Forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég hef engar upplýsingar sem segja mér að þessi áform séu liður í aðildarferli Íslands að Evrópusambandinu. Ég heyri þá umræðu eins og hún birtist mér, maður dregur bara þær ályktanir af þeirri umræðu og þeim gögnum sem maður kemur höndum og eyrum yfir.
Þegar maður horfir hins vegar á annan stjórnarflokkinn í þessum efnum er alveg ljóst að andstaðan innan hans við fyrirhugaðar breytingar er töluvert mikil og hefur oftast nær verið borin uppi af þeim flokksmönnum sem mesta andstöðu hafa sýnt við Evrópusambandsumsóknina.
Þegar ég var að skoða þær samþykktir sem hafa verið gerðar hjá Vinstri hreyfingunni – grænu framboði og meðferð þeirra á flokksráðsfundi eða landsfundi þá er raunar alveg ótrúlegt að horfa á það. Til dæmis var ályktun sem borin var upp af forustusveit flokksins um efndir á loforðum um sameiningu ráðuneyta og hagræðingu innan stjórnsýslunnar vísað frá á landsfundi. Sömuleiðis útfærslu á annarri ályktun og útfærslu á þeim áformum sem hér um ræðir. Því er ljóst að gríðarleg átök eru innan flokksins um þessi efni. Af hvaða ástæðum svo sem það stafar kann ég ekki að greina frá en þegar maður horfir á þetta úr fjarska eru greinilega að takast á mjög eindregnir andstæðingar Evrópusambandsaðildar og hins vegar þeir sem leggja sig töluvert fram um það og skirrast í rauninni ekkert við að ganga í berhögg við þær yfirlýsingar sem þeir gáfu kjósendum sínum fyrir síðustu kosningar. Það eru þessir tveir hópar sem takast þarna á og (Forseti hringir.) við verðum þá að draga ályktanir hvert og eitt af því hvernig sá veruleiki birtist okkur.