157. löggjafarþing — 16. fundur.
fsp. 4.

[14:02]
Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Eins og hæstv. forsætisráðherra nefnir hér er gríðarlega mikilvægt að við förum vel með skattfé og við þurfum að forgangsraða. Ég vil koma inn á sama mál og var rætt hér í stærra samhengi en koma sérstaklega inn á eitt mál og það er að í fjárlögunum eigi að fella niður tímabundin aukin framlög til Ljóssins upp á 200 millj. kr. Þetta er 40% niðurskurður þar sem um 600 manns njóta aðstoðar og endurhæfingar í hverjum mánuði. Þúsundir hafa nýtt sér þessa þjónustu undanfarin ár. Ljósið er sjálfseignarstofnun sem sinnir mikilvægu hlutverki heilbrigðiskerfisins, endurhæfingu og stuðningi þar sem fagfólk aðstoðar fólk við að byggja upp líkamlegt og andlegt þrek krabbameinsgreindra og aðstandenda þeirra. Heilbrigðiskerfið treystir á starfsemi Ljóssins og því er óskiljanlegt að ríkið ætli að skerða fjárframlög til þess. Samkvæmt hagkvæmnisúttekt frá því í fyrra er ljóst að starfsemin skili a.m.k. milljarði inn í þjóðarbúið með því að veita þjónustu sem er ekki annars staðar að finna. Með tilheyrandi niðurskurði er ljóst að núverandi starfsemi verði ekki áfram haldið með viðeigandi hætti þar sem eru engir biðlistar í dag.

Mig langar að spyrja: Hver er afstaða hæstv. forsætisráðherra til þessarar forgangsröðunar þegar við horfum upp á að það er verið að setja 120 milljónir í t.d. að rampa upp Úkraínu? Það er stuðningur við alþjóðleg samtök hinsegin fólks upp á 150 milljónir. Við erum að stækka Þjóðleikhúsið upp á 2.000–3.000 milljónir og við gerðum starfslokasamning við vararíkissaksóknara upp á 350 milljónir. Við ætlum að skera niður Ljósið um 200 milljónir, 40% af starfsemi Ljóssins. Ég spyr hæstv. forsætisráðherra: Er þetta rétt forgangsröðun ríkisstjórnarinnar?



[14:04]
forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég gæti fjallað með almennum hætti um starfsemi Ljóssins eða almennum hætti um þróunarsamvinnu, þetta er svolítið breytt og víðfeðmt svið en ég ítreka það sem ég sagði áðan: Þessar 200 millj. kr. voru ekki hluti af þeirri fjármálaáætlun sem lá hér inni á síðasta kjörtímabili, náði inn á það kjörtímabil sem við erum á núna. Þetta er einskiptisframlag af hálfu hv. fjárlaganefndar sem fellur sjálfkrafa niður. Það er fjöldinn allur af slíkum framlögum til slíkra stofnana sem falla niður á hverju ári. Það er mín persónulega skoðun að það þurfi auðvitað að setja framlög almennt til slíkra félagasamtaka í fastari skorður, það sé ekki þannig að þetta komi inn svona einskiptis. Það krefst frekari yfirlegu. Ég ætla að leyfa hæstv. heilbrigðisráðherra að svara fyrir það hvernig samningar eru almennt gerðir við slík félög en ég ætla ekki að taka fyrir það eða tala fyrir því eða snúa upp á hendi hv. fjárlaganefndar þegar kemur að einskiptisframlögum. Þetta er ákveðið í nefndinni. Ég veit að framsetningin er dramatísk hjá hv. þingmanni en höldum okkur við staðreyndir mála. Þetta er ekki framlag sem er búið að vera hér í mörg ár. Þetta var einskiptisframlag.

Það breytir því ekki að ég tek að fullu undir með hv. þingmanni að mjög góð þjónusta á sér stað hjá Ljósinu. Mjög góð þjónusta á sér stað víða í íslensku samfélagi sem er að hluta eða öllu eða engu leyti fjármögnuð af íslenska ríkinu. Þetta er eitthvað sem þarf að leggjast kerfislægt yfir því það er ekki góður bragur að því að þetta sé með þessum hætti, einskiptisframlögum, af því að þá kemur upp sú staða sem við finnum okkur í í dag að stórar fjárhæðir verða eftir á milli ára. — Ég kem inn á þróunarsamstarfið á eftir ef það er áhugi á því.



[14:06]
Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. 350 milljónir í starfslok eins embættismanns og 2.000–3.000 milljónir í stækkun Þjóðleikhússins er líklega ekki þróunaraðstoð. Hæstv. forsætisráðherra kemur hér og talar svolítið eins og embættismaður úr ráðuneyti sem segir „þetta var svona og þess vegna er þetta svona“ þegar við sjáum í rauninni hvað það var að gera þegar við settum 200 milljónir aukalega í Ljósið. Ef þessi salur myndi greiða um þetta atkvæði þá er ég þess alveg fullviss hvernig það myndi fara. Við myndum ekki greiða atkvæði gegn Ljósinu. Samfylkingin sagði í kosningaáherslum sínum í fyrra: Rétt fjármögnuð úrræði munu spara okkur hundruð milljarða fram í tímann.

Allt of lengi hafa ráðamenn komist upp með að verja peningum í að leysa stök verkefni á meðan grunnvandinn stendur óleystur og býr til kostnað annars staðar í kerfinu. Þessi aðgerð mun ekki stuðla að því að auka traust almennings til heilbrigðiskerfisins eða spara pening fram í tímann, síður en svo. Því spyr ég hæstv. forsætisráðherra seinna sinni: Kemur til greina að afturkalla boðaðan sparnað til Ljóssins (Forseti hringir.) og horfa frekar til þess að styrkja starfsemi Ljóssins lengra fram í tímann?



[14:08]
forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég ítreka það sem ég sagði hér áðan: Það er mjög mikilvæg starfsemi sem fer fram í Ljósinu eins og í fjöldanum öllum af samtökum víða á Íslandi sem eru fjármögnuð að hluta eða að einhverju leyti af íslenska ríkinu. Það er enginn að gera lítið úr framlagi Ljóssins. Mér finnst hins vegar sérstakt að í kerfi þar sem mörg hundruð milljarðar eru undir sé ég annars vegar að fá fyrirspurn þar sem gerð er athugasemd við að verið sé að fylgjast vel með fjárútlátum í einkarekstur sem fer í gegnum sjúkratryggingar, sem getur hljóðað upp á milljarða króna, og verið sé að spyrja mig um mína persónulegu afstöðu til þess hvort ákveðin samtök úti í bæ gætu þegið nokkrar milljónir í viðbót. Auðvitað myndum við öll vilja geta gert betur við slík samtök en við þurfum að horfa kerfislægt á slík útgjöld. Ég ætla að fá að beina því til hæstv. heilbrigðisráðherra hvernig samningar standa við Ljósið því að þetta eru ekki þau útgjöld sem við höfum verið að einbeita okkur að þegar við höfum verið í tiltekt, get ég fullyrt hér inni. (Forseti hringir.) Þessar 200 millj. kr. eru ekki að koma okkur langt en það breytir því ekki að þetta er einskiptisframlag sem er að falla niður vegna þessa og það er hv. fjárlaganefnd sem getur tekið afstöðu til þess hvort hún vill breyta því eða ekki. Það er mín skoðun (Forseti hringir.) að þetta þurfi að fara inn í langtímasamninga frekar.