Frú forseti. Við erum að fara að greiða atkvæði um fækkun og sameiningu ráðuneyta. Það er ýmislegt gott um það að segja og það er ýmislegt slæmt um það að segja. Það slæma er að þetta þýðir meiri miðstýringu sem getur verið af hinu vonda ef menn gæta sín ekki en þetta þýðir líka hugsanlega meiri skilvirkni og faglegri stjórnsýslu. Upp á það verður Alþingi að passa.
Mig langar að vekja athygli á nefndaráliti meiri hlutans þar sem vakin er athygli á þingsályktun frá 28. september 2010, með leyfi forseta:
„„… stofnuð verði sjálfstæð ríkisstofnun sem heyrir undir Alþingi og hefur það hlutverk að meta og gefa út spár fyrir efnahagslífið á sama hátt og Þjóðhagsstofnun gerði til 1. júlí 2002“. … Hvetur meiri hlutinn til þess að brugðist verði við þessari samþykkt á vettvangi ríkisstjórnar og Alþingis hið fyrsta.“
Svo segir einnig, með leyfi forseta:
„Fyrir nefndinni var einnig bent á nauðsyn þess að staðsetning lánamála ríkissjóðs væri í anda bestu verklagsreglna að mati OECD.“
Þetta þýðir mikilvægar breytingar á stjórnsýslunni (Forseti hringir.) sem verða til hins betra og því verður fylgt eftir vandlega að farið verði eftir þessu nefndaráliti.