Frú forseti. Ég sakna þess að hv. þingmaður viðurkenni að staðan er allt önnur. Þá vorum við ekki meðvituð um að hér yrði hrun sem stjórnsýslan ætti sinn þátt í. Þess vegna fer stjórnarandstaðan núna, og stjórnarliðar ættu að taka þátt í því líka, í gegnum þetta mál, finnur kosti og galla — það eru kostir við þetta en það eru líka gallar — og ræðir það hérna. Því miður þurfum við að gera það um miðja nótt af því málið kom allt of seint til þingsins. Það er við hæstv. ríkisstjórn að sakast en ekki við okkur stjórnarandstæðinga.