Spyrjandi var .
Virðulegi forseti. Hvað eiga Kína, Tyrkland og Ísland sameiginlegt? Í fjölmörgum löndum sem við berum okkur ógjarnan saman við nota stjórnmálamenn völd sín og áhrif með óæskilegum hætti, m.a. til að hafa áhrif á fjölmiðla og störf embættismanna. Með áhrifum á fjölmiðla er dregið úr frelsi þeirra og gagnrýni á stjórnvöld, sem er þó eitt mikilvægasta hlutverk fjölmiðla. Í slíkum löndum reyna stjórnmálamenn að stýra fréttaflutningi í opinberri umræðu. Í sömu löndum eru skoðanir og gagnrýni opinberra starfsmanna ekki liðnar og pólitískar hreinsanir algengar. Ráðherrar í ríkisstjórn Íslands eru æðstu valdhafar framkvæmdarvaldsins og þeir sitja í okkar skjóli. Hæstv. forsætisráðherra er verkstjóri ríkisstjórnarinnar og aðrir ráðherrar sitja í hennar skjóli. Ábyrgð hennar er mikil.
Hæstv. forsætisráðherra veit auðvitað upp á hár hvert ég er að fara með þessari fyrirspurn. Hún fylgdist með því og aðhafðist ekkert þegar stjórnarliðar kröfðust lækkunar á styrkjum til fjölmiðla sem þeir töldu halla á sig. Formaður Blaðamannafélagsins og raunar hæstv. ráðherra málaflokksins mótmæltu slíku orðfæri, en niðurstaðan varð engu að síður sú að óþekki fjölmiðillinn fékk á baukinn frá ríkisstjórninni.
Ég ætla ekki að eyða löngum tíma í aðkomu hæstv. ráðherra að stóra strigaskóamálinu, en skólastjóranum sem þar kom við sögu hefur nú verið sparkað af fyrrum varaformanni Samfylkingar. Og hver skyldi hafa fyrirskipað það? Þetta er einn reynslumesti skólameistari landsins, sem hefur reyndar líka verið gagnrýninn á stjórnvöld. Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra, og vona að ég sjái ekki undir hælana á henni hér aftur, að því hversu langt hennar ríkisstjórn mun ganga fram með viðlíka hætti og ég hef lýst og er ekki sæmandi fyrir lýðræðisríki. Og fyrst hún svaraði ekki hv. þm. Ólafi Adolfssyni hér áðan: Hafa siðareglur ráðherra ekki verið brotnar að mati hæstv. ráðherra? Já eða nei. Og þar getur hæstv. ráðherra ekki skorast undan því að vera dómari í því máli.
Frú forseti. Hér erum við að ræða um, sem er bara gott og blessað, hvort það sé eðlilegt að auglýsa opinberar stöður þegar þær losna. Sú ákvörðun var tekin á faglegum forsendum og var rökstudd með þeim hætti að það væri verið að ráðast í kerfisbreytingar innan framhaldsskólakerfisins sem fælu í sér aðeins breyttar áherslur í umræddu starfi og gerðu það að verkum að það þótti eðlilegra að auglýsa þetta starf. Viðkomandi aðila var frjálst og er hæfur til að sækja um það starf. Þetta er það sem við erum að ræða um.
Varðandi styrki til fjölmiðla er það einn af þeim hlutum sem fólk er annaðhvort hrifið af eða ekki hrifið af og jafnvel þótt það sé ekki hrifið af því er það með skoðanir á því hvernig eigi að úthluta þeim peningum. Í lok dags er þetta allt saman mannanna verk. Þetta er ekki eitthvað sem hefur verið til staðar hér alla tíð. Það var tekin ákvörðun um það að hafa tímabundna styrki til fjölmiðla. Sú ákvörðun nákvæmlega, hvernig sú skipting skapaðist, var líka tekin af mönnum, af fólki, á einhverjum forsendum. Það lá aldrei fyrir að sú skipting ætti alltaf að vera með þeim hætti. Hún gerði það m.a. að verkum að nokkrir stórir fjölmiðlar hafa í gegnum tíðina fengið ákveðna upphæð og margir minni fjölmiðlar fengið lægri upphæð. Um það snýst málið. Það hefur verið rökstutt vel. Við erum reyndar á þeirri skoðun að það þurfi að endurskoða þetta styrkjakerfi. Við komum því ekki á. Við erum m.a. að gera breytingar á stöðu RÚV sem lengi hefur verið talað um og er loksins verið að gera. Í því samhengi verður líka rætt um stöðu einkarekinna fjölmiðla og eflaust þá rætt hvernig þeim peningum verður útdeilt. Það er bara gott og blessað.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra svarið og í raun fyrir að sitja undir spurningum sem hún hefur ekki valið sjálf. Ég er náttúrlega í forréttindastöðu umfram fjölmiðla sem fá bara að bera fram spurningar sem henta hæstv. ráðherra. En af því að hæstv. ráðherra vísar hér í kerfisbreytingar og faglegar forsendur þá munum við í Sjálfstæðisflokknum auðvitað fá úr því skorið með formlegum hætti hvaða skólameistarar hafa fengið endurnýjun. Ég óska eftir því að hæstv. ráðherra svari því, fyrst hún fullyrðir að hér sé um faglegar forsendur að ræða, hvaða faglegu forsendur það séu. Hversu margir eru í þessari sömu stöðu? Hversu margar stöður verða auglýstar? Hún gaf það í skyn og fullyrti það í raun vera að um faglegar forsendur væri að ræða. Mig langar bara að spyrja að lokum hvort hæstv. ráðherra ætli raunverulega að skrifa sig svona í sögubækurnar. Fjölmiðlar eru markvisst veiktir, vefur Stjórnarráðsins misnotaður í pólitískum tilgangi fyrir blogg Flokks fólksins og þaggað er niður í pólitískum andstæðingum. Ríkisstjórnar hæstv. forsætisráðherra (Forseti hringir.) verður minnst fyrir að grafa undan lýðræðinu og grafa undan trausti til stjórnvalda.
Frú forseti. Ég er ekki með þær upplýsingar á reiðum höndum um hversu margir verða í þessari stöðu. Ég get þó ekki ímyndað mér annað en að mennta- og barnamálaráðuneytið sé fúst til að veita upplýsingar um þær faglegu forsendur sem ég er hér að vitna í og ég hef upplýsingar um, að þetta tengist breytingum sem eiga sér stað á framhaldsskólakerfinu og þess vegna sé verið að auglýsa umrædda stöðu.
Hvað varðar stöðu fjölmiðla vek ég bara aftur athygli á því að þetta er kerfi sem hefur ekki verið við lýði í langan tíma. Það var meitlað með ákveðnum hætti. Það var ekki í stein. Við getum alveg rökrætt um stöðu og fjármagn til einstakra fjölmiðla. Það verður áfram gert en það er ekkert meira um það að ræða en bara breyttar áherslur þegar kemur að nýtingu þessa fjármagns. Það er enginn í áskrift að þessu fjármagni. Við tökum pólitíska ákvörðun um það í þessum sal með hvaða hætti því er dreift og þetta hefur verið gert á faglegum forsendum. (Forseti hringir.) Ráðherra fjölmiðla hefur boðað frekari breytingar á kerfinu sem ég hygg að séu til góðs.