157. löggjafarþing — 41. fundur.

Spyrjandi var .

samskipti ráðherra í ríkisstjórn við embættismenn.

[11:08]
Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Það er kannski rétt að koma hér upp og benda á að það er alveg ljóst af umfjöllun fjölmiðla að það á ekki að endurskipa manninn. Hann upplifir það mjög skýrt og fær alveg skýr skilaboð um það, eins og hann lýsir því, að það liggi ekki fyrir áhugi af hálfu ráðherrans á því að hann starfi þarna áfram þótt honum sé auðvitað frjálst að sækja um einhverja stöðu. Það eru mjög skýr skilaboð send með þessu og það er ekki hægt að láta eins og þetta sé ekki tiltölulega afdrifarík ákvörðun gagnvart manninum sem hefur starfað þarna. Það er ekkert óeðlilegt við að menntamálayfirvöld taki ákvörðun um að fara í ákveðna átt með ákveðnar stöður ef menn sinna ekki starfinu með ákveðnum hætti eða ef um er að ræða málefnalegar eða faglegar ástæður. Það er hins vegar annað þegar ráðherrar í ríkisstjórn virðast vera komnir í persónulega herferð gagnvart embættismönnum, sem er ásýnd þessa máls.

Það er ekki eitthvað sem er að spilast út í fjölmiðlum, eins og hæstv. forsætisráðherra lýsir því. Það er bara verið að lýsa mjög undarlegum samskiptum hæstv. félagsmálaráðherra og skólameistara, með leyfi forseta: „Inga hringdi í janúar, ég fékk bara símann frá skiptiborðinu, og hún var ekki í neinu jafnvægi; byrjaði strax að hella sér yfir mig, ákaflega reið og bókstaflega öskraði í símann að það væri búið að stela glænýjum Nike-skóm af barnabarninu.“ Hún krafðist þess svo að fá að vita hvernig á því stæði að starfsfólkið væri ekki búið að finna skóna, hvort þar ynnu letihaugar sem ekki nenntu að vinna vinnuna sína. Svona er þessu lýst og ráðherrann á í þokkabót að hafa sagt að hún gæti hringt í lögregluna, enda hefði hún ítök þar. Og svo er jafnvel ýjað að því í þessu viðtali — skólastjórinn segir að ef hann hefði verið spurður hefði hann haldið að hún væri drukkin. Þetta eru því mjög alvarlegar ásakanir sem eru bornar á borð gagnvart hæstv. ráðherra.

Ég velti fyrir mér hvort verkstjóri ríkisstjórnarinnar geti gert grein fyrir því hvort hann hafi haft aðkomu að þessu máli og áttað sig á því, eða haft upplýsingar um, að ekki stæði til að ráða þennan skólastjóra áfram. Ég spyr í ljósi þess að verkstjórinn, hæstv. ráðherra, hefði kannski mátt átta sig á því hver ásýnd málsins yrði eftir þessi samskipti, þ.e. að ráðherra úr sama flokki fari svo og geri manninum ljóst að hans krafta sé ekki óskað, eins og honum var gert ljóst.



[11:10]
forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Hér er verið að vitna í tveggja manna tal. Það er verið að vitna í tveggja manna tal og ég hef ekki forsendur til að meta hvað nákvæmlega fór þarna fram. Það liggur alveg fyrir. Hún hefur lýst þessu með öðrum hætti. Ég ætla ekki að vera dómari í því máli. Ég hef hins vegar sagt og sagði það hér í upphafi árs að það skiptir máli með hvaða hætti maður á í samskiptum við fólk, bæði á faglegum grunni en líka í persónulegum samskiptum af því að það er þannig í lok dags að það getur reynst vera ákveðið flækjustig í því að ráðherrar eru líka einstaklingar með fjölskyldu. Þetta er ákveðið einstigi sem þarf að feta. Hún hefur beðist afsökunar og gerði það í upphafi árs, í upphafi síns ferils í þessu embætti og áttaði sig á að hún hefði kannski átt að tala með öðrum hætti. Enn og aftur: Ég hef einfaldlega ekki forsendur til að meta það, enda get ég ekki verið dómari í því máli en hún hefur gert athugasemdir við þessa frásögn. Ég get ekki tekið afstöðu til þess.

