Virðulegi forseti. Ég get tekið undir það sem hv. þingmaður hefur hér rakið. Það að setja til dæmis ákvæði í stjórnarskrá sem er óframkvæmanlegt, illframkvæmanlegt eða erfitt að sjá fyrir hvernig eigi að gera grefur undan stjórnarskránni og þar með réttindum borgaranna.
Enn á ný er ákveðinn plagsiður á þingi að setja í lagatexta ýmis hugtök sem hafa þótt óljós. Af því er auðvitað skaði, en hann er smávægilegur miðað við þann skaða sem verður ef við setjum í stjórnarskrá, grunnlög samfélagsins, hugtök sem annaðhvort eru illa skilgreind eða boða óframkvæmanlega eða illframkvæmanlega hluti. Þar með erum við að grafa undan réttindum og réttaröryggi (Forseti hringir.) borgaranna. Frú forseti. Það er ekki leyfilegt.