Fyrri ræða

140. löggjafarþing — 93. fundur,  2. maí 2012.

þingleg meðferð mála.

[15:54]
Hlusta - Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg):

Frú forseti. Ég vil taka fram að það eru skýr lagafyrirmæli í lögum nr. 115/2011, það er ekki lengra síðan að þau voru samþykkt í þinginu, að mál af þessu tagi skuli njóta forgangs. Það var upplýst strax við upphaf málsmeðferðarinnar að umrætt mál mundi hafa þann forgang í nefndinni.

Nefndinni var kynnt skýrsla sem heitir Greining á verkefnum ráðuneyta og viðhorfum hagsmunaaðila og er í þeirri möppu sem nefndarmenn fengu. Hún er mjög ítarleg og eru rakin þar öll helstu sjónarmið hagsmunaaðila. Þar kemur meðal annars fram að haldnir voru 15 fundir með fulltrúum 19 hagsmunasamtaka í aðdraganda þessarar tillögu og var gerð ítarleg grein fyrir afstöðu einstakra samtaka til hugmynda í ráðuneyti sem ágreiningur hefur verið um. Við kynntum okkur öll þessi gögn. Ég segi það enn og aftur, (Forseti hringir.) nefndin, nefndarmenn og nefndarritari unnu þetta mál mjög vel og ég þakka fyrir það.

Næsta ræða