Varðandi það hvernig er talað um hvort eigi að endurskipa eða ekki endurskipa og hvað standi til þá, enn og aftur, ætla ég ekki að draga í efa eða fara að segja umræddum aðila hvernig viðkomandi eigi að líða með þessar fréttir. Það sem ég veit einfaldlega er að þessi ákvörðun er tekin á faglegum forsendum. Það er ekkert sem kemur í veg fyrir að umræddur aðili, eins og allir aðrir embættismenn í kerfi sem starfar samkvæmt lögum og reglum um opinbera starfsmenn þar sem af og til er verið að ræða um, og reyndar oft í þessum sal, hvort auglýsa eigi oftar, hvort það eigi að gera hluti með öðrum hætti í ráðningum — þessum aðila er frjálst að sækja aftur um. Ég hef ekki frekari forsendur. Varðandi það hvort ég hafi verið upplýst um að þetta stæði til þá vissi ég af því. (Forseti hringir.) En ég sé ekki ástæðu til þess að forsætisráðherra sé að grípa inn í faglega ákvörðun, bara vegna mögulegrar ásýndar í pólitíkinni.



[11:12]
Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Þetta mál bætist inn í ýmislegt annað sem hefur verið á seyði í menntamálaráðuneyti í ríkisstjórn hæstv. forsætisráðherra. Það var hér barna- og menntamálaráðherra sem hraktist úr starfi hér fyrr í vetur. Síðan tekur nýr ráðherra við. Ég velti fyrir mér í ljósi þess hvernig hefur verið haldið á menntamálum í ráðuneytinu og nú þegar þetta bætist við — og vel að merkja hefur hvergi verið gerð grein fyrir faglegum forsendum þessa máls. Flestir efast um að þetta sé gert á faglegum forsendum. Það er alveg augljóst að flestir álykta að þarna sé tenging á milli, rétt eins og skólastjórinn gerir sjálfur. Þannig að það eru miklar efasemdir uppi um að það séu faglegar forsendur fyrir þessu. En þetta bætist ofan á annað í menntamálaráðuneytinu og ég spyr mig hvort hæstv. forsætisráðherra hafi ekki áhyggjur af því að á tímum þar sem við ættum að vera að sækja fram með djörfum og vönduðum skrefum sem gefa fyrirheit um breytta stefnu í menntamálum og alvöru metnaðarfulla stefnu í menntamálum, (Forseti hringir.) að þetta rugl sé að koma úr menntamálaráðuneytinu. Hefur forsætisráðherra engar áhyggjur af þessu?



[11:14]
forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég ítreka það sem áður var sagt: Það er ekkert óeðlilegt við að auglýsa stöður þegar skipunartíma lýkur. Ég hef ekki fengið aðrar upplýsingar en að um faglega niðurstöðu sé að ræða. Ég get alveg sýnt því skilning á persónulegum nótum að fólk geti orðið fyrir vonbrigðum en ég get ekki úttalað mig um ásýnd og að grípa inn í vegna ásýndar. Annaðhvort eru hlutir gerðir á faglegum forsendum eða ekki og allar þær upplýsingar sem ég hef fengið segja að þetta sé gert á faglegum forsendum og sé vel ígrundað. Ég ætla ekki að tjá mig sérstaklega um hvort það sé rugl í gangi í menntamálaráðuneytinu. Ég ber fullt traust til mennta- og barnamálaráðuneytisins og hæstv. ráðherra. (Forseti hringir.) Þetta mál hefur ekkert að gera með hvað er í gangi í ráðuneytinu. Þetta er faglega ákvarðað. Verið er að grípa til mjög stórra og áhugaverðra breytinga (Forseti hringir.) á framhaldsskólakerfinu núna og ég veit ekki betur en að hæstv. ráðherra hafi heimsótt alla framhaldsskóla landsins á síðustu vikum (Forseti hringir.) til þess m.a. að tala við um fólk um þær breytingar.