Heimsókn formanns grænlensku landsstjórnarinnar 06.09.2011 Ljósmyndari: Frá skrifstofu Alþingis. Upplýsingar í síma 563 0500.
Forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, og formaður íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, Ólína Þorvarðardóttir, funduðu með formanni grænlensku landsstjórnarinnar, Kuupik Kleist, í Alþingishúsinu 6. september 2011. Fundurinn var liður í dagskrá opinberrar heimsóknar formanns grænlensku landsstjórnarinnar á Íslandi 5.-7. september 2011.