Virðulegi forseti. Ég hafna einfaldlega túlkun hæstv. utanríkisráðherra á því sem þarna fór fram. Ég held að það hafi verið mjög skýrt og að það hafi verið viðkomandi ráðherra til mikils vansa hvernig hann hélt á því máli.