fundarstjórn forseta.
Málshefjandi var .
fundarstjórn forseta.
Virðulegur forseti. Á sínum tíma var skipaður starfshópur til að gera skýrslu um eftirlitshlutverk Alþingis sem forsætisnefnd fól að fara yfir lagareglur um eftirlit þingsins. Hópinn skipuðu Bryndís Hlöðversdóttir, Andri Árnason og Ragnhildur Helgadóttir prófessor. Þar kemur m.a. fram að þegar litið er til þess hvernig samskiptum og samstarfi Alþingis og framkvæmdarvaldshafa er háttað er almennt talið í íslenskum stjórnskipunarrétti að löggjafinn þurfi ekki að sæta neinum takmörkunum af framkvæmdarvaldsins hálfu. Þvert á móti er Alþingi talin vera æðsta stofnun samfélagsins. Þetta er einnig varið í stjórnarskrá.
Í 15. gr. þingskapalaga stendur að skylt sé að boða til fundar ef ósk berst um það frá a.m.k. fjórðungi nefndarmanna og taka á dagskrá þau mál sem tilgreind eru. Við getum einnig kallað til ráðherra fyrir nefndina. Fundi skal halda svo fljótt sem við verður komið. Formaður skal gefa viðhlítandi skýringar ef dregst umfram þrjá virka daga að halda fund í nefndinni. Innviðaráðherra hefur hunsað þá beiðni nefndarmanna núna í sennilega sex, sjö vikur að koma á fund nefndarinnar til að ræða þar ákveðið málefni. Þetta er auðvitað mjög alvarlegt. Atvinnuvegaráðherra, sem við óskuðum eftir að kæmi fyrir nefndina um miðjan júlí, kom um miðjan nóvember.
Virðulegur forseti. Ég leita liðsinnis forseta til að kippa þessum hlutum í lag vegna þess að þingið getur ekki sinnt eftirlitsskyldum sínum, því mikilvæga hlutverki, ef svona framkoma er af hálfu ráðherra.
Virðulegi forseti. Ég tek undir það sem hv. þm. Jón Gunnarsson nefnir hér og vil líka nefna það að í hv. fjárlaganefnd — það er ekki við forystu þeirrar nefndar að sakast — erum við búin að bíða eftir upplýsingum, sem eru nauðsynlegar fyrir okkur til að sinna okkar hlutverki, núna í nokkrar vikur. Það var síðast umræða í morgun. Þetta eru upplýsingar frá tveimur ráðuneytum og það er með ólíkindum að þau ráðuneyti hafi ekki brugðist við ítrekuðum óskum okkar um upplýsingar sem við þurfum að fá til að geta tekið afstöðu til mála og geta sinnt hlutverki okkar sem hv. alþingismenn. Ég veit ekki hvað skal segja um málið annað en það að ég hvet virðulegan forseta til að beita sér í þessu því það segir sig sjálft að ef við fáum ekki þær upplýsingar sem okkur ber lögum samkvæmt og er heimilt að fá, og það ætti að vera mjög einfalt (Forseti hringir.) að veita þær, þá getum við ekki sinnt okkar hlutverki.
Frú forseti. Vegna athugasemda sem komu hér fram varðandi komu hæstv. innviðaráðherra á fund atvinnuveganefndar þá er rétt að geta þess að hann hefur staðfest komu sína á morgun í fyrramálið, kl. 8:10. Það er líka rétt að taka það fram að hann var reiðubúinn til að koma í síðustu viku en það kom fram ósk á fundi þingflokksformanna að fallið yrði frá þeim fundi vegna skemmtana þingmanna kvöldið áður. Hæstv. innviðaráðherra er allur af vilja gerður til að koma á fund nefndarinnar og það er rétt að staðfesta það í kjölfar þeirrar umræðu sem varð hér um fundarstjórn forseta.
Virðulegur forseti. Ég verð að segja það að ég lít á það sem eitt af skyldum mínum sem ráðherra að koma fyrir þingnefnd sé þess óskað. Mér skilst að það hafi ekki fundist tími til þess, eins og kom fram hér áðan. Ég tel það bara mjög mikilvægt að mæta sem allra fyrst og ég kem í fyrramálið kl. 8:10 skilst mér.
Virðulegur forseti. Ég fagna því að hæstv. ráðherra kemur í fyrramálið fyrir nefndina. Það má vel vera að það hafi af einhverjum tæknilegum ástæðum verið óskað eftir því að fundartímanum yrði breytt. Það var búið að setja þann fund um morguninn, honum var síðan breytt til kl. 13 en síðan var hann felldur niður. Það er mikilvægt að hið rétta sé viðhaft hér þegar hæstv. ráðherra segir að hann sé allur af vilja gerður að koma á fund nefndarinnar. Það hefur ítrekað verið fundarfall í þessari nefnd á þeim sex, sjö vikum sem eru liðnar síðan beiðni um þennan fund var fyrst lögð fram og mörg tækifæri hafa verið til þess að boða ráðherrann en hann hefur ekki sinnt þessari beiðni okkar. Ég fagna því að við fáum þá umræðu um þetta mikilvæga mál, um 5,3%, í fyrramálið þar sem liggur fyrir lögfræðiálit um að hæstv. ráðherra hafi með framkvæmdum sínum og framkvæmdaleysi brotið lög. Það er auðvitað gríðarlega alvarlegt, virðulegur forseti, þegar slíkt er undir og engin viðbrögð eða svör hafa borist frá hæstv. ráðherra.