133. löggjafarþing — 46. fundur,  9. des. 2006.

vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.

359. mál
[00:01]
Hlusta

Frsm. efh.- og viðskn. (Pétur H. Blöndal) (S):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti og fleiru, með síðari breytingum, frá hv. efnahags- og viðskiptanefnd. En það er að finna á þskj. 555.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Völu Rebekku Þorsteinsdóttur, frá fjármálaráðuneytinu, auk þess sem hún leitaði umsagna um málið.

Í frumvarpinu er lagt til að framlengd verði tímabundin heimild til að lækka vörugjald af bifreiðum með vélar sem nýta metangas eða rafmagn að verulegu leyti í stað bensíns eða dísilolíu. Verði frumvarpið óbreytt að lögum gildir heimildin til 31. desember 2008.

Hér er um að ræða framlag til umhverfisverndar þar sem talið er að neikvæð áhrif þessara orkugjafa á umhverfið séu mun minni en eldsneytis úr olíum. Þeim ökutækjum sem nýta slíka orkugjafa hefur fjölgað mjög á undanförnum árum og sömuleiðis hefur innlent vörugjald hækkað. Um þá þróun má vísa í fylgiskjali með áliti þessu.

Við umfjöllun málsins kom til umræðu hvort ökutæki sem nýta etanól sem orkugjafa ættu einnig að falla undir frumvarpið og þá lækkun vörugjalds sem í því felst. Nefndin telur þetta þarfnast nánari skoðunar við enda samanstendur etanól-eldsneyti bæði af etanóli og bensíni.

Hv. þm. Ögmundur Jónasson var fjarverandi við afgreiðslu málsins. Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt. Undir nefndarálitið rita hv. þingmenn Pétur H. Blöndal, Jóhanna Sigurðardóttir, með fyrirvara, Dagný Jónsdóttir, Lúðvík Bergvinsson, með fyrirvara, Birgir Ármannsson, Ágúst Ólafur Ágústsson, með fyrirvara, Ásta Möller og Sæunn Stefánsdóttir.