Herra forseti. Eins og ég hef skilið þetta mál gagnvart ríkisstjórninni á vettvangi hennar var það rætt þegar öryggisráðið gerði sína samþykkt með umboði sínu hvað þetta snertir, (Gripið fram í.) umboðið sjálft á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. (Gripið fram í.) Í kjölfarið, ef þingmaðurinn vill gefa mér smátíma, var síðan tekin ákvörðun um það á vettvangi ráðherraráðs NATO, fastaráðs NATO eða hvað það nú heitir, þingmaðurinn þekkir það betur en ég, að hefja þessar aðgerðir á grundvelli umboðs Sameinuðu þjóðanna. Það var ekki sérstaklega rætt á vettvangi ríkisstjórnarinnar og það höfum við gagnrýnt og sú gagnrýni hefur komið fram. Ég tel að betur hefði farið á því að það hefði verið rætt í ríkisstjórn.
Hins vegar verður afstaða sem Ísland tekur á alþjóðavettvangi og utanríkisráðherra ber stjórnskipulega ábyrgð á að vera þannig að hún hafi (Forseti hringir.) stuðning á vettvangi Alþingis. Utanríkisráðherra hefur gert ágætlega grein fyrir því í svörum sínum um þetta mál að hann telji sig hafa tekið (Forseti hringir.) ákvörðun sem byggði á meirihlutavilja Alþingis og það tel ég að hann hafi fulla heimild til að gera.