Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir hönd meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um verðbréfun. Frumvarpið felur í sér að sett verði ný heildarlög um verðbréfun og breyting verði gerð á ýmsum lögum á sviði fjármálaþjónustu til samræmis. Frumvarpið innleiðir í íslenskan rétt m.a. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2402 frá 12. desember 2017 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun. Notast hefur verið við skammstöfunina STSR sem heiti á þessum gerðum. Með STSR eru settar fram almennar kröfur sem gerðar eru til allra tegunda verðbréfunar og sérstakar kröfur til STS-verðbréfunar, en STS er ensk skammstöfun sem stendur fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun. — Hæstv. forseti. Ég veit að þingmálið er íslenska en ég vona að það verði horft fram hjá þessu.
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti og barst ein umsögn um málið. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis. Við meðferð málsins hafði nefndin einnig hliðsjón af þeim umsögnum sem bárust við þinglega meðferð málsins á síðasta löggjafarþingi en málið er endurflutt. Frumvarpið var lagt fram á 156. löggjafarþingi og afgreitt frá efnahags- og viðskiptanefnd með áliti meiri hluta nefndarinnar til 2. umræðu 8. apríl síðastliðinn.
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að frumvarpið sé nú endurflutt að mestu óbreytt. Breytingarnar séu í samræmi við breytingartillögur frá meiri hluta nefndarinnar í fyrrgreindu nefndaráliti og breytingartillögu meiri hluta nefndarinnar við 3. umræðu. Nefndinni barst ein umsögn nú frá Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Þar segir m.a. að samtökin telji frumvarpið jákvætt skref til þess að setja enn skýrari lagaramma um verðbréfun hér á landi.
Að framangreindu virtu leggur meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt
Undir álit meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Pawel Bartoszek, Sigmundur Ernir Rúnarsson og Sigurþóra Steinunn Bergsdóttur.
Hæstv. forseti. Þetta er innleiðingarmál og var mjög mikil sátt um þetta mál í nefndinni og þetta mál er endurflutt. Við mælum eindregið með því að málið komist í 3. umræðu og svo til atkvæðagreiðslu. Eins og fram kemur í umsögn fyrirtækja í fjármálaþjónustu þá er þetta mjög jákvætt mál og þau hvetja okkur eindregið til þess að samþykkja þetta frumvarp þar sem það gefur kost á meiri sveigjanleika í starfsemi og muni um leið auka fjárfestingarkosti á innlendum markaði án þess að áhætta aukist í fjármálakerfinu. Undir þetta tökum við í meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.