Fyrri ræða

138. löggjafarþing — 59. fundur,  22. des. 2009.

fjárlög 2010.

1. mál
[10:58]
Hlusta - Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Frú forseti. Með afgreiðslu þessa máls er að ljúka umfjöllun Alþingis um tekjuöflunar- eða skattafrumvörp, útgjaldatengd mál og aðrar forsendur fjárlagaafgreiðslunnar fyrir árið 2010. Ég þakka öllum sem lagt hafa hönd á plóginn og unnið mikið starf við þröngar aðstæður á lokaspretti þinghaldsins. Ég tel að útkoman úr þessu og niðurstaðan sé mjög ásættanleg miðað við okkar erfiðu aðstæður. Það tekst með þessu frumvarpi að meira en helminga hallann á ríkissjóði frá því sem var 2008. Þegar upp var staðið var halli ríkissjóðs á því ári um 215 milljarðar kr. Það stefnir í um 160 milljarða kr. halla á þessu ári en samkvæmt þessu frumvarpi sem verður nú að lögum verður hallinn rétt innan við 100 milljarðar kr. Með sama áframhaldi er fullkomlega raunhæft að ná fram markmiðum um jákvæðan frumjöfnuð á árinu 2011 og að heildarafkoma ríkissjóðs verði komin í plús á árinu 2013. Það kemur okkur einnig til góða að aðstæður hafa þróast með hagstæðari hætti á síðari hluta ársins, svo sem með (Forseti hringir.) minna atvinnuleysi, minni samdrætti í landsframleiðslu, minni vaxtakostnaði ríkissjóðs. Það hefur lagst með okkur til að ná þeim árangri sem hér er að verða.

Næsta ræða