Fundur forseta þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja
Fundur forseta þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja 25.08.2009 Ljósmyndari: Frá skrifstofu Alþingis. Upplýsingar í síma 563 0500.
Á fundi forseta þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í Ósló, 25. ágúst 2009, afhenti Arūnas Valinskas, forseti þjóðþings Litháens, Ástu R. Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, frumskjal þingsályktunar litháíska þingsins, sem samþykkt var 23. júlí, þar sem skorað er á þjóðþing og ríkisstjórnir Evrópusambandsríkjanna að styðja aðildarumsókn Íslands.