Virðulegi forseti. Hér er lagt fram frumvarp til að gera smávægilega tæknilega breytingu á lögum sem afgreidd voru nú í september um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands. Við nánari skoðun kom í ljós að þær breytingar sem gerðar höfðu verið á frumvarpinu í meðförum þingsins voru þess eðlis að ekki þótti nægilega skýrt hvort fulltrúar þingsins í þróunarsamvinnunefnd skyldu kjörnir til fjögurra ára og hvort kjósa skyldi þeim varafulltrúa. Frumvarpinu er ætlað að taka af allan vafa um þetta þó að þetta hafi svo sem mátt leiða af almennu samhengi laganna vegna þeirra kjörnu fulltrúa sem hafa hlutverki að gegna á grundvelli laganna. En það er skynsamlegt og rétt að taka af öll tvímæli um þetta með því að breyta lögunum með þeim hætti sem gert er í frumvarpinu. Frumvarpið stafar frá utanríkismálanefnd þannig að ég tel ekki ástæðu til að málið fari til nefndar milli umræðna.