Virðulegi forseti. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga er ákaflega mikilvægur fyrir sveitarfélögin hringinn í kringum landið. Hér er verið að auka fjármuni til hans og er það vel. Ég er á þeirri skoðun að efla þurfi sveitarstjórnarstigið verulega á komandi missirum og þetta gæti verið einn liður í því.