Fyrri ræða

138. löggjafarþing — 119. fundur,  7. maí 2010.

forgangsmál ríkisstjórnarinnar í umhverfismálum.

[13:51]
Hlusta - Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr):

Frú forseti. Ég hef mikið álit á hæstv. umhverfisráðherra og hef oft dáðst að staðfestu hennar þegar kemur að umhverfismálum og e.t.v. sér í lagi náttúruverndarmálum. Ég batt miklar vonir við að þegar græni flokkurinn í flokkakerfinu á Íslandi kæmist til valda sæjum við það strax á störfum ríkisstjórnarinnar.

Ég get ekki sagt að vonir mínar hafi ræst, ég vil sjá meira og fleira en bara verndunarmál þótt ég styðji ráðherrann í þeim flestum. Það er eðlilegt að stefnumótun taki tíma en nú er meira en ár liðið frá því að þessi ríkisstjórn tók við völdum og nú ætti tími aðgerða að vera runninn upp. Hæstv. umhverfisráðherra reifaði nokkur mál sem eru í bígerð og fagna ég þeim og hlakka til að sjá hvernig framkvæmd þeirra tekst.

Ég er sammála því að umhverfisvernd þarf að fara fram hjá hverjum og einum en ég bendi á að hið opinbera getur hjálpað einstaklingunum með ýmsu móti til að taka réttar og góðar ákvarðanir, t.d. í gegnum skattkerfið og gjaldtöku. Ég óska eftir frekari aðgerðum í þá átt.

Að lokum þakka ég hv. þm. Eygló Harðardóttur fyrir að standa fyrir þessari umræðu.

Næsta ræða