Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni og félaga í fjárlaganefnd, Ásbirni Óttarssyni, fyrir mjög greinargott álit. Ég er undrandi og vonsvikinn á kúvendingu hans og flokks hans í þessu máli. Sú einarða afstaða og skarpa gagnrýni sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur haldið uppi í málinu alveg frá upphafi hefur verið mjög góð og skilað þjóðarbúinu og íslenskum almenningi ótrúlegum ávinningi. Hins vegar er þessi einstaki samningur, þó betri sé en fyrri, engu að síður mikil áhætta fyrir Ísland. Að mínu mati réttlætir samþykki hans ekki slíka kúvendingu þegar sú áhætta er enn fyrir hendi.
Mig langar því að spyrja hv. þingmann: Hver er raunveruleg ástæða fyrir algerri uppgjöf Sjálfstæðisflokksins í þessu máli? Ég hef ekki séð nákvæmlega í nefndarálitinu hvað hefur breyst annað en að nú er vísað sem aldrei fyrr í eitthvert hugsanlegt andóf Breta og Hollendinga á alþjóðavettvangi. Hvað er átt við með því hugsanlega andófi? Íslendingar hafa tekist á við Breta á alþjóðavettvangi fyrr og hafa ekkert að hræðast í þeim efnum. Er kominn einhver nýr stjórnarsáttmáli milli Sjálfstæðisflokks og ríkisstjórnarinnar? Og hvað er þá í honum? Hvenær fáum við að sjá hann?
Þetta snýst ekki bara um Icesave því að eins og hv. þingmaður kom inn á eru skattahækkanir fram undan. Það er ekki hægt að borga þetta öðruvísi en með því að ná jöfnuði í ríkisfjármálunum. Það þýðir stórfelldar skattahækkanir eða stórfelldan niðurskurð, eitthvað sem hefur verið andstætt stefnu Sjálfstæðisflokksins frá því að núverandi ríkisstjórn tók við. Hvað hefur breyst?