Fyrri ræða

140. löggjafarþing — 94. fundur,  3. maí 2012.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

699. mál
[16:03]
Hlusta - Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Í ræðu hv. þingmanns kom fram að hann skildi ekki það sem hann las, held ég, beint upp úr nefndarálitinu, hvað átt væri við með því að það yrði sem jöfnust staða málefnaflokka innan Stjórnarráðsins. Ég ætla að leyfa mér að útskýra það frá mínu sjónarmiði og leyfa mér að vera svolítið eins og sá þingmaður sem er kannski sjálfum sér trúastur í þessum ræðustól, þ.e. hv. þm. Pétur H. Blöndal sem segist tala fyrir sig. Þá ætla ég að útskýra þetta frá mínu sjónarmiði.

Ég tel það algjörlega úrelt fyrirkomulag að frumatvinnvegirnir svokölluðu, eða sjávarútvegur og landbúnaður, hafi sérstakt ráðuneyti. Ég tel að það hafi haft mjög pólitískar afleiðingar hér í landinu. Ég er þá alls ekki að tala niðrandi eða niður til þessara atvinnugreina eða neitt svoleiðis (Gripið fram í.) sem einhverjum samþingmanni mínum dettur örugglega í hug. Ég er alls ekki að því. Ég er hins vegar að segja að pólitísk áhrif hagsmunasamtaka og þeirra sem eiga hagsmuna að gæta í þessum málaflokkum hafa verið allt of mikil í ráðuneytinu.

Ég tel að úr því muni draga með því að stofna eitt stórt atvinnuvegaráðuneyti. Ég tel það vera af hinu góða vegna þess að ég tel að sérhagsmunagæsla sú sem hefur verið hér í landinu undanfarið sé ein af stóru meinsemdunum hér og að við þurfum að vinna bug á því. Ég held að þetta muni til dæmis hjálpa til við það.

Næsta ræða