Aðstoð við móttöku
Tölvan þín þarf að geta spilað hljóð og vera tengd við hátalara eða
heyrnartól. Einnig þarf RealPlayer forritið (spilari) að vera rétt uppsett á vélinni
þinni.
Þegar þetta er skrifað (1.10.99) þá er nýi G2 spilarinn frá Real Networks einungis til fyrir nýrri útgáfur Windows og MacOS og þurfa því notendur annara stýrikerfa að nota 5.0 útgáfu hans.
Útg. G2
fyrir Windows og MacOS
Útg. 5.0
fyrir Unix og eldri útgáfur MacOS og Windows
Athugið að á ofangreindum síðum er hægt að fá ókeypis prufuútgáfu og/eða
kaupa forritið.
Á vef Real Networks eru margar aðstoðarsíður, hér fyrir neðan eru
tenglar í tvær þeirra.
Lausnir á algengum
vandamálum
Handbækur o.fl.
Samhæfing Java forritsins sem sér um textaupplýsingarnar og RealMedia
spilarans sem sér um mynd og hljóðútsendinguna virkar
best í Netscape Communicator
4.x og Microsoft
Internet Explorer 4.x. Ef lítið minni er í vélinni (innan við 32Mb) þá er
ráðlegt að slökkva á öðrum forritum sem í gangi kunna að vera.
Ef vélin á erfitt með að keyra RealPlayer og Java í einu, þá er hægt að
skoða hljóð- og myndútsendinguna, án textaupplýsinganna, með því að velja viðeigandi straum hér að neðan.
Hljóð - 14.4Kb mótald
Mynd og hljóð - 28.8Kb mótald
Mynd og hljóð - ISDN mótald og
hraðara
Ef prenta þarf útsendingarsíðuna út er byrjað á að taka skjámynd.
Prentun hennar er síðan framkvæmd í viðeigandi forriti.
Macintosh notendur geta smellt á Slaufa-Shift-3 til að taka mynd sem vistast beint á harða diskinn en Windows
notendur geta smellt á PrintScrn takkann og límt (paste) myndina síðan inní myndvinnsluforrit. Einnig er hægt að ná í viðeigandi
forrit, jafnt fyrir Windows og MacOS.
Ef ekkert gengur enn, sendu okkur póst og reynt verður að aðstoða
eftir megni. |