Opinn fundur í fjárlaganefnd 01.04.2009 Ljósmyndari: Frá skrifstofu Alþingis. Upplýsingar í síma 563 0500.
Fjárlaganefnd Alþingis hélt opinn fund 1. apríl 2009. Á fundinum var rætt um framvindu samkomulags íslenskra stjórnvalda við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, aðgerðir í tengslum við það og stöðu efnahagsmála. Gestir fundarins voru fjármálaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, Indriði H. Þorláksson, ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytis, og Nökkvi Bragason, skrifstofustjóri fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytis.