Fyrri ræða

140. löggjafarþing — 94. fundur,  3. maí 2012.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

699. mál
[12:53]
Hlusta - Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Pétri Blöndal fyrir ræðu hans. Að mörgu leyti hefur þingmaðurinn sömu áhyggjur og ég af framsetningu þessa máls vegna þess að hvergi er kveðið á um hvað verður um hverja ríkisstofnun fyrir sig. Hv. þingmaður nefndi sérstaklega Landsvirkjun.

Landsvirkjun er eitt mikilvægasta fyrirtæki okkar Íslendinga og hefur forræði yfir nánast öllum okkar auðlindum sem hægt er að framleiða rafmagn úr, má segja, fallvötnin og annað, og er okkur mjög mikilvægt. Það er hvergi sagt undir hvaða ráðuneyti það fyrirtæki muni falla eins og þingmaðurinn kom inn á. Verður það undir nýju atvinnuvegaráðuneyti, umhverfis- og auðlindaráðuneyti eða hvar? Þetta eru mjög góðar ábendingar og það skal upplýst að ég sit í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og ekki hafa komið nein svör þar inn um þetta enda er þessi þingsályktunartillaga unnin í svo miklum flýti að frekar virðist vera lögð áhersla á kappið í stað þess að efla gæðin. Það er svo sem ekki nýtt hjá þessari ríkisstjórn að leggja illa unnin mál fram í mikilli ósátt. Og talandi um að hér eigi að vera einhver lagaskrifstofa undir forsætisráðuneytinu þá eru hér mál eftir mál, frumvörp og þingsályktunartillögur, sem sú skrifstofa á að vera búin að lesa yfir, sem eru raunverulega ónýt. Það sýnir að sú skrifstofa er ekki að virka.

Í framhaldi af þessu langar mig til að spyrja hv. þm. Pétur Blöndal: Ef þetta verður að veruleika og stofnað verður nýtt umhverfis- og auðlindaráðuneyti, óttast hann að umhverfið verði tekið framar auðlindanýtingu, okkur öllum til vansa, (Forseti hringir.) þannig að ekki verði ráðist í neinar framkvæmdir eða nýtingu auðlinda vegna þess að umhverfið fái að stjórna för?

Næsta ræða