rg. 181/2006. Rg. 1130/2007. Rg. 1131/2007. Rg. 1132/2007. Rg. 1133/2007. Rg. 1134/2007. Rg. 664/2008. Rg. 716/2008. Rg. 717/2008. Rg. 718/2008. Rg. 719/2008. Rg. 720/2008. Rg. 721/2008. Rg. 722/2008. Rg. 723/2008. Rg. 825/2008. Rg. 206/2009 Rg. 207/2009. Rg. 232/2010. Rg. 596/2010. Rg. 597/2010. Rg. 598/2010. Rg. 599/2010. Rg. 600/2010. Rg. 745/2010. Rg. 746/2010. Rg. 747/2010. Rg. 748/2010. Rg. 749/2010. Rg. 750/2010. Rg. 751/2010. Rg. 776/2010. Rg. 904/2010. Rg. 905/2010. Rg. 906/2010. Rg. 11/2011. Rg. 12/2011. Rg. 13/2011. Rg. 14/2011. Rg. 15/2011. Rg. 17/2011. Rg. 18/2011. Rg. 436/2011. Rg. 437/2011. Rg. 438/2011. R. 439/2011. Rg. 440/2011. Rg. 441/2011. 128. gr. Með lögum þessum eru tekin upp ákvæði tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 78/660/EBE og nr. 83/349/EBE, og breytinga á þeim nr. 2001/65/EB, [2003/51/EB, [2004/109/EB og 2006/46/EB]1)],2) og reglugerðar nr. 2002/1606/EB að því er varðar ársreikninga félaga með takmarkaða ábyrgð og samstæðureikningsskil þeirra, [svo og reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1569/2007].1) 1)L. 118/2011, 3. gr.2)L. 171/2007, 18. gr.
Ákvæði til bráðabirgða. I. Félögum, sem ber að beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum við samningu samstæðureikninga sinna skv. 4. gr. reglugerðar (EB) nr. 1606/2002 og hafa eingöngu skuldabréf skráð á skipulegum verðbréfamarkaði í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins, [í aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum],1) er ekki skylt að beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum við samningu samstæðureiknings eða ársreiknings fyrr en fyrir hvert reikningsár sem hefst 1. janúar 2007 eða síðar. Félögum, sem skyld eru til að beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum við samningu ársreikninga sinna skv. 2. og 3. mgr. 90. gr., er ekki skylt að beita þeim fyrr en fyrir hvert reikningsár sem hefst 1. janúar 2007 eða síðar. Félögum, sem nýta sér heimild til að beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum við samningu samstæðureikninga eða ársreikninga, sbr. 1. mgr. 92. gr., er ekki skylt að beita þeim við samningu ársreikninga eða samstæðureikninga, sbr. 2. mgr. 92. gr., fyrr en fyrir hvert reikningsár sem hefst 1. janúar 2007 eða síðar. 1)L. 108/2006, 12. gr. [II. Þrátt fyrir ákvæði 9. gr. laganna geta félög sótt um heimild ársreikningaskrár fyrir 30. desember 2008 til færslu bókhalds og samningar ársreiknings í erlendum gjaldmiðli annars vegar vegna reikningsárs sem hefst 1. janúar 2008 eða síðar á því ári og hins vegar vegna reikningsársins sem hefst 1. janúar 2009.]1) 1)L. 162/2008, 1. gr.