Fyrrum utanríkis- og varnarmálaráðherra Noregs, heimsækir Alþingi.
Heimsókn 27.05.2009 Ljósmyndari: Frá skrifstofu Alþingis. Upplýsingar í síma 563 0500.
Forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, átti hádegisverðarfund með Thorvald Stoltenberg, fyrrum utanríkis- og varnarmálaráðherra Noregs 27. maí 2009. Stoltenberg fundaði einnig með utanríkismálanefnd Alþingis þar sem hann kynnti skýrslu sína um norræna samvinnu í utanríkis- og öryggismálum, sem unnin er að frumkvæði utanríkisráðherra Norðurlanda. Á myndinni eru auk forseta Alþingis og Stoltenbergs, Margit Tveiten, Sverre Jervel, Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar, og Elin Hellum